| |
föstudagur, júlí 30, 2004
Var að horfa á fréttir í gær og eftir að þeim lauk var ég hundfúl og pirruð út í það hvað sumt fólk heimsins *Íslendingar líka* er ömurlegt.
Í fyrsta lagi þá var talað um mál konunnar sem var drepin af fyrrum sambýlismanni sínum,,,???? það er auðvitað bara viðbjóður,,, sá maður er einmitt dæmi um hið ömurlega í heiminum,, hann er ástæðan fyrir því að margir þora ekki að eignast börn inn í þennan heim!
Í öðru lagi var talað um einhverja aumingja sem fóru inn í kirkjugarð í skjóli nætur til þess að eyðileggja leiði,, hvað er málið með það,,,,????? úúúú rosalegir tappar,,, aldeilis búnir að sýna þeim í tvo heimana,,, ekkert smá kaldir gaurar/gellur!
Í þriðja lagi var verið að tala um þennan 20 manna draugahóp frakka sem verið er að leita að uppi á hálendinu,,, ég held að allir átti sig á því að um gabb er að ræða,,, en björgunarsveitir þurfa að leita áfram því brandarakallarnir eru ekki nógu kaldir til að láta vita að um gabb var að ræða,,, þó rosalega kaldir séu að gabba svona obboslega fyndið*DÖ*,,
-leiðinlegt að hljóma eins og gömul nöldurkerling en svei mér þá,,,,,,, kannski er maður bara orðinn svona gamall að láta svona atriði fara í taugarnar á sér,,,
Dísa 13:40
jæja,, versló bara byrjuð og huuuuundleiðinlegt veður hérna í borg óttans! Ég fer sennilega ekki neitt um helgina þar sem ég þarf að klára verkefni í vinnunni fyrir mánaðarlok og á helling eftir.
Fór til Akureyrar um síðustu helgi með Daða og Birnu Lunu til þess að Daði gæti nú sýnt okkur Akureyri og sýnt Akureyringum okkur!!??? Þetta var alveg yndisleg ferð og Akureyri er mun skemmtilegri bær heldur en ég hefði ímyndað mér,, hef ekki komið þangað síðan ég var 10 ára þannig að allt virkaði sem nýtt fyrir mér
Dísa 11:42
mánudagur, júlí 19, 2004
Hérna aðeins fyrir okkur stelpurnar sem höldum alltaf að við séum "Of feitar"!??!
Vissir þú.....
...að ef Barbie væri alvöru kona væri hún svo vansköpuð að hún yrði að ganga á fjórum fótum!!!
....að ef gínur í búðum væru raunverulegar konur væru þær of grannar til þess að hafa blæðingar!!!
... að Marlyn Monroe notaði stærð 14 (ameríska) og hafði alla karlmenn í vasanum án þess að nokkur kvartaði yfir kílóunum á henni!!!
... að konur eru að meðaltali 65 kíló (ekki hávaxnar) og nota stærðir 12 til 14 (amerískar)!!!
... að ein af hverjum 4 konum á háskólaaldri þjáist af einhverskonar átröskun!!!
... að fyrirsæturnar í glanstímaritum og sjónvarpi eru lagaðar til í tölvu eða fiffaðar með lýsingu og ljósmyndatrikkum!!!
... að rannsóknir hafa sýnt að fimm mínútna lestur glanstímarita veldur þungu skapi, skömm og sektarkennd hjá um 70% kvenna!!!
... að fyrirsætur fyrir 20 árum voru 8% léttari en konur almennt!!!
... að fyrirsætur í dag eru 23% léttari en konur almennt!!!
-Best þessi með barbí,,,, hehehe
Dísa 09:31
mánudagur, júlí 12, 2004
Haldiði ekki bara að hann Maurice Greene hafi verið að vinna 100 metrana enn eina ferðina,, ég hélt nú bara að hann væri búinn að vera,,, en neinei,, vonandi bara getur hann e-ð á ólympíuleikunum,, hann er svo ansi skemmtilegur að fylgjast með!
en að öðrum hlutum,,, við fórum út á Fossi um helgina og hittum þar foreldra mína og systkini mín! það var rosalega gaman og ómetanlegt að vera öll saman. Í gær var svo frábært veður og við lágum bara í sólbaði og urðum rauð í kinnum!
Dísa 12:42
fimmtudagur, júlí 08, 2004
Að sjálfsögðu á maður ekki að tjá sig um fótbolta lengi eftirá þannig að ég ætla bara að sleppa því að tala um hinn ömurlega úrslitaleik á EM,,, bara alveg að sleppa því
Hinsvegar kom hann Jónsi bróðir í heimsókn til okkar í gær,, hann bara nýkominn af EM og miklu brúnni en bæði ég og Hrund samanlagt og þá er nú mikið sagt,, hahaha,,, nei smá djók en hann er allavegna rosalega brúnn,, og rosalega sáttur við allt þarna úti. Það var mjög gaman að sjá hann og skoða allar myndirnar hans frá Portúgal,, liggur bara við að mann langi til að fara einhvert út *DÖ*
Svo ég víki nú að einhverju öðru þá er ég nýbúin að flytja lögheimili okkar Birnu Lunu,, við erum sem sagt orðnar Kópavogsbúar,,, og Daði líka,, hann var ekki búinn að flytja sitt lögheimili þó svo hann sé búinn að búa þarna í 3 ár,, gerði það bara á sama tíma og ég færði okkar um daginn,, hann Daði er sko ekkert að stressa sig á hlutunum!
Dísa 09:52
föstudagur, júlí 02, 2004
Hahahaha Grikkir bara unnu Tékka,,, ég meina maður er bara orðlaus,, mínir menn spila semsagt aftur við Grikki núna á laugardaginn í úrslitaleiknum,, og að sjálfsögðu vinna þeir í þetta skiptið,, fyndið, í fyrsta og síðasta leik keppninnar keppa sömu lið,, nokkuð spes
Já ætlaði að benda ykkur öllum á að fara inn á vaxtalinan.is og lesa blogg þeirra Jónsa bror og Boga Portúgalfara,, ég er að fá alveg feikilega mikið út úr því að lesa þessa pistla þeirra,, þeir eru að upplifa algert "moment in time" vera að vinna á EM í Portúgal þegar heimamann komast í úrslit og vinna fokk,,, keppnina (því það er að fara að gerast)!!?!?
Dísa 09:28
fimmtudagur, júlí 01, 2004
Leikurinn í gær var glæsilegur og endaði nákvæmlega eins og ég reiknaði með! Portúgal á sko alveg skilið að fara í úrslit og ég hlakka bara til að sjá úrslitaleikinn!
Um síðustu helgi fórum við Daði heim til Hafnar til þess að ná í Elías og knúsa Birnu Lunu smávegis! Sú ferð gekk bara ljómandi vel og núna er ég aftur kominn á minn eigin bíl! Það er hriiiikalegur léttir,, ekki það að Danni sé e-ð lélegur bíll Daði minn :-/ ,,,, bara næs að komast aftur í ræktina án þess að þurfa að láta skutla mér og ná í mig og blablablabla!
Núna er Hátíð á Höfn að byrja,,, og ég er ekki alveg á svæðinu,,, nenni bara ekki að vera heima núna,, æ vil einbeita mér að því að koma mér almennilega inn í vinnuna,, er líka bara ekkert í neinu djammstuði,, frekar en venjulega
Dísa 17:39
|