laugardagur, september 28, 2002

 
ókei,,, er maður nokkuð peþettik????? Núna er klukkan akkúrat 3:00 á aðfaranótt laugardags og hvar haldiði að ég sé???? Nei ekki niðri í bæ að djamma eins og allt venjulega fólkið á mínum aldri,,,, augljóslega ekki heldur heima hjá mér sofandi,,, Nei nei mín er sko uppi í skóla,,, *lúser Dísa* Ekki nóg með að ég hafi verið hérna stanslaust frá fimmtudagsmorgni þangað til núna á hádegi í dag *ekki að djóka* að gera þetta stjúbit verkefni, heldur er ég komin hingað aftur núna afþví ég bara get ekki sofið, og auðvitað af því ég á EKKERT LÍF,,,, HA Kolla,,, hvað finnst þér um'etta????? gersamlega vonlaus gella!!!!!

Hinsvegar sá ég mér til mikillar ánægju að fullt af fólki er búið að skrifa í gestabókina mína!!! Og Jerry,,, það var sko alveg þess virði að bíða eftir því að þú skrifaðir,,,, ég held að þú ættir að fá þér svona bloggsíðu,,, ég mundi sko pottþétt lesa bloggið þitt á hverjum degi,,, ótrúlega skemmtileg kveðja :-)
og Gummi,,,, já þú verður nú bara endilega að fara að draga mig út á djammið hérna,,, ég er svo hrikalega léleg í'essu

en jæja,,, ætli ég fari ekki bara að koma mér heim,,,, eða kannski bara út í 10-11 í Lagmúlanum að kaupa mér enn eina samlokuna,,,, gersamlega að verða megaleið á þessum endalausu sam- lang lokum,,, *jakk*
góða nótt allir,,, heyrumst

fimmtudagur, september 26, 2002

 
æ,,, dagurinn í dag er ekkert skemmtilegur,, og dagurinn í gær var það ekki heldur :-( Ljóta teikniforritið er gersamlega að éta mig lifandi,,,,,,, við Kolla vorum langt fram á nótt í gær að brasa í'essu og þurfum sennilega að vera langt fram á nótt aftur í kvöld,,,, *nett ömurlegt*
ennnnnn,,,, fékk þó skemmtileg skilaboð inn í gestabókina mína!!!!! *hihihihi* geðveikur töffari þessi Ahmed,,,,, ég held ég bara sé að spá í að taka tilboðinu hans,,,,,
fyrst fannst mér þetta nú hljóma hálf grunsamlega,,,, hélt kannski að einhver væri að reyna að plata mig,,,, en eftir að ég fékk sms í gær frá sama manninum varð ég sannfærð!!!!??!?!?!??!
-- Jæja,, best að fara að gera e-ð,,,,, en Jerry,,,, ég er virkilega fúl yfir því að þú sért ekki ennþá búinn að skrifa í gestabókina mína,,,,, :-( ,,,,, bara virkilega fúl!!!!

þriðjudagur, september 24, 2002

 
Hvað er málið með þessa endalausu rigningu??????? Ég meina,,, rigning er fín svona ein sér en þegar það er rok líka er hún ekki að gera neitt fyrir mig!!!!
Annars er þetta bara enn einn hundfúll lærdómsdagur!!!! Er að berjast við að gera e-ð teikniforit í JAVA og það er í augnablikinu ekki að rokka neitt rosalega feitt :-( ,,,,
Er líka e-ð bjánalega veik og asnaleg þannig að ég er ekki í neitt svakalega góðu formi til að pæla mikið í kóðaflækjum og þannig skemmtilegheitum???? *AUMINGJA ÉG*

mánudagur, september 23, 2002

 
Ok,,,, aðeins að skrópa í lærdómnum,,, Hún Haffa töffari var með svo ansi skemmtilegt test inni á síðunni sinni,,,, varð bara að prófa það,,,,

libra



What's *Your* Sex Sign?


þetta fékk ég sem sagt út,,,,,, ekki lélegt???????
 
Ennþá er ekkert skemmtilegt að gerast hjá mér,,,,, Núna er s,s að byrja síðasta vika fyrir miðannarpróf og allt er gersamlega að verða vitlaust!?!?!?!??! Öll næsta vika fer í miðannarprófin og öll þessi vika fer í skilaverkefni 2 í JAVA, og auðvitað að læra undir miðannarprófin!!???!!!
Ég stefni á það að fara heim á elsku Hornafjörð um leið og prófin eru búin, og vera þar í viku eða svo!!!! Er farin að sakna hennar Birnu minnar svo mikið að ég er komin með alvarleg fráhvarfseinkenni!!! Hef bara aldrei hlakkað jafn mikið til neins,,,,,
en nú er það bara að þrauka þessar 2 vikur,, :-( *arghhh*

laugardagur, september 21, 2002

 
Fékk einkunn fyrir JAVA-forritið mitt í gær,,,,, risa verkefnið sem ég var að vinna alla nóttina einhverntíma um daginn,,,,, fékk sko 8.5,,,, SEM ER GOTT!!!!! *Jess ég er snilli* dídírídírrí!!!! Fyrst ég gat þetta þá get ég sko allt,,,, ekki eins og ég hafi ekki vitað það fyrir!!!!
Er núna ennþá að reyna að klára vélbúnaðarverkefnið,,,, *ömurlegt* er alveg að verða búin að fá ógeð á þessum bjánalegu hliðum og rásum og bara öllu draslinu,,,, :-(

föstudagur, september 20, 2002

 
Föstudagur til,,,?????? Blablabla !! Ekkert nýtt hérna en bara svona til að vera kurteis ætla ég að rugla e-ð!!!
Ég er búin að vera að gera verkefni í vélbúnaði núna undanfarna daga,,,, já það er eins leiðinlegt og það hljómar!!!!! Við Kolla erum svo miklir lúðar að við vældum og vældum í 2 daga af því við skildum ekki neitt eða þar til hún Ester elska aumkaði sér yfir okkur og tók okkur í einkatíma heima hjá sér!!!! Hún Ester er svo mikill snillingur að henni tókst að draga okkur fram í ljósið á u.þ.b klukkutíma!!!! Við gengum út úr húsinu virkilega hamingjusamar og upplifðum okkur sem alvöru tölvunörda*jibbiogjei*

miðvikudagur, september 18, 2002

 
Miðviiiikudagur!!! Hörku stuð bara???? Nei annars,, hef ekki hugmynd um það hvað ég að að segja hérna,,,, það er gersamlega ekkert að gerast hjá mér þannig að fariði frekar að horfa á Leiðarljós en að lesa þetta!??!?!

mánudagur, september 16, 2002

 
Enn einn mánudagur til mæðu,,,,,, :-( er maður alltaf bara þreyttari á mánudögum eða hvað????
Sit núna í fyrirlestri í reikniritum og það er sko ekki gaman,,,,,, maðurinn er í alvörunni að tala um TRÉ *vúhúúú*. Annars er ekkert að frétta af mér,,, gerði ekkert um helgina og kem líklega til með að halda áfram við að gera ekkert núna í vikunni,,,,
Best að fara að hlusta á Gústa babbla um tréin sín,,,, síja

laugardagur, september 14, 2002

 
jæja,,,,, bara kominn laugardagur og ég ekki að standa mig í blogginu!?!?!?! Sorry þið öll sem nennið að lesa þetta. En aumingja ég er bara búin að vera algerlega á fullu í skóladrasli undanfarna daga!!!!! Skal sko bara segja ykkur að ég og Kolla vorum að gera verkefni í JAVA allan fimmtudaginn og alla nóttina þar til við mættum í tíma á föstudagsmorguninn og þurftum að skila verkefninu!?!?!?! Alger klikkun!!?!?! Svo svaf ég bara í allan gærdag eftir að ég koma heim úr skólanum,,,,, var orðin illaskemmd og alveg kolrugluð!!!
Lítur ekki út fyrir að ég geri neitt skemmtilegt um helgina :-( bara að læra og það er alveg huuuundleiðinlegt,,,,,
verð að hætta í bili,,,,, Hasta luego

fimmtudagur, september 12, 2002

 
það er svo gaman þegar fólk skrifar í gestabókina mína,,,,, TAKK ALLIR :-)
Í dag er kominn fimmtudagur og ég alveg á síðasta snúning með verkefnið í JAVA sem ég á að skila á morgun,,,,, :-( er bara rétt hálfnuð,,,, æ nenni ekki að tala um það, gæti bara varla verið meira leiðinlegt!!!?!??!
Hins vegar,,,, ég fór í afmæli til hennar Lilju vinkonu minnar í gær og það var sko ekki leiðinlegt!! Hitti þar fyrir nærri því allar bestu vinkonur mínar og við bara tjilluðum í fínni stemmingu allt kvöldið!!! Fellega fyndið að vera búin að eiga sömu "bestu vinkonur" alveg frá því maður var í leikskóla,,,,, þær vita allt um mann :-/
OK núna er klukkan að verða fyrirlestur í vélbúnaði og ég verða að hlaupa,,,,, síja

þriðjudagur, september 10, 2002

 
Í dag er búið að hellihellihelli-rigna hérna í R-víkinni!! Þetta er samt voðalega notaleg rigning e-ð,,,, frekar hlý bara og svo er enginn vindur,,,, það væri örugglega hægt að gera góða hluti úr þessari rigningu ef maður ætti sætan og skemmtilegan kærsta til að vesenast e-ð með,,, en já það er ef maður ætti kærasta :-( sem á auðvitað ekki við um lúserinn mig!?!?!??!?!
Ég er núna uppi í skóla að læra fyrir skyndipróf sem ég er að fara í á morgun *ójeeee*,,, Ég veit ekki alveg hvað snillingar hafa fengið að leika lausum hala þegar þessi 3.önn í tölvunarfræðinni var skipulögð,,,,,, við erum að tala um 2 stór skilaverkefni í þessari viku + skyndipróf + heimadæmi í öllum 4 kúrsunum = EKKERT LÍF :-/

mánudagur, september 09, 2002

 
ókí,,, er í miklu betra skapi núna en ég var í í morgun þegar ég skrifaði,,,,,, er bara hérna uppi í skóla að þykjast vera að gera e-ð,,, hrikalega dugleg við það!?!?!?!
Er einmitt að hlusta á Lenny Kravitz núna,,,,, talandi um töffara maður *djísös* Ég bara trúi því ekki að ég hafi ekki verið búin að fatta það fyrr hvað hann er hrikalega mikill töffari,,,,,, gersamlega dýrka gaurinn
Jæja best að fara að gera e-ð eða bara að koma sér heim,,,,, Hasta manana mis amores y Buenas noches :-)
 
Mánudagur til mæðu,,,, alveg gersamlega :-( Er ekki að nenna þessari viku,,,,
Fór s,s heim um helgina og hafði það bara alveg ágætt,, Birna Luna mín var voða ánægð að sjá mig og líka voða leið þegar ég þurfti að fara aftur!!!! Ég keyrði ein seinnipartinn í gær með stútfullan bíl af drasli og í ömurlegu skapi. Lenti í bílarunu dauðans uppi á Hellisheiði og þurfti að keyra á 50 *ARGHH*
Núna er ég bara aftur komin upp í skóla og langar bara heimheimheim

fimmtudagur, september 05, 2002

 
Mér finnst rigningin góð,,,,,???? eða hvað,,, er ekki bara komið nóg af henni?????? Alla þessa viku hef ég vaknað upp við rigningu,,,,,, það er allavegana bót í máli að ég á bíl *er svo mikil gella* og þarf ekki að bíða eftir STRÆDÓ *jaKKK*
Mætti í skólann í morgun klukkan 8:00 því ég gleymdi því að það átti ekki að vera neinn fyrirlestur í vélbúnaði, *DÖ* flýtti mér meira að segja svo mikið úr ræktinni til að koma ekki of seint í tímann að ég var nærriðí búin að keyra á einhvern gamlan kall sem keyrði allt of hægt fyrir framan mig,,,, ohhhh Dísa þú ert svo mikill snillingur :-/

miðvikudagur, september 04, 2002

 
í dag er þriðjudagur og ég vaknaði á slaginu 6:00 í morgun,,,, fólk heldur að ég sé e-ð biluð að nenna'essu!!! Dæmatíminn í vélbúnaði sem ég fór í núna áðan var svo lélegur að ég hefði eins getað sitið heima og horft á Leiðarljós,,, Gæinn algerlega ekki að gera neitt gagn :-(
Ég er farin að hlakka svo til að fara heim á Hornafjörð um helgina að ég er alveg að spila út,,,,, hlakka svo til að sjá hana Birnu mína *dídírrí* Annars er Reykjavíkin bara farin að gera ágætis hluti,,,,, breitir ansi miklu að vera komin inn í íbúðina mína!?!?!?
Jæja,, best að fara að gera e-ð,,,,, síja ;-)

þriðjudagur, september 03, 2002

 
well well well,,, þá er ég loksins flutt inn *fokking fantastik*!! Íbúðin er bara svakalega fín og gamli kallinnn sem ég leigi hjá var búinn að láta þrýfa hana hátt og lágt af einhverjum mönnum hjá þrif.is *???????* talandi um að vera óheppinn með vinnu :-/
Ég mokaði draslinu mínu inn um kvöldmataleitið í gær og komst þá að því að mig vantar bara nærri því allt,,,,, eru ekki einusinni herðatré þarna inni!!!! vaknaði svo í morgun klukkan 6:00 *ójeeeee* og fór í ræktina mér til heilsubótar!!! Núna er ég hinsvegar uppi í skóla þar sem ég finn hengingarólina þrengjast all-ískyggilega að hálsinum á mér,,, á nebblega að skila verkefni á fimmtudaginn sem ég veit bara varla á hvaða tungumáli er,,, verkefnalýsingin sko!!! Ætla að skjótast upp Í Kringlu snöggvast með hanni Kollu til þess að fara nú örugglega ekki að gera e-ð af viti,,,,, :-(

mánudagur, september 02, 2002

 
Núna er ég hinsvegar að fara að skrópa í 2 tíma í "Hönnun og smíði hugbúnaðar" *jess Dísa :-( * til þess að fara að koma mér inn í'essa íbúð,,,,, svo bara tekur ískaldur raunveruleikinn við,,,, bara lærdómur og læti *ojbara*
 
Æ vá,,,,,, kominn mánudagur og ég ekki einusinni flutt inn í nýju íbúðina mína!!!! Var líka að vona að enginn hafi verið búinn að taka eftir því að ég er ekki búin að skrifa neitt frá því fyrir löngu síðan *eheeee* Annars er bara lítið að frétta,,, Reykjavikin er ekki að gera neitt voðalega góða hluti ennþá,,, ekki að fíla öll þessi endalausu verkefni sem ég á að fara að skila núna í vikunni :-( svo var líka klikkað veður hérna í gær,,, aljörlega ekki til að bæta hlutina!!!!??

Archives

This page is powered by Blogger. Isn't yours?