| |
miðvikudagur, júlí 31, 2002
Fékk eftirfarandi skilaboð í Gestabókina mína áðan ;;; "Gústa graða er með myndavélina á Kongó,,En þá fær mar ekkert að sjá myndirnar fyrr en í næstu viku",,,,, Held etta hafi verið hún Haffa töffari sem er búin að grafa upp myndavélina!!!! Thumbs up Haffa :-)
Dísa 16:48
Ein myndavélin frá því um sidste helgi finnst ekki *ARGHHH* og hún var auðvitað með bestu myndunum!!!! Af hverju er maður alltaf svona mikill andsk,,,, bjáni þegar maður er fullur???? alveg ömurlegur,,,, ég er nú náttúrulega sérstaklega slæm í þessum málum,,, hef aldrei hugmynd um hvað ég er að gera *ehhee* Hélt þetta myndi þroskast af mér svona með árunum bara,, :-/ en nei,,, er alltaf jafn gáfuleg!!!
Dísa 13:45
þriðjudagur, júlí 30, 2002
ókííí,,,,,, skemmtilegur dagur sem bara á eftir að verða skemmtilegri þegar á líður, tröst mí *hihihi* ;-) Ég er búin að vera í allan dag að leita mér að bíl til að kaupa fyrir veturinn, bara get ekki tekið þátt í strædóveseni og skiptimiðum,,,,,, Leitin gengur bara ágætlega,,, fann eina bíldruslu sem mér líst ágætlega á, hún er að vísu einhverstaðar á Hofsósi :-/ sem ég hef náttúrulega ekki hugmynd um hvar er *sorrý Hofsós*
Dísa 16:40
mánudagur, júlí 29, 2002
Djö,, er ég ekki að fíla allt þetta Vestmannaeyjadæmi,,,, ég þoli ekki að missa af hlutunum, gæti eins verið á frystitogara einhversstaðar í andsk,,,?!?!? Hérna situr maður bara eins og bjáni og veltir því fyrir sér hvort Kirkjubæjarklaustur eða Skaftafell væri betri möguleiki *DÖ* á meðan almennilegu Íslendingarnir pakka niður gúmmíbátum og sjógöllum *Æ allt of löng saga* sem þeir svo koma pottþétt ekki með til baka aftur,,,
Dísa 14:02
sunnudagur, júlí 28, 2002
Já, einmitt,,, filmurnar fara í framköllun bara strax á morgun,,, þannig að í vikunni koma inn ansi skemmtilegar myndir frá því í heitapottsfylleríinu í gær,,,, bikiní og læti maður *vúhúúú*
Dísa 21:28
Ha, sástu 6 berfættar manneskjur í gulum náttsloppum hlaupandi í Miðtúninu???????,,,,,, já heyrðu, það vorum við vinkonurnar,,, *hihihi* Fórum með hana Gústu gellu á spa *en skemmtilegt orð* og sátum í heitum potti og drukkum bjór á meðan hún fékk e-ð dekur!?!?! Við fengum einmitt lánaða gula náttsloppa sem við svo skelltum okkur í þegar við þurftum e-ð að brasa?!?!? Eftir 3 klst fórum við svo stálslegin á Hótel Höfn og fengum okkur kokteila og læti!!! Það var alveg ótrúlega gaman að sjá hvað sumir þjónanna þarna uppfrá tóku sig vel út í þjónabúningnum,,, nefni engin nöfn sko,,,,, en jú, vakti ansi skemmtilegar hugsanir svona með kokteilunum *róleg Dísa* !?!??! Eftir "the hotel" héldum við svo bara okkar striki með massívu stuði og ýmiskonar uppákomum *&%$/* langt fram eftir nóttu!?!?
Dísa 15:20
föstudagur, júlí 26, 2002
Föstudagurinn bara mættur á svæðið *stjíng stjíng* og bara allt að gerast !??!?!? Morgundagurinn er ekki alveg negldur ennþá því hún Gústa gella (A.K.A aðal manneskjan) er ekki viss hvort hún þurfi að pækla einhverja þorska þarna á Kongó e-ð frameftir degi á morgun,,, Það væri náttúrulega ekkert nema fúlt ef heiðursgesturinn yrði ekki með í geiminu :-/ !?!?!?!
Dísa 14:56
Þeir eru yndislegir þessir draumar,,,, svo ljúfir og sætir en þó grófir á þann hátt sem ég vil þeir séu grófir ;-) !?! Dreymdi sko aftur alveg hrikalega vel !! Vild'að ég gæti farið út í smáatriðin en,,,,,,,, ég ætla bara að hald'essu fyrir mig *híhíhí*
Dísa 14:54
fimmtudagur, júlí 25, 2002
Jess,,, hún Kolla skrifaði í Gestabókina mína,, mér finnst alltaf svo gaman þegar fólk gerir það?!??!?! Svo skrifaði hún líka komment um Ogga,,,,,, mér finnst það nú líka alltaf gaman *víhííí* kannski af því fólk bara minnist aldrei á'etta við mig,,, efast bara um að nokkur maður viti af'essu....
Dísa 21:51
Jææææja,,?!?! Bara farið að styttast í helgina,,, djö,, skal verða gaman hjá okkur skvísunum !?!?! Við erum að skipuleggja svaka geim til heiðurs henni Gústu gellu því hún er að fara til Danmerkur *boooring* í skóla núna bara eftir allt of stuttan tíma :-( Já við ætlum sko að gera e-ð hrikalega skemmtilegt,,,,,,, erum á fullu að skipuleggj'etta!!
Dísa 16:03
miðvikudagur, júlí 24, 2002
Ójeeee,,,, ég held bara ég gæti ekki verið hressari???? Svei mér þá nei !! Ekkert útaf neinu sérstöku sko *hehehe*,,, bara,,, mig dreymdi svo ansi skemmtilegan draum í nótt ;-) *díddírrí*. Svona draum þið vitið sem er hrikalega raunverulegur og stuðlar hreinlega að betri líðan daginn eftir,,,,,,,, *vúhhaaaa*
Dísa 13:26
þriðjudagur, júlí 23, 2002
Ég var að enda við að taka kærastaprófið *DÖ* sem hún Kibba var að bjóða mér upp á,,,, Og svei mér þá ef það er ekki bara e-ð vit í'essu hjá þeim!!! Niðurstöðurnar mínar voru nebblega svohljóðandi
Hihihihi,,,, sökkkers!?!?!?
Dísa 20:37
Eingöngu af því ég er svo gríðarlega hæfileikarík manneskja *já, ekkert að segja neitt* þá peistaði ég þessu líka hrikalega flotta ljóði mínu hingað inn!!?!?!?! Kibba sendu mér á Private Entry hvað þú heldur að þetta sé um,,,, það er nú s,s ekkert svo flókið að fatta'ða ;-)
Dísa 17:39
ég loka augunum
líðandi stund hverfur
ilmurinn í loftinu vekur hjá mér þrá, von og drauma
sem eru mínir
bara mínir
augnablikið tekur mig með sér
ég snerti það
það ber mig á toppinn
hamingjan er bara hugarástand
hún er ekkert leyndarmál
hún er þín ef þú vilt hana
Aldrei að hika
því ekkert varir að eilífu
Dísa 17:30
VÁ,,, það er frábært veður úti og ekkert að gera hérna í vinnunni hjá mér???? !?!?! Mig langar ekkert smá til að setjast út í sólbað með bókina mína,,,,, en neinei ,,,,það eru einhverjir snillingar að vinna hérna uppi á þaki,,,,, 20 manns í það minnsta!?!?! Ég nenni sko ekki að sitja hérna fyrir utan og blasa við öllu liðinu :-/ ekki með svo mikla athyglisþörf,,, þó svo hún sé auðvitað mikil *hehe* !!!
Dísa 16:46
mánudagur, júlí 22, 2002
Hey fólk,,,,,,, hvernig væri nú að skrifa í Gestabókina mína???? Bara hvað sem er,,,,,, !?!??! Ég get alveg tekið'í,,,, ;-)
Dísa 21:40
Jæja,,, Ég er í mun betra skapi núna en ég var í í gær :-) allt bara miklu skemmtilegra núna en þá!?!?! Hitti skvísurnar mínar í gær eftir vinnu og þær voru nú fljótar að hressa mig við!!??!?!? Ég ákvað að ég og myndavélin mín ætlum út að djamma um næstu helgi *vúúhúúú*,,,, ekki fleiri djö,,, Tí-ví helgar þetta sumarið!!!! Svo er líka farið að vanta nýjar djammmyndir af okkur vinkonunum,,,,,, það er ekki eins og það gæti einhverntíma orðið nógu mikið af þeim?!??!?!
Dísa 17:26
sunnudagur, júlí 21, 2002
Ég væri ekkert smá til á djammferð í bæinn núna,,, eða bara einhvert þar sem önnur hver manneskja spyr mig ekki "Hvað er nú að frétta af Ogga litla" og heldur virkilega að hún sé alveg að slá í gegn í brandaradeildinni!!! *Kommon pípol, get óver it and get a læf*,,,,,,, Ég held bara ég hætti að tjá mig núna, þetta er farið að leysast upp í algera vitleysu hjá mér :-/
Dísa 21:02
Pura Vida!!!! Siempre es pura vida acá en el país más frió,,,, Ese verano va a ser el verano de fiesta, locura y amor ;-) Si estoy en enamorada de un montón de personas, mujeres y hombres *ojehhh*?!?!??! Hay una que es mí favorita en este momento pero nadie sabe que pasa mañana!!! La vida es hermosa, increíble y,,,, es mía, solo mía!?!
Dísa 20:32
laugardagur, júlí 20, 2002
Ég var að horfa á gullmót númer XX í tíví-inu í gærkvöldi *nákvæmlega,,,, hvað er nú málið með það á föstudagskvöldi* og þar var verið að sýna 100 m hlaup karla *hehe* þar sem minn maður var náttúrulega fremstur í flokki!! Hvað getur maður eiginlega sagt,,,,,, hann er %#$"/(|,,,,, Það flottasta er auðvitað þegar hann er að sæka sig upp fyrir hlaupið, eitthvað svo ruddalega sexy,,, *grrrrr* !!??!?! Eftir hlaupið er líka alltaf gaman að sjá því þá breytist hann Mo litli úr villidýrinu í bara ljúfan og sætan strák,,,,,,, það mætti hreinlega halda að hann fengi e-ð meira út úr þessum hlaupum en bara sigurinn *hmmmm* ??? Ég allavegana sá ekki eftir því að vera heima á föstudagskvöldi, thanks to Maurice Greene,,,,, ;-)
Dísa 12:05
föstudagur, júlí 19, 2002
Kræst,,,,,Ég er að drepast úr leiðindum *ARGHHHH* !!! Veðrið úti er frábært og ég er föst hérna í vinnunni,, "Mig langar úhhhúút"",,,,,, Er ekki einhver þarna úti sem nennir að skemmta mér smá,,,??????? HA ,,,,,,, Enginn,,,,,, :-( *böhö*
Dísa 16:18
Bara kominn föstudagur aftur, og rétt ný runnið af manni?!?!?!?! Hahahaha nei nei, smá djók!! En samt, voðalega líður tíminn hratt,, það er rétt rúmur mánuður þar til ég þarf að fara aftur í skólann og hætta að hegða mér eins og bjáni *ohhhhh* :-( !?!? Æ nenni ekki að spá í'ða,,,, Helgin hins vegar???? Hvað ætlar Hornafjörðurinn að bjóða okkur uppá að þessu sinni?? VÁ, gríðarlegar undirtektir bara,,!! Ætli maður verði ekki að treysta á djammgellur dauðans, ég veit allavegana að hún Haffa töffari bregst aldrei! Ég sá hana núna áðan bara,,, með bjór í hönd!!?!? Haffa þú ert yndisleg ;-)
Dísa 14:01
fimmtudagur, júlí 18, 2002
VATHA fá hann lánaðan,,,,,,,,, Kibba mín,, það er sko ekki að ræða það?!?!??!?! Kibba tótallí lost í blogginu sínu >> Hérna Ja er hann með "flotta" leggi??,,,,,,,, lets djöst get ríl,,,,,,, af hverju í ósköpunum haldiði að ég sé allt í einu farin að mæta á leiki hjá 1. flokki Sindra,,,,, myndi meira að segja borga mig inn ef einhver færi fram á það *ummm* !!?!?!?!?!
Dísa 20:48
OK,, venjulega er ég ekkert rosalega mikið fyrir karlrembubrandara *Vá langt orð* en ég rakst á einn alveg brilljant,,,,,, >>> Hvort hélst þú með Tyrklandi eða Brasilíu?????? Hahahaha,,,,,,,, ertu búinn að skoð'etta????? Hvað er líka málið með þessar gardínukonur,,,,,,???? Það væri náttúrulega algert brjálæði að draga frá í smá stund *ó mæ god, já* verum stilltar og góðar eins og okkur er sagt að vera,,,,,,,,
Dísa 17:23
Jæja,,, ég er búin að ákveða það,,,,, ég ætla allllldrei að gifta mig!?!??!?! *Kommon Dísa* Nei í alvörunni,,,,,,, Það er ekki það strákar, þið eruð yndislegir, nothæfir til margra hluta ;-) *stjíng stjíng*,,,, Ég held bara að rómantíkin sé dauð hvað mig varðar, nenni ekki að standa í einhverju drama-kjaftæði!!!!!!! Og eru ekki bara allir sáttir,,,,, :-/
Dísa 13:57
miðvikudagur, júlí 17, 2002
Vitiði,,, ég var inná Rómeó og Júlíu að reyna að finna eitthvað sniðugt dót svona,, *kommon eins og þú hafir ekki farið þarna inn einhverntíma?!?!?!* og fann þarna fullt af flottum vörum en ,,,,,, nei nei,,, bara allt uppselt!?!??! HALLÓ,, ekki sátt sko :-( ,,, þannig að ég fór bara inn á Netverslunina Örvandi Myndlist og athugaði hvort ég fengi eitthvað handa mér þar !??!?!?,,, hahahaha! Ég meina,,?????? ÖRVANDI MYNDLIST,,, *vatta* Hvað í ands,,, Veit ekki alveg hvað kemur upp í hugann en alveg örugglega ekki það sem á við,,, ;-)
Dísa 16:54
þriðjudagur, júlí 16, 2002
Jelló todos,,?!? ;-)
Í dag er sko gaman að lifa,,, Maður er eins og sumir segja alveg "eldferskur" ;-) og þess vegna til í allan andsk,,, þegar veðrið er eins og það er búið að vera í dag *Alveg róleg Dísa!?!?*,,,,,, lalala!?!?! En hey, hvert á að fara um Verslunarmannahelgina???? Er að spá í'etta, og veit ekki alveg,,,,,,, þeir sem þora *hehe* eiga endilega að koma með hugmyndir í gestabókina mína, bara hvað sem er,,,, eru það Eyjar sem blífa aftur í ár eða *daddara* eitthvað ennað,,,,,
Dísa 16:38
mánudagur, júlí 15, 2002
Ég elska hana Lilju,,,,, hún er alltaf svo dugleg að skrifa í gestabókina mína, gaman að heyra í þér Lilja ;-) En hvað segiru, já hann Maurice haunk er með skegg,,,,,?!?!? Ég var ekki einusinni búin að taka eftir því, hef sennilega verið að horfa á e-ð allt annað *hihihi*,,,,,
Dísa 20:47
Mánudagur til mæðu,,,,,,, var það ekki þannig Kibba?!?!?! Svei mér þá ef það á ekki við í dag!! Maður er svona hálf slappur bara ennþá :-\ En hey,,, ég fann heimasíðu Maurice Green núna áðan Hérna og ég get nú ekki annað sagt en að mér líður aðeins betur eftir að vafra þar um!?!?!?! Hann er náttúrulega ekkert nema hrikalega flottur ;-) HA, stelpur,,,,,,, kíkiði á'etta!?!?!
Dísa 14:50
sunnudagur, júlí 14, 2002
Kóngó hvað!?!?!? Við erum að tala um gríðarlega skemmtilega nótt hérna í hjarta Hornafjarðar *vúúhúu*!! Já hvað er eiginlega málið með mig þessa dagana, HA,,??? Ég held samt að núna sé það hingað og ekki lengra sko, ónæmiskerfið mitt er alveg að dömmpa mér hrikalega í dag :-( svo á ég líka alveg eftir að sofa,,,,, gleymdi'í bara um helgina *eheee*!?!?
Dísa 15:25
Jæja,,,, bara að vera komin með alvöru blogg?!?!?! *ójeeee* Ætla samt að peista gamla blogginu mínu inn
Hérna>>>>
13. júlí 2002
ókíííí,,, dagurinn í dag,,,algert flopp! Allir að fara á Kongó í ammæli til Gulla Big nema ég *böhö* því ég er svo mikið nörd að vera að vinna!! Kannski maður líti bara á þetta sem gott tækifæri til að gera ekkert fleira af sér *eheee* því eins og flestir vita þá hefur maður verið ansi "duglegur" að undanförnu ;-) hahahaha !!?!??!!?
12. júlí 2002 kl 20:45
Já ég vissi það alveg,,,, ég er ekki eini lúserinn hérna á svæðinu, það er fullt af þeim ;-) Haffa nó offens!!!?!?! Mér finnst rigningin góð,,, lalalala |-|-|-|-|
kl 14:30
Dagurinn í dag,,,,, föstudagur bara kominn?? Well, ég er ein heima með bræðrum mínum og ætti auðvitað að vera að nota tímann vel *ójeeee* en mér heyrist bara fólk vera ennþá að jafna sig eftir "The Weekend of Weekends"! Kannski maður grafi upp einhverja lúsera (læk mí :-) ) sem eru til í einn cerveza bara svona til að slútta vikunni,,,,,,,,,,,,,,,
11.júlí 2002
Hvað gerir maður þegar maður er að drepast út leiðindum????? Ömurlegt lag í útvarpinu með einhverju sem heitir víst "Englar" *Kommon* og búin að skoða tilveruna alllllllt of mikið!!!! "Að þegja er líka góðs viti" æ Einar Ágúst hvernig væri það nú bara, HA!!!
11. júlí 2002
Vell vell vell,,,,, bara nýr dagur með blóm í haga og öllu tilheyrandi!??!?! Ég fór meira að segja í ræktina í morgun og er alveg farin að segja sexxx!!?? Hvað er annars málið í dag???? Bara "Carpe diem",,,, lífið er þitt!
10. júlí 2002
Ég fékk bara áskorun í gestabókina mína núna rétt áðan ???????? Sjáiði bara ég verð nú bara að gefa honum Axel 10++ í einkunn fyrir að þora inn á gestabókina mína (annað en sumir?!?!?!) og aðra 10++ fyrir gott komment ;-) En hvað gerir maður þegar maður fær svona áskorun,,,,,,,,, það væri sko frá nægu að segja * stjíng stjíng* hahaha en,, " yo sé que quieren saber todo sobre lo que hicimos porque fue riiiico pero,,,, usa su imaginación fue exactamente así!!!!!???!?"
10. júlí 2002
Ok, dagurinn í dag er bara að gera góða hluti só far!! Svona tvo daga í viðbót og þá eretta fínt!?!?!? Annars er ég búin að vera að vinna í því undanfarna daga að setja inn myndirnar frá því um helgina og þær eru sumar alveg hrikalegar!!! Myndavélin mín er hinsvegar endanlega búin að syngja sitt síðasta,,,,, hún bara þoldi ekki álagið um helgina, sem er reyndar ekki skrítið!!! Það er sko ekkert smá gott að vera búin að panta mér nýja myndavél, ekta diggital, finepixblablabla!! Massatæki með öllu inniföldu *Vúhúúú*!!
9. júlí 2002
jæja,,,,,, ætli ég meiki það í ræktina á morgun, ehee ekki búin að vera alveg nógu dugleg sko!!!!! ókí,,,,,, skiptir ekki öllu. Ég ætla ekkert að fara að tala um líðanina síðustu sólarhringa, hún Kibba bara sagði allt sem segja þarf umetta allt inni á blogginu sínu hérna?!?!?!? Bara talað út úr mínu hjarta!!!!
Nú er hinsvegar komið að raunveruleikanum aftur :-( rífa sig upp úr helginni og reyna að halda andlitinu!
!?!?!?!
5. júlí 2002
Vell, vell, vell,,,,,,,, Hátíð á Höfn,,,,, jeeee. Kíkiði bara Hérna inn!?!??!?!
4. júlí 2002
Klukkan orðin 20:00 og ég er bara mætt aftur hingað í vinnuna,,,,,, er að reyna að ná í Kibbu, það bara gengur alls ekki :-( Dónde está Kibba!!! Hringdu nú í mig ef þú ert að flækjast á netinu og sérð þetta... en hvað?? ég er bara feikna góðu skapi, er búin að fá það á hreint að ég á frí alla helgina *vúúúhhhúúú* þannig að allt er bara að smella, og í kvöld byrjar bara ballið!?!??!??!? ;-)
4. júlí 2002
Hvað segiði nú??? Bara kominn fimmtudagur og svei mér þá ef Hátíð á Höfn er ekki bara að byrja í dag ( allavegana svona hjá sumum),.,,svo er líka þjóðhátíðardagur Bandaríkjamanna,,,,, þannig að það er bara allt að gerast!?!? Hún elsku Helga mín er líka að koma í dag (Jibbí) og meira að segja Ragnheiður líka :-) Ég er að segja ykkur það, allt að gerast!! Best að fara að drífa sig í ríkið,,,, væri það ekki sterkur leikur???????
3. júlí 2002
Jæja systir mín er bara búin að nefna nýja stráksa, Axel Elí!! Mér finnst auðvitað Axel vera alveg hrikalega flott nafn, á bara eftir að venjast hinu?!?!
Var að veltast inni á humarhátíðarsíðunni og komst að því að þessir snillingar sem sjá um síðuna hafa sett mynd af "Ungfrú humar" á forsíðuna!!! ÚNGFRÚ HUMAR,, hvað er nú það? Eitthvað ofan á brauð,,, hvar er þá Herra humar eiginlega?? Kommon, í dag er árið 2002, við stelpurnar sættum okkur ekki við neitt svona!!! Enga fj,,, Hafnarbúðakarlrembu hérna, bara virkar ekki
3. júlí 2002
Núna bara mætt í vinnuna og enginn inni á MSN :-( lélegt lið,,,, nei nei smá djók???? Heyrðu já Kibba, ertu ekki ánægð með nýja linkinn minn??? Við erum svo miklir töffarar með þessar heimasíður okkar ;-). Hvað er annars að frétta fyrir utan nýja frændann minn,,, jú þetta venjulega bara, ræktin, vinnan og humarhátíðarpælingar. Ég keypti mér líka nýjan bol í morgun,,,,,, mega flottur!!!!!
3. júlí 2002
Jæææææja, ég var að eignast lítinn frænda,,, jess bara núna í morgun. Allir í fjölskyldunni auðvitað svaka kátir með það!!
2. júlí 2002
Alltaf gaman þegar fólk þorir að skrifa í gestabókina mína, gaman að heyra í ykkur allir!!! Jæja núna er ég loksins komin með nettengingu hérna í vinnunni,,,,,DÖ búin að vinna hérna í 1 mánuð og tengingin búin að vera á leiðinni allan tímann. En hvað um það, núna verð ég allavegana inni á MSN "ALLAN DAGINN"!?!?!? Gaman, gaman, gaman. Dagurinn í dag er búinn að vera massívur náttúrulega eins og allir dagar í mínu lífi,,,,, vaknað, farið í ræktina, í vinnuna snemma til að skúra alla þessa 1000 fermetra hérna, aftur í ræktina og svo er ég hérna bara aftur komin í vinnuna!!!! Spurning hvað ég á eftir að afreka það sem eftir er dagsins???????????
30. júní 2002
Sólbrúnu Brassakropparnir tóku þjóðverjana bara í nefið! Það var nú líka eins gott. En eitt atriði,,, hvað var eiginlega málið með hárið á Ronaldo?? Átti þetta að vera einhver nýr stíll, svona eins og kamburinn hans Bechams!!??? Var allavegana ekki að gera nokkurn skapaðan hlut fyrir mig, ekkert frekar en Ronaldo sjálfur. Djöfull væri annars gaman að vera í Brasilíu núna, váá það er örugglega allt bilað þar.
29. júní 2002
Heyrðu, Kaffihornið í kvöld, hvað annað?? Ja það er svo sem ekki um annað að velja hérna á Hornafirði!!!!!
29. júní 2002
Jæja ég hef alltaf sagt það, það er eitthvað með mig og fótbolta!!! Það er alveg sama hvernig málin standa mínir menn tapa alltaf,,,,, Sindi, uppáhalds íslenska liðið mitt ;-) tapaði í dag á móti Þrótturum 4 -2 og Tyrkirnir auðvitað unnu Kóreu!!!! Já ég hef alltaf vitað það, fótbolti er bara ekki fyrir mig, fyrir utan það auðvitað hvað ég er sorglega að spila hann!! Ja léleg,,,,, við erum nú reyndar að tala um mikið meira en það, fólk gerist bara ekki öllu verra en ég!?!?!?
29. júní 2002
Nei nei nei,,, Tyrkir búnir að skora þriðja markið sitt!!! Þessi heimsmeistarakeppni er bara að leysast upp í algera vitleysu :-(
27. júní 2002
Æ vá lífið er yndislegt. Veðrið frábært og ég í geðveikt góðu skapi :-) Sumarið er sko deffenetlí tíminn.. Hvað er annars að frétta????? Bara,,,, allir að bíða eftir humarhátíðinni, ein helgi í það!!!!!!
26. júní 2002
Djöfull vona ég að Brassarnir lúskri á Þjóðverjunum?????? Algera niðurlægingu, það vil ég sjá!! Ég meina, djísös, hver heldur svo sem með þjóðverjum???
23. júní 2002
Til hamingju með afmælið elsku Helga mín!!!
Kvöldið í gær var æðiiiii. Við vinkonurnar erum svo miklar gellur að það er nú bara alveg frábært. Ég var ekki komin heim fyrr en klukkan 8 í morgun og við erum að tala um stanslausa fiestu frá því klukkan 8 kvöldið áður. Ýmislegt fróðlegt og skemmtilegt átti sér stað en þó héldumst við allar vinkonurnar mjög dannaðar allan tímann (sem er mjög óvenjulegt). Fyrir utan eitt glóðarauga, smávegis slagsmál og #$!"&$( ,,,,, vorum við eins og ég sagði hérna áðan lang flottastar!
21. júní 2002
Hei vá, Halló Dísa,,,,,, Kominn 21. júní og ég hef ekki skrifað neitt í 3 heila daga. Það er svo sem ekki eins og mikið hafi gerst hjá mér, þannig að þetta er í lagi!! Ég er hinsvegar að plana mikið geim á laugardaginn. Við vinkonurnar ætlum okkur að fara á ærlegt Hornafjarðar-fyllerí og augljóslega verður það mjög áhugavert kvöld!?!?! Það er einhverskonar rallídæmi í gangi hérna um helgina og þess vegna upplagt að nota tækifærið og þykjast þurfa að fara á ball. Ofan á allt æsispennandi rallíið á svo ein besta vinkona mín afmæli og við höldum náttúrulega upp á það,(nema hvað)...
17. júní 2002
Í dag er 17. júní og hérna á Hornafirði er einmitt ekta 17.júníveður, rok og rigning!! Þar sem ég er líka í fríi í dag er ég á leiðinni með litlu prinsessuna mína á einhverja skemmtun, sem vegna veðurs er haldin innandyra en ekki úti eins og ætlað var. Það verður eflaust bráðskemmtilegt þó svo ég væri persónulega frekar til í að vera heima hjá mér að taka til eða gera bara hvað sem er annað. Já ég veit ég er léleg!!!!!!!
16. júní 2002
Jæja er í fríi í dag, æði. Er bara á leiðinni í sund með litlu prinsessuna mína, það verður sko ljúft!!!
14.júní 2002
Úff Kolla, smá harðsperrur sagðiru, djöfull er maður í lélegu formi, ég er alveg að drepast!! Ég ætti kannski að fara að skella í mig nokkrum skömmtum af sterum, eins og hún Freyja vinkona. Nei veistu ég held ekki,,,,,, þessi "fyrrverandi" átrúnaðargyðja mín hefur misst alla punktana sem hún var búin að vinna sér inn hjá mér!
13.júní 2002
Klukkan orðin 14:00. Mennirnir í þröngu búningunum bara ekki að standa sig, HA Valtýr,,,,,que pasa????? Hvað er eiginlega málið með að slefa sig í gegn með hjálp "snillinga" eins og Equadora??? Ja sei sei! Ég gef nú ekki mikið fyrir svitabanda Fabioana þessa stundina. Ég held ég haldi bara með Senegal núna,,, eða einhverju álíka bjánalegu :-(
13.júní 2002
Vaknaði klukkan 6:10 til að horfa á leik Costa Rica og Brasilíu,,,,, Vei vei, Costa Rica féll út og dagurinn nú ónýtur! Ég þoli ekki fótbolta. Og Tyrkir komust áfram!!!!! Það er nú ekki til að bæta ástandið. BÖMMER
12.júní 2002
Argentína bara dottin út. Ég er nú svo sem ekkert voðalega svekkt en ég vorkenni alveg hrikalega vesalings argentínska skiptinemanum sem býr hérna heima hjá mér. Ó vell,, mínir menn eiga ennþá sjens og á meðan það er er mér nokkuð sama um hina kappana. Ef þið eruð ekki búin að fatta það ennþá þá held ég með Costa Ricamönnum, "VAMOS TICOS, olé olé olé olé ticos ticos"!
11.júní 2002
Jæja Bessí og Kolla,, hvað finnst ykkur? Nokkuð flott síða er það ekki bara???? Ég get sko sagt þér það Kolla að núna er klukkan um það bil 14:00 og ég er strax farin að finna fyrir harðsperrum, súperdúper æfingar hjá þér :-)
10.júní 2002
RANDI & AURÉLIAN:
If you are reading this it means that you did what I asked you to do : -) Here you can see what's new with me that is if I have the patience to write in English or Spanish. Don't you just love the pictures???? Oh Aurélian you are lucky that you never liked people taking pictures of you,,,,,, but it is a good picture of Randi and me isn't it???
9.júní 2002
Mikið vildi ég að þessar Heimsmeistarakeppnir væru á hverju ári,,,,ég er að segja ykkur að þær og allar hinar fótboltakeppnirnar eru sko draumur allra kvennmanna. Allir þessu sveittu fótboltakroppar. Þeir eru að sjálfsögðu mis-sexy en eins og til dæmis í ítalska liðinu eru þeir í sérstaklega þröngum búningum... ekki að djóka. Þeir eru allir voðalega góðir fyrir augað og eflaust góðir fyrir ýmislegt annað líka?!?!?!??!
8.júní 2002
Sumarið komið og ég búin með öll prófin,,,,,meira að segja búin að ná þeim öllum :-) ... ég hef nú svo sem fengið betri einkunnir en "hú kers" ég náði!
Núna er aftur sumarvinnan tekin við og bara svona ef einhverjum þarna úti er ekki alveg nákvæmlega sama þá er ég að vinna á "Jöklasafni" hérna í heimabæ mínum (stórborginni Höfn í Hornafirði) og það er bara að rokka feitt, safnið sko!!!?!
Dísa 14:58
|