| |
föstudagur, ágúst 30, 2002
jæjjja, bara kominn föstudagur og ég ekkert búin að skrifa frá því ég veit ekki hvenær!!!!!! Æ ég er bara búin að vera að gera svo mikið af öllum andsk,,, Er ennþá að bíða eftir því að geta flutt inn í íbúðina sem ég er að fara að leigja,,, vonandi verður það bara á morgun eða hinn!! Æ vá ,, nú er klukkan rétt rúmlega 8 um morguninn og ég bara hef ekkert að segja svona snemma,,, kem bara aftur þegar heilastarfsemin er komin í gang,, hvenær sem það nú verður,,
Dísa 08:17
mánudagur, ágúst 26, 2002
Fékk alveg æðisleg skilaboð inn í gestabókina mína frá uppáhalds frænda mínum, honum Stjána sæta,,, sjáiði bara HÉRNA!! Já Stjáni minn, sumarið gerði alveg hrikalega góða hluti!! Við tökum okkur nú til í einhverju fríiinu og drífum okkur á djammið,,, hlakka ekkert smá til að fá aftur "eggjaköku a la Stjáni" ;-) Hasta la vista baby !!!!
Dísa 16:06
vell vell vell,,, maður bara mættur aftur í skólann,,,, get nú ekki sagt að ég vildi hvergi annarstaðar vera!!! Búin að fara í 3 fyrstu fyrirlestrana mína sem voru gersamlega að fara með mig,,, hef bara aldrei heyrt jafn margar skammstafanir á jafn fáum klukkustundum!?? XML, J2SE, API, ASP og blablabla,,, veit auðvitað ekki hvað helmingurinn af þessu er :-/
Dísa 15:53
sunnudagur, ágúst 25, 2002
Þá er ég bara rétt að fara að leggja í hann,,, nærriðí búin að pakka og allt að verða reddí!!! Er eiginlega ennþá að bíða eftir því að finna einhvern sem vantar far í bæinn,,,, nenni ekki að keyra ein :-( Annars er það ótrúlegt hvað ég er með lítið drasl í bílnum,,, sængina mína, tv-ið, fötin mín og allar bækurnar, sem eru að vísu örugglega 100 kíló,,,, heyri bara í ykkur í R-víkinni
Dísa 14:57
laugardagur, ágúst 24, 2002
Var að taka eitt af þessum megasniðugu sjálfsprófum sem svo hrikalega mikið vit er í!!! Þetta próf bar yfirskriftina : What Natural Disaster are you? Ég er voðalega sátt við útkomuna,,,,,,,,,,,
 What Natural Disaster are you? Take the quiz!
Ég er að segja ykkur,,,, ég er kúúúl ;-)
Dísa 11:06
Dagurinn í dag er bara ansi sniðugur,,,, allt að verða vitlaust á meðal sumra hérna í bænum því enginn annar en Óli grís (a.k.a forsetinn ) is komming tú tán *vúhúúú* Ég er að segja ykkur að ég bara gæti ekki verið spenntari *NOT* !?!!!!! Ég er ekki að vinna í dag, er nebblega bara hætt, þannig að ég missi af heimsókn Óla á Jöklasýninguna!!!! Er auðvitað voða svekkt yfir'essu!!!!
Dísa 11:04
föstudagur, ágúst 23, 2002
Skrifaði ekkert í gær því ég var í svo hrikalega vondu skapi,,, það kom nebblega soldið ömurlegt uppá,,, ætla ekkert að fara að segja frá því núna þvi þá fer ég bara aftur í vont skap og ég nenni því sko ekki!!!!! ókí, en í dag er nýr dagur með blóm í haga og helli rigningu *meiriháttar??* og ég er bara í mínum venjulega ágætis gír!!! Siðasti vinnudagurinn er að renna upp og skólinnn bara að hefjast eftir helgina!!?? Allir eru líka bara að fara suður eða þá eru þegar farnir og haustsvipurinn er að færast yfir Hornafjörðinn minn!! Ég er sko einganveginn tilbúin til að ljúka þessu sumri,,,,, búið að vera allt of næs og skemmtilegt til að hreinlega týma því,, en "así es la vida" og það er örugglega e-ð skemmtilegt framundan líka,,, :-)
Dísa 10:17
miðvikudagur, ágúst 21, 2002
jæja,,, flottur dagur í dag,, allt í alveghreint ágætis standi bara,,, Vaknaði í morgun með harðsperrur dauðans í fótunum,,,, það er nú meira hvað maður er í góðu formi eða þannig,,,, maður tekur sér frí frá ræktinni í smá tíma og er þá eins og vaffla þegar maður byrjar aftur,,, alger auli!?!?!
Já hey,, ég gleymdi að segja ykkur það í gær,,,, ég er komin með íbúð í R-vík,,, *jesss* stúdíóíbúð uppi í Breiðholti,,, þannig að núna get ég bara farið að pakka niður, er ekki alveg að nenna því sko,,,, ohhh,,,, það er eitt af því leiðinlegasta sem ég geri,,, að pakka niður og taka upp úr kössum og töskum,,, alveg ömurlegt!!?!?!? Jæja ég ætla að fara heim í mat,,,, hasta luego
Dísa 17:54
þriðjudagur, ágúst 20, 2002
Yndislegt,,,, hún Gústa var að senda mér bréf inn á Gestabókina mína ,,, það er frábært að heyra í þér elskan mín,,, við söknum þín alveg hrikalega mikið hérna og auðvitað Guðlaugs líka!!! Gott að allt gengur vel,,, við öll dauðöfundum ykkur af því að vera þarna!!!!! Birna Luna er alltaf að tala um ykkur og finnst Danir hrikalega heppnir að hafa ykkur þarna hjá sér,,,,, Besos y abrasos
Dísa 16:21
mánudagur, ágúst 19, 2002
en já allir,,,, kíkiði inn á nýju flottu blikkandi linkana mína hérna við hliðina ;-) *ég er svo mikil gella* ansi skemmtilega myndir frá því um helgina,,,,,,
Dísa 21:43
Síðasta vinnuvikan byrjuð,, :-( ohhhhh ég þoli ekki veturinn,, alltaf svo dimmt og kalt!! Ég skil ekki af hverju ég fæddist á Íslandi,,,, ég þoli ekki snjó og er ömurleg bæði á skíðum og á skautum!!! Svo nenni ég bara ekki að byrja aftur í skólanum,, er alveg megastressuð því ég er algerlega búin að gleyma öllu sem ég lærði á síðustu önn *eheee* þarf sennilega að byrja önnina á því að rifja upp undirstöðu atriðin í C++ ???? bíddu bíddu,,, FOR-lykkja,, jú ég hef örugglega heyrt'etta áður *DÖ*,,,,,, alger lúser
Dísa 21:40
jæja,, bara að verða búin að moka myndunum inn,,,,, á eftir aðeins að fiffa þetta til svona en annars er'etta bara komið :-)
Dísa 15:41
sunnudagur, ágúst 18, 2002
ókí,,, er e-ð vesen á þessum helv,,, sörver þannig að ég bara nenni ekki að brasa við'etta lengur,,,, set hinar myndirnar inn á morgun og ekki orð um það meir,,,,, buenas noches todos,,,,
Dísa 22:43
Jæja,, innflutingspartýið er komið inn, djö,, er ég dugleg,,,, er að vinna í Kaffihornsmyndunum,,,,, allir bara rólegir
Dísa 21:07
Kvöldið í gær,,, alveg brilljant,, æðislega gaman,, fór fyrst í partý til Unu og þar var allt aðal sukkliðið í hrikalegum gír!!! Við fórum svo á Kaffihornið um miðnætti þar sem Stjáni frændi og fleiri flottir töffarar voru að troða upp!! Þeir voru æði,,, alveg svakalega sætir og lagavalið alveg framúrskarandi *thumbs up strákar*
Ég er að segja ykkur að það var dansað uppi á borðum og staðurinn alvgerlega málaður rauður,,,, Ég er einmitt núna að vinna í því að setja myndirnar inn frá því í gær en þær eru auðvitað ekkert nema frábærar, svo,,, stei tjúnd
Dísa 19:04
laugardagur, ágúst 17, 2002
Var að heyra í Árdísi megabeib,,, hún er að koma að djamma í kvöld og það er náttúrulega ekkert nema hrikalega gaman því hún Árdís er svo meiriháttar! Lítur allt út fyrir að kvöldið ætli að gera mjög góða hluti,,, búin að kaupa mér malibúflösku og byrgja mig upp af sígarettum og svo auðvitað búin að hlaða myndavélina *Kúúúl* Stefnan er fyrst tekin á partýið hennar Unu sætu og svo sennilega á Kaffihornið þar sem Stjáni frændi og fleiri töffarar ætla að troða upp,,,,, aldrei að vita hvað svo,,,,
Dísa 19:17
Jess,,, ekkert að vinna í dag *stjíng stjíng* ætla bara að tsjilla og, eins og Haffa töffari segir, fara og styrkja áfengis og tóbaksverslun ríkisins,,,
Djö,, er annars gott að vera ekki að vinna í dag,,, kominn tími á smá pásu,, svo er ég líka viss um að það sé draugagangur þarna í'essu húsi,,, algerlega án gríns,,,,, oft þegar ég mæti er vatn rennandi úr öllum krönum á klósettunum og hlutir á allt öðrum stað en ég skildi þá eftir á,,,, ég meina ég er eina manneskjan sem er með lykil af essu svo,,,, *vöööhhöö* Æ mér er alveg sama, ég er ekkert hrædd við drauga,, væri líka megakúl ef etta væri sætur og flottur draugur,,, !?!??!?!
Jæja best að fara að hringja í Höffu og spyrja um kvöldið,,,,,, síja ;-)
Dísa 12:25
föstudagur, ágúst 16, 2002
Sjáiði bara hvað er mikið að gera í vinnunni hjá mér,,,,,, HÉRNA ??????? Nákvæmlega,,,, gaman að föndra *eheee*
Dísa 16:53
jæææja gott fólk,,, bara kominn föstudagur *ójeeeee* Hjúds partí MAÑANA , get bara ekki beðið, alveg kominn tími á að fá sér einn ölllara og gera sig að fífli, er orðin e-ð svo voða normal *blablabla* !??!?! Hey hún Anna Jóna ofurtútta er komin með bloggsíðu HÉRNA,,,,, allir að kíkja þangað inn, lofa að þið verðið ekki fyrir vonbrigðum,,, Þú ert krútt Anna Jóna ;-)
Dísa 16:48
fimmtudagur, ágúst 15, 2002
Nú hefur hún Helga mín komið heim frá Spáni í gær eða dag,,,, vonandi er hún bara skelþunn og ónýt, þá hefur ferðin heppnast vel!?!?! Hún var þarna í Torrevieja, íslendinganýlendunni ógurlegu,, ég var þar einmitt í fyrra,,,,, frábær staður!! Er alveg eins að pæla í'ðí að flytja þangað í vor og reyna að finna mér einhverja vinnu,,,, væri það ekki brilljant hugmynd :-) Örugglega fullt af vinnu að fá fyrir tölvunörda þarna á Spáni,,
Dísa 21:50
jelló,,, hvað er málið með'essa rigningu :-( það er ekki eins og við búum á íslandi eða e-ð?!?!?!
ohhhh, kannski maður ætti að fara að leita sér að samastað fyrir veturinn, ískaldur raunveruleikinn er farinn að renna upp fyrir manni,,, skólinn að byrja í næstu viku,, og ég ekki búin að opna eina einustu bók í allt sumar, eins og ég ætlaði nú að vera dugleg!!! Well,, er búin að skemmta mér fyrir allan peninginn í sumar, hefði sko ekki viljað eyðileggja það með einhverjum C++ biðröðum og stöflum *hljómar nú samt spennandi er það ekki???*
Dísa 15:49
miðvikudagur, ágúst 14, 2002
Verð bara að sýna ykkur fyrstu myndirnar mínar Hérna Hérna Hérna og Hérna
Dísa 21:08
Um næstu helgi,, þá verða sko teknar myndir,, hún Una sæta er að flytja núna og ætlar sér að halda innflutningspartý á laugardaginn, bara eitt orð,,,STUÐ!?!?!?!?! Þetta verður probablí síðasta djamm áður en skólinn byrjar :-( og ég ætla sko að skemmta mér,,,, Það er bara verst að hún Kibba mín er að fara til R-víkur á morgun og verður því ekki með,,, hún er bara ekki búin að djamma með okkur frá því á Hátíð á Höfn,,, HA Kibba hvað er málið með það ??????? Annars veit ég ekkert hvort það verði e-ð að gerast hérna í partýpleisinu Hornafirði,,, verð að afla mér upplýsinga um það,, æ, það skiptir svo sem engu máli,, ég bara ætla að skemmta mér
Dísa 20:58
ég held að það sé bara alveg satt hjá henni Kibbu,,,, ég er ömurlegur bloggari !?!?!? Æ það er bara svo hrikalega gama að leika sér með nýju súpermyndavélina mína að ég bara get ekki hætt,,,, nú fer ég að dæla myndum inn á netið *víhííí*
Dísa 20:46
þriðjudagur, ágúst 13, 2002
Myndavélin mín loksins komin,,,,, *ójeeee* þvílíkt tæki,, ég held það þurfi nú bara háskólagráðu til þess að geta unnið með hana??!?!?!?! Ég meina það,,, það er bókstaflega allt hægt með þessari vél, ég er alveg kolrugluð hérna á kafi í hrikalegum leiðavísi!!!! Bara vá,, hún er svo góð að ljótt fólk verður megafallegt á myndunum,, ég verð sko pottþétt ömurlegaóþolandi manneskjan næstu daga, alveg eins og japanskur túristi,, hihihihi
Dísa 20:46
mánudagur, ágúst 12, 2002
Mér finnst íslendingar vera sætt fólk,,, er hrikalega stolt af því að vera íslendingur þegar ég sé hluti eins og Gay - Pride !?!?! Við erum bara samansafn einstaklinga,,, og einstaklingurinn á að geta verið á þann hátt sem honum líður vel?!?! Einstaklingsfrelsið,,,, með því byggjum við upp sterkt og gott samfélag!!! *Og hana nú,,, hljóma eins og pólitíkus*
Dísa 17:17
hvað er málið með þessa asnalegu gestabók,,,, hún er búin að vera í fokki núna í 2 daga, allt þetta pub.alxnet drasl,,,, næst ekkert samband við'etta
Dísa 16:54
okí,,, skrifaði ekkert í gær, alveg ömurleg!!?!?!? Best að ég bæti það upp með brandara sem ég sá á tilverunni >>>> HINAR ÓGURLEGU HERSVEITIR ÍRAKA VÍGBÚAST ,,,,,,,, hehehe,,, það er alltaf gaman að sjá hvað þetta lið er bjánalegt,, en þeir eru þó allavegana allir í súperdúper formi??????
Dísa 14:23
laugardagur, ágúst 10, 2002
Jæja,,,, leikurinn (Sindri Dalvík) fór 1 - 1 ?? ,,,,,SEM ER GOTT,,,,, ?? Þó svo við hefðum auðvitað átt að sjá sigur Sindramanna,,, nei ég er að segja ykkur,,,,, við erum að tala um hreinan dómaraskandal hérna,,, bara ekkert annað,,,, *Kommon, það má alltaf segja þetta*
Dísa 17:58
föstudagur, ágúst 09, 2002
Á morgun,,, á Sindravöllum,,, Sindri v.s Leiftur Dalvík,,, *GO SINDRI, GO SINDRI, GO GO GO* nú verða Dalvíkingarnir sko teknir í nefið *Múhahahahah* Þeir eiga eftir að óska þess að þeir hafi aldrei fæðst!!! Þið áttið ykkur á því að við erum að tala um Sindra,,,, liðið sem bara núna um daginn niðurlægði Valsliðið á eftirminnilegan hátt!!! Og Valur er sko efsta liðið í deildinni,,,, ennþá skulum við nú bara segja ;-)
Dísa 21:13
Ömurlegt að vera með svona áróður inni á blogginu (síðasta póstið mitt sko hér fyrir neðan),, ég sem er algerlega laus við allt tuð *Je Ræt Dísa*,, Nei í alvörunni, ég þoli ekki nöldurseggi!?!?!
Dísa 20:53
OK,,, er að reyna að finna mér herbergi til að leigja í bænum í vetur!! Er búin að hringja í endalaust mörg númer (sem vísa mér svo alltaf á önnur númer) til þess að komast að því hvort námsmenn á gistiheimilum geti fengið greiddar húsaleigubætur, blablabla!???!? Og enginn getur svarað þessu,, ég meina, ég er að tala um Félagsmálaráðuneytið og fleiri stofnanir með svaka titla. Þvílíkt erfitt,,, Meiriháttar að búa í svona pappírslandi þar sem eru svo margar reglur og lög að enginn veit lengur neitt í sinn haus :-( Þetta eru nú meiri andsk,, bjánarnir,, og svo er ég að borga þessu fólki laun
Dísa 14:50
fimmtudagur, ágúst 08, 2002
Djö,,, vesen með þessar myndir allar,, ég bara hef ekki hugmynd um það hvar myndavéladruslan með öllum myndunum er!! (ágætt að vera búin að kaupa sér nýja diggital vél) Er hún á Kongó eða í Danmörku eða einfaldlega uppi á Hólabraut 18,,,, allavegana eru Haffa töffari og Gústa gella báðar farnar til Danmerkur og þær eru einmitt eina fólkið sem veit hvar vélin er,,,,,, þannig að,,,, þið sem eruð að bíða eftir myndum hingað inn,, SORRÝ bara get ekki sagt neitt annað :-(
Dísa 21:44
Loksins loksins er nýja fína, flotta myndavélin mín komin til landsins *vúhúúú*,, Ég var sko að kaupa mér nýja myndavél,,eða fyrir svona mánuði síðan!?!?! Keypti hana í gegnum ebay og þar sem ég er svo hrikalega snjöll ;-) ;-) þá breineraði ég saman svaka plott til þess að sleppa við að borga tollana af henni við komuna til okkar tolla- og skattaglaða Íslands!!! Plottið s.s hefur tekið u.þ.b mánuð í framkvæmd og fænallí í dag er vélin komin til Íslands,,,,, Þetta er alveg massa tæki sko,, með ótrúlega mörgum milljónum pixela og blablabla,, einhverju fleiru sem á víst að vera svaka flott ?????
Dísa 21:43
miðvikudagur, ágúst 07, 2002
Hey já,, ég gleymdi að segja ykkur það áðan,, ég er búin að kaupa mér bíl!! Bara ansi góður bíll svona só far!! Fékk hann á svo hlægilega lágu verði að ég bíð bara eftir því að e-ð hrynji,,,, Fór til R-víkur í gær að ná í hann, ansi skemmtilegur rúntur!! Tók einmitt hana Kibbu með mér til baka, hún var sko að koma af fylleríi á Akureyri. Á suðurlandsundirlendinu tókum við svo upp strák sem var að koma úr Eyjum. Soldið þunnur og illa farinn svona, en samt lang sætastur ;-) pottþétt eftir að dreyma hann í nótt!?!?!?
Dísa 20:59
La Vita e Bella !?!??! eða bara einfaldlega,,,, LÍFIÐ ER YNDISLEGT
- Já ég er í alveg hrikalega góðu skapi í dag, allt e-ð svo æðislegt!! Ég get sko sagt ykkur að það er vel þess virði að spá ekki alltaf í "óskrifaðar reglur samfélagsins" og gera bara einfaldlega það sem mann langar til,,,,, hvernig sem álit annara er!!! Ég er alveg búin að komast að þessu að undanförnu. Ekki að ég ætli að fara e-ð nánar út í það allt,,,, sumir vita hvað ég er að tala um,, aðrir e.t.v ekki *hihihi* en boðskapurinn er engu að síður góður!?!?! *ohh Ég er svo mikill spekingur,,,,*
Dísa 14:42
mánudagur, ágúst 05, 2002
Úffff,, djö,, er ég fegin að þessi helgi sé að verða búin, alveg komið nóg af þessu öfgakjaftæði!?!??! Í dag sé ég reyndar ekkert eftir því að hafa ekki skellt mér á Þjóhátíð og vera núna föst á eilífðarfylleríi á flugvellinum þar,,,*MÚHAHAHAHAHAAAAAA*
- Nei þar sem þetta er talin vera votviðra- og vindasamasta þjóðhátíð sem menn muna eftir er ég svosem alveg sátt við að hafa sleppt henni *hehehe*,,,,, Ég fór hinsvegar með familíunni til hennar ömmu minnar *Rokk on Dísa* sem býr rétt fyrir utan Kirkjubæjarklaustur og var þar í einhverskonar útilegu í 2 daga!?!
- Ég fór á feikiskemmtilegt ball með Sixties og hitti þar fullt af fólki sem ég hef ekki séð árum saman!!?? Jónsi bróðir lenti líka nærri'ðí í slag við eldgamlan kall sem var að reyna við mig og það endaði með því að ég beit hann (kallinn sko) alveg hrikalega í hendina *eheee* "Hvað segiði,, eru ekki allir í boltanum,,,,,,,,"
Núna er ég hinsvegar bara mætt aftur í vinnuna og er á leiðinni til R-víkur á morgun til að ná í nýju bíldrusluna sem ég er að fara að kaupa mér,,,,
Dísa 14:28
föstudagur, ágúst 02, 2002
Heyrðu,, sæti bíllin var nú bara þegar seldur,,,,,, við internetnördin erum nú ekki að fíla svona sko,, ég uppfæri mína síðu á hverjum degi,, hefði svona haldið að TOYOTA réði líka við það *hummm*!! Nei ég meina,,, ef maður getur ekki treyst á toyota, á hvern getur maður þá treyst?????
Dísa 15:58
Er búin að finna mér alveg hrikalega sætan bíl ,,,!?!?! Er hann ekki virkilega ég ;-) ???? Er að bíða eftir viðbrögðum sölumanna við tilboðinu mínu,,, læt bara í mér heyra þegar ég fæ þau :-)
Dísa 15:22
Sorrí, sorrí, sorrí,,,,,, skrifaði ekkert í gær,, er bara ekki að standa mig í'essu!!!!! Nei málið er bara að ég var í svo ömurlegu skapi í allan gærdag :-( Allir að fara til Eyja nema moi,,,,, Ég bara nennti ekki að fara að væla e-ð í ykkur!?!?!? Núna er ég hinsvegar örlítið hressari, er að fara í útilegu út á Kirkjubæjarklaustur *VEI VEI :-(* Nei er búin að ákveða að gera bara gott úr'essu öllu, vera kannski kúl á'ðí og fara í "river rafting" , væri það ekki skemmtilega öðruvísi verslunarmannahelgi???????? :-(
Dísa 11:37
|