| |
fimmtudagur, október 31, 2002
arghhh,, kominn fimmtudagur,,,, og ég er orðin svo handónýt og kolrugluð að ég veit bara varla hvað ég heiti lengur,,,,, Er með einhvað helv,,, kvef og mér er bara núna í tvo daga búið að líða eins og ég sé alvarlega þunn *aumingja ég :-( *
svo er auðvitað málið líka þessi ljótaljóta hálka sem er búin að vera hérna núna í 3 daga,,,, ég veit að ég hef sagt það áður en,,,, ÉG HATA SNJÓ OG ÞETTA HÁLKUDRASL!!!!!!!!!!!!!!!!!!! ég auðvitað var svo gáfuleg að gleyma vetrardekkjunum mínum heima á Höfn þannig að ég er bara á mínum skemmtilegu dumardekkjum og er búin að lenda í mesta veseni,,,, búin að festa mig tvisvar á bílastæðinu heima hjá mér *peþettikk* og þurfa að spóla mig út með stórkostlegum tilþrifum,,,,, alger snillingur eða þannig,,,,, ég hringdi svo auðvitað í mömmu og pabba til að láta þau redda mér *nema hvað* og senda mér dekkin,,, og auðvitað gerðu þau það,,, best að fara að brasa í því núna,,,,, síja
Dísa 16:03
þriðjudagur, október 29, 2002
já ég veit,,, ég er ekkert búin að skrifa núna í ógeðslega langan tíma,,, gersamlega að floppa hrikalega í bloggeríinu *Afsakið en er þetta orð Disa???*
annars er ekkert búið að vera að gerast hjá mér að undanförnu,,, er alltaf bara að nördast í skólanum og á ekkert líf,,,,, bara þetta venjulega *heheh* Eva systir og litli prinsinn hennar voru jú hérna hjá mér um helgina,,,, ég auðvitað veltist með þeim um allan bæ og gersamlega sleppti mér í fatainnkaupum *eheee*! jájá fátæki námsmaðurinn ég keypti mér fullt af fötum á laugardaginn og er núna að velta því fyrir mér hvernig ég eigi að fara að því að eiga e-ð að éta næsta mánuðinn,,,,,,!!!!!!!!!!!!!!!! En það er nú allt í lagi,,, ég bara lifi á núðlum,,,, þær kosta bara 19 krónur í Bónus,,,,,??? :-/
Dísa 09:21
miðvikudagur, október 23, 2002
jææææææjaaa,,, eheeee,, ekki búin að skrifa neitt núna i bara helling af dögum,,,
besta að byrja bara,,,, ég fór s,s á djammið á föstudaginn,, svaka djamm,, kom ekki heim fyrr en um 8 daginn eftir,,, hitti hellig af skemmtilegu fólki en líka alveg helling af glötuðu liði,,,,, Það stendur hreinlega ein spurning eftir þessa nótt; HVAÐ ER AÐ KARLMÖNNUM 'I REYKJAVÍK?????????? Hvað er eiginlega málið með alla þessa lúsera sem halda að þeir séu svo ómótstæðilegir að "ALLAR" konur hreinlega standist þá ekki????? Ég meina,,,,, þrír gaurar klipu mig í rassinn *%(&*, einn random gaur gekk upp af mér og bað um símanúmerið mitt alveg eins og ég ætti að vera súperdúper hamingjusöm með það að hann skildi vilja það og einn gaur var að reyna að hössla mig með því að urra *grrrrrrrr* framan í mig eins og tígristýr,,,,!!!!!!!!!!!!! og þá er ég sem sagt ekki einusinni að nefna glataða gaurinn í jakkafötunum og nikestrigaskónum og kynferðislega brenglaða stjórnmálafræðinginn,,,,,, fer sko ekki nánar út í það :-/
Enn og aftur segi ég,,, ég gifti mig sko pottþétt aldrei,,,, allir góðu gaurarnir *ef þeir eru þá til* eru teknir eða hreinlega skyldir mér,,,,
Dísa 11:27
föstudagur, október 18, 2002
hvernig væri nú að skella sér á djammið í kvöld??????? Væri það ekki bara sterkur leikur,,,,HA,,,, ég er nú ekki búin að fara neitt á djammið í 2 mánuði *ekki að djóka* þannig að það er kannski bara alveg orðið tímabært,,,,, Anna sæta og The princess eru að reyna að draga mig með sér e-ð og þó svo ég hafi nóg annað að gera þá er ég nú bara nokkuð heit fyrir essu!!!!!
Annars er ég bara alltaf uppi í skóla að reyna að vera gáfuleg,,, gengur nú ekkert of vel,,,,, er bara alger sauður,,,, svei mér þá
Dísa 11:06
miðvikudagur, október 16, 2002
þá er maður bara kominn í menninguna aftur,,,, svaka gaman að vera aftur komin upp í skóla *je ræt Dísa* og sit núna eins og dæmd fyrir framan tölvuna og er að byrja á einhverju bjánalegu verkefni í einhverju bjánalegu fagi,,,??!?!?!?
Ég kom í bæinn seint í gær og frétti þá af prófi morguninn eftir,,,, gersamlega ekki að nenna að læra svo að mín fór bara á rúntinn með henni Kibbu sætu og sló bara draslinu upp í kæruleysi,,,, Prófið var svo í morgun klukkan 8 og svei mér þá en mér gekk bara alveg ágætlega!!!!!!! Ég er sko svo mikið nörd að hugbúnaðarfræði kunnátta er hreinlega meðfæddur hæfileiki *hehehe*
Annars stefni á að eyða restinni af deginum hérna uppi í skóla e-ð að dóla mér og fara svo heim að horfa á nýjasta Friendsþáttinn sem ég er í augnablikinu að hlaða inn á vélina mína *vúhúúúú* kannski maður skelli sér í ræktina í millitíðinni,,,,,,,???? það er spurning,,,,,,,
Dísa 15:58
mánudagur, október 14, 2002
Ok veit ekki alveg hvað mér á að finnast,,, var að gera e-ð test sem ég fann á síðunni hennar Önnu sætu og fékk s,s þetta út::::::
You Are a Blowjob Queen!
You are a Blowjob Queen. That's right - you are a total blowjob master. You give the best blowjobs in town. In fact, you
could be considered a modern Linda Lovelace. Your reputation preceeds you, but that's okay. Men shower you with gifts to get close
to those lips.
,,,,,,,,,,,,,,,,,,*eheeeeee* kannski maður bara hætti í tölvunni og fari að snúa sér að því sem maður er virkilega góður í ghrrrrrrrr. En djö,,, er þetta nú ljót kona á þessari mynd,,, algerlega ekki að gera neitt fyrir mig,,
Dísa 16:55
jájájájá ég veit ég er ömurlegur bloggari,,,, ég hef bara verið svo hrikalega löt núna undanfarna daga,,,,, það er allt rigningunni að kenna,,,, búin að vera rigning hérna á Hornafirði í eina viku *án gríns* og ég er bara þannig að það fer algerlega eftir veðri í hvernig skapi ég er,,,,,, rigning & rok og snjór & rok = ég í vondu skapi !!?!?!? Þetta er einmitt aðal ástæðan fyrir því að ég ætla mér að flytja út til heitulandanna þegar ég klára skólann,,,,
blablabla nóg um veðrið,,, frekar ömurlegt umræðuefni Dísa,,,
ok,, ég var að vafra um netið núna áðan og rakst á e-ð drasl um söngvarann stórmerka Shaggy?!?!?! *vúhúúú* nei í alvörunni þá hef ég aldrei fílað hann en ég gat nú bara ekki annað en hlegið þegar ég sá nýjustu myndirnar af honum,,, ég held að Shaggy litla langi soldið að vera svona kúlisti eins og Lenny Kravitz,,,,!!!!!! Kíkiði bara HÉRNA hahahaha lúði maður,,,, alger lúði,,,,
Dísa 16:46
þriðjudagur, október 08, 2002
ohhhhhhhhh,,,, ekki alveg til í að fara að byrja aftur að læra,,,,, miðannarprófin og allt vesenið í kringum þau voru alveg nóg fyrir næstu vikurnar,,, en,,, núna er víst komin ný skólavika *jíbbí :-( * byrjaði reyndar í gær og ég er ekki að nenna neinu!!!!!
Hornafjörðurinn er að bjóða upp á gríðarleg skemmtilegheit,,, hellihellihelliirigningu og rok og beisiklí stórkostlega róleg tilvera!!?!? Guði sé lof fyrir SkáEinn því annars veit ég hreinlega ekki hvað ég myndi gera á kvöldin eftir að hún Birna Luna sofnar!!!!
- Svona talandi um SkáEinn,,,,, hefur einhver þarna úti verið svo afskyrnu óheppinn að hafa misst af því að horfa á þátt sem er verið að sýna þar og heitir The Bachelor ????????? Ég meina ok,,, þegar Temptetion Island kom þá hugsaði maður "Kræst hvað fólk er ruglað,,, að láta hafa sig út í svona viteysu" og hélt að þá væri maður sko búinn að sjá í botninn á slísí, bandarísku sjónvarpsefni!!! Enn neineineinei þessi þáttur toppar gersamlega allt,,,, við erum að tala um forljótan gaur sem fær í heimsendingu, pakka af 30 gellum sem hann testar fram og til baka þar til hann ákveður hverri þeirra hann langar til að giftast!!?!?!? Allar gellurnar eru náttúrulega yfirsig skotnar í þessum ömurlega gaur *alveg mega óaðlaðandi* sem þær eru að sjá í fyrsta skipti, og keppast við að hlæja að grautfúlum bröndurum hans og sýna meira af brjóstunum á sér en næsta gella til að verða nú sú heppna sem hann vill giftast!!??!?! Og svo er þetta allt með svona bjánalegu bandarísku yfirbragði,,, allir grenjandi alltaf og dramatíkin alveg að gera mann brjálaðan,,,,,,, ég meina það,,,, á þetta er maður svo að horfa,,,
Dísa 15:08
mánudagur, október 07, 2002
jæja,,,, kominn mánudagur eina ferðina enn,,,,, og ég er ennþá á Hornafirði!?!??! Jájájá lítur út fyrir að ég þurfi að vera hérna í eina viku í viðbót!! Ekki að mér finnist það e-ð leiðinlegt,,, spurning bara með hitt stórkostlega háskólanám mitt, hvort að það leyfi svona fjarveru :-( ókí,,, þýðir víst lítið að hugsa um það!!!
Annars er ég bara búin að hafa það fínt,,, búin að liggja í leti og gera ekki neitt yfir alla helgina *humm spennandi* Sætu vinkonur mínar voru e-ð að reyna að draga mig á ball á föstudaginn,, og ég hefði alveg verið til í að fara,,, en hún Birna mín hefði aldrei samþykkt að sleppa af mér hendinni þannig að,,, ég bara hringdi í Kibbu daginn eftir til að fá allar fréttirnar,, sem að sjálfsögðu voru hrikalegar!?!??!?!??!
Dísa 09:27
föstudagur, október 04, 2002
Loksins, loksins, loksins!!?!?!?!??!?! er búin í miðannarprófunum og er komin heim til elsku Hornafjarðar,,,*só vonderfúl* Ég og hún Kibba sæta lögðum af stað úr bænum í gær,, bara rétt eftir síðasta prófið mitt,,,, og keyrðum nánast nonstopp allaleiðina heim,, Að vísu þurftum við að stoppa aðeins þegar við vorum nærriðí búnar að keyra á risastórt naut *#$%#&* bara svona rétt til að komast aftur upp á veginn og ná andanum!! Hvað er eiginlega málið með það???? Einhver bjánaleg naut á veginum,,,,æ þessi íslenska þjóðvegamenning,,,,, alveg dæmigert!!!
Núna stefni ég hinsvegar á það að gera ekki neitt í allan dag,,,, og gera svo meira af ekki neinu á morgun og hinn :-) Æðislegt!!!! Get ekki beðið,,,,,,,
Dísa 12:15
þriðjudagur, október 01, 2002
þriðjudagur til allt þokkalega ömurlegt,,,,,,,,,,,,,, :-(
Miðannarprófin að gera útaf við mig og ég held bara að ég hafi elst um 10 ár frá því á föstudaginn síðasta??????? Fór í próf í gær í JAVA,,,,, gekk bara svona lala,,,,, fór svo í próf í dag í einhverju sem heitir víst Reiknirit og ég held bara að ég sé nokkuð örugg þegar ég segi að í fyrsta skipti á minni skólagöngu hef ég að fallið á prófi,,,,,,, er alveg með það á hreinu,,,, *arghhh* Prófið var það ömurlegt að meira að segja fólk sem hefur aldrei reykt kom út í reyk eftir að það kom út!!!!! ***PRÓF DAUÐANS***
trallalla,,, og núna er það bara næsta próf,,, á morgun,,,, ohhhhh ég á svoooo bágt
Dísa 18:36
|