mánudagur, maí 30, 2005

 
Vildi bara benda fólki að ég og fjölskyldan mín erum farin að blogga inni á hinu heimsfræga blog.central.is
Slóðin er http://blog.central.is/disaogbirna

miðvikudagur, febrúar 02, 2005

 
Verð bara að setja inn eina jólamynd,, alveg erum við voooðalega sætar



þriðjudagur, febrúar 01, 2005

 
Kominn febrúar og snjórinn bara farinn af götum borgarinnar. Mikið rosalega er ég nú sátt við það, ég hata snjó! Annars er ekkert að frétta af mér,, alltaf sama sagan,, er bara að vinna og komast í gegnum tilveruna hérna í R-víkinni. Daði er byrjaður í mastersnámi í gervigreind/net uppi í skóla og er mjög sáttur við það. Ég er búin að skipuleggja utanlandsferð fyrir næsta sumar svona rétt til þess að þola við hérna á Íslandi yfir veturinn. Er að spá í að fljúga til Grikklands og fara þaðan með lestum og rútum til Spánar þar sem við getum svo slappað af í húsi foreldra minna í einhvern tíma. S.s ferðalag með öllu.

fimmtudagur, desember 09, 2004

 

jæja,, bara nærri kominn mánuður síðan ég skrifaði síðast, góð frammistaða.
Hérna hjá okkur gengur hinsvegar allt bara mjög vel. Daði er kominn heim frá theUSA okkur Birnu Lunu til mikillar gleði. Við erum búin að ættleiða kisu sem heitir Bella og er svakalega sæt og fín eins og þið sjáið hérna að ofan.
Ég fór á jólahlaðborð með vinnufélögunum um síðustu helgi og var það alveg æðislega gaman. Ég er samt farin að hallast að því að best væri að djamma amk tvisvar sinnum í mánuði því í hvert einasta skipti sem ég fær mér í glas ( uþb 4-5 sinnum á ári ) verð ég ömurlega full og boring :-( ! Mér tókst t.d um helgina að brjóta nærri því fótinn af mér,,,, það ákveðna atriði kemur nú reyndar ekkert inn á það hvað ég var boring, en trúið mér bara,, það var af nægu að taka hvað það varðar líka!!!!!!

fimmtudagur, nóvember 18, 2004

 
Við erum auðvitað löngulöngu komin frá Spáni og það var massagaman og skemmtilegt. það var fínt veður alla dagana sem við vorum úti nema síðasta daginn,, en það var allt í lagi því þá var ekki jafn erfitt að fara heim aftur.
Núna er Daði hinsvegar farinn aftur til útlanda,, í þetta skiptið til USA og verður í 3 heilar vikur. Við Birna Lunasnúna erum þess vegna einar heima og vitum ekkert hvað við eigum af okkur að gera.

Ég er farin að æfa 3 sinnum í viku með einkaþjálfara ásamt Viktori og fleiri vinum hans. Það er rosalega gott að fá leiðsögn við lyftingarnar því þá getur maður verið algerlega heilalaus á meðan maður er að æfa og þjálfarinn bara segir manni hvar maður á að sitja og standa osfrv,, alveg frábært!!

Við á heimilinu erum að vinna í því að fá okkur kött,,, já vinna í því sagði ég því það er sko ekkert grín að fá sér kisu á Íslandi í dag,, allavegna ekki ef þú ætlar þér að fá hana í Kattholti þar sem allt er fullt af heimilislausum köttum. Þurfum allskyns leyfi og dótarí,,,???
jæja ætla að halda áfram að vinna,,, skrifa vonandi aftur á þessu ári,, samt aldrei að vita ef litið er til undanfarinna blogg-afreka :-/

þriðjudagur, október 26, 2004

 
Fékk stelpurnar mínar í heimsókn um daginn!
Tók þessa mynd fyrir hana Lilju mína sem er að spóka sig einhversstaðar á Svalbarða!

Þessa tók ég hinsvegar fyrir hana Hönnu mína sem komst ekki heldur því hún er í Hollandi!



þriðjudagur, október 12, 2004

 
Þá er það klárt,, við erum að fara til Spánar núna 28 nóv,,,,,, vííííí!
Ég, Daði, Birna Luna og pabbi ætlum að fara til þess að ganga frá málunum þarna úti og taka okkur smá frí í leiðinni!! Betra er seint en aldrei að fara í útskriftarferðina mína,,,, ég er að sjálfsögðu að farast ég hlakka svo til,,, þetta verður frábært!

Það er svo margt sem ég ætla mér að gera þarna úti, slappa af, liggja í leti, taka því rólega og svo margt fleira,, hehe
Komumst líklega ekki á neinn fótboltaleik núna,, en ætlum okkur að versla og kannski flækjast e-ð um,,

Annars er allt bara venjulegt,, ekkert sérstakt að gerast nema auðvitað er maður að bíða eftir því að verkfallið klárist svo litla prinsessan mín fari að koma aftur!!

Heyrðu jú,, ég fór til Árdísar um daginn og sá loksins litla fallega strákinn hennar.. Ég vissi hreinlega ekki hvaðan á mig stóð veðrið, hann var svo góður að það heyrðist ekki neitt í honum allan tímann sem ég var þarna, hann bara sat og fylgdist með okkur! Varð að vísu örlítið pirraður eftir svona klukkutíma en þá kom bara Ingó og náði í hann og þeir fóru að korfa á sjónvarpið!! Ekki alveg það sem ég vandist með mitt skaðræðisdýr í gamla daga,, hehe gamla daga!


mánudagur, október 04, 2004

 
Fór út að skemmta mér á föstudagskvöldið,, legg bara ekki meira á ykkur!
Fór á "hallæriskvöld" hjá M&M&M (MentorogMennogMýs) og þó svo ég segi sjálf frá þá tókst mér sko alveg að vera nokkuð hallærisleg þetta kvöld!!
Við erum að tala um karókí og línudans og kvöldið var bara hrein snilld!! Ég gerði mig auðvitað að fífli með því að drekka mig ofurölfi og syngja svo eins og bjáni í karóki afturogafturogaftur! Að sjálfsögðu ekki hægt að hætta þegar maður stendur á línunni,,,,,,, neinei maður verður alltaf að fara yfir línuna sko! en allavegna,,, ég gæti alveg sett mynd af mér hérna inn til að sýna hvað ég var frábær en mig langar það bara ekki,,, skrítið!?!?!?


þriðjudagur, september 28, 2004

 
djísös hvað ég er ekki að nenna að blogga núna,, nóg að frétta engu að síður
-Birna Luna í verkfalli og er heima á Hornafirði hjá m+p og við söknum alveg hrikalega
-Við erum búin að ferðast landshornanna á milli um hverja helgi núna í 2 mánuði :-/ alveg kominn tími á smá afslöppun.
-fór á tónleika með hljómsveitinni Blonde Redhead um síðustu helgi,, það var virkilega gaman og ekki síst fyrir tvær íslenskar hljómsveitir sem voru að spila þarna á undan
-Daði er á leiðinni til Bandaríkjanna að prufa einhvern nördaskóla í einn mánuð, og ég þarf að vera heima alllllllein á meðan
-Jón og Hrund eru farin að búa í Danmörku og Jónsi byrjaður að læra Véltæknifræði á dönsku

skrifa vonandi meira fljótlega


föstudagur, september 03, 2004

 
Hvaða vesen er þetta eiginlega,,, allt búið að vera í volli á síðunni minni núna undanfarna daga? Æ ég nenni ekki að spá i þetta drasl.

Fór í heimsókn til Ragnheiðar í gær og sá loksins litla prinsinn þeirra. Ætli öll börn í heiminum séu sérlega falleg? ætli manni finnist það bara alltaf? e-ð í eðlinu okkar að finnast bara öll börn óóóóótrúlega falleg?? Ég allavegna á ekki til orð yfir það hvað hann Sævar Rafn er fallegur,, svo mannalegur og með spékoppa (það er alltaf svo sætt) svo er hann með mikið hrokkið hár og meira að segja strípur í því!! Ragnheiður sjálf er auðvitað glæsileg að vanda og þau bara búin að búa rosalega vel um sig í nýju flottu íbúðinni þeirra.



þriðjudagur, ágúst 31, 2004

 

Æ ég er ekki að nenna þessu bloggrugli,, hef alveg nóg að gera þó svo ég sé ekki að eyða tíma í þetta rugl.

Birna Luna mín er byrjuð í skóla!!! Jújú litlalitla barnið mitt er komin í skóla fyrir stór börn,,,,,, böhö,,, ég á mjög bágt þessa dagana. Ég er auðvitað líka móðursjúkasta manneskja í heimi og á óskaplega erfitt með að hafa hana í skólanum og daggæslunni frá 8 til 5 á hverjum virkum degi. Skil ekki hvernig aðrar mömmur fara að þessu,,




þriðjudagur, ágúst 10, 2004

 
hvað koma eiginlega fyrir fína teljarann minn??? Hann er bara kominn niður í 10 eða e-ð. Kannski þetta verði þá til þess að maður fari að föndar sér nýja heimasíðu,, þessi er alvarlega farin að fara í taugarnar á mér!
En annars er ekkert að frétta. Er bara í vinnunni og geri ekki neitt frásögufærandi.
Er að vísu farin að kvíða allsvakalega fyrir því að senda litlu prinsessuna mína eina í stórubarnaskólann,, enginn leikskóli lengur,,, mér finnst þetta allt saman vera alveg hrikaleg tilhugsun.


föstudagur, júlí 30, 2004

 
Var að horfa á fréttir í gær og eftir að þeim lauk var ég hundfúl og pirruð út í það hvað sumt fólk heimsins *Íslendingar líka* er ömurlegt. 
Í fyrsta lagi þá var talað um mál konunnar sem var drepin af fyrrum sambýlismanni sínum,,,????  það er auðvitað bara viðbjóður,,, sá maður er einmitt dæmi um hið ömurlega í heiminum,, hann er ástæðan fyrir því að margir þora ekki að eignast börn inn í þennan heim! 
Í öðru lagi var talað um einhverja aumingja sem fóru inn í kirkjugarð í skjóli nætur til þess að eyðileggja leiði,, hvað er málið með það,,,,?????  úúúú rosalegir tappar,,, aldeilis búnir að sýna þeim í tvo heimana,,, ekkert smá kaldir gaurar/gellur!
Í þriðja lagi var verið að tala um þennan 20 manna draugahóp frakka sem verið er að leita að uppi á hálendinu,,, ég held að allir átti sig á því að um gabb er að ræða,,, en björgunarsveitir þurfa að leita áfram því brandarakallarnir eru ekki nógu kaldir til að láta vita að um gabb var að ræða,,, þó rosalega kaldir séu að gabba svona obboslega fyndið*DÖ*,,

-leiðinlegt að hljóma eins og gömul nöldurkerling en svei mér þá,,,,,,, kannski er maður bara orðinn svona gamall að láta svona atriði fara í taugarnar á sér,,,

 
jæja,, versló bara byrjuð og huuuuundleiðinlegt veður hérna í borg óttans!  Ég fer sennilega ekki neitt um helgina þar sem ég þarf að klára verkefni í vinnunni fyrir mánaðarlok og á helling eftir.
Fór til Akureyrar um síðustu helgi með Daða og Birnu Lunu til þess að Daði gæti nú sýnt okkur Akureyri og sýnt Akureyringum okkur!!???  Þetta var alveg yndisleg ferð og Akureyri er mun skemmtilegri bær heldur en ég hefði ímyndað mér,, hef ekki komið þangað síðan ég var 10 ára þannig að allt virkaði sem nýtt fyrir mér


mánudagur, júlí 19, 2004

 
Hérna aðeins fyrir okkur stelpurnar sem höldum alltaf að við séum "Of feitar"!??!
 
Vissir þú..... 
...að ef Barbie væri alvöru kona væri hún svo vansköpuð að hún yrði að ganga á fjórum fótum!!! 
 ....að ef gínur í búðum væru raunverulegar konur væru þær of grannar til þess að hafa blæðingar!!!
... að Marlyn Monroe notaði stærð 14 (ameríska) og hafði alla karlmenn í vasanum án þess að nokkur kvartaði yfir kílóunum á henni!!!
... að konur eru að meðaltali 65 kíló (ekki hávaxnar) og nota stærðir 12 til 14 (amerískar)!!!
... að ein af hverjum 4 konum á háskólaaldri þjáist af einhverskonar átröskun!!!
... að fyrirsæturnar í glanstímaritum og sjónvarpi eru lagaðar til í tölvu eða fiffaðar með lýsingu og ljósmyndatrikkum!!!
... að rannsóknir hafa sýnt að fimm mínútna lestur glanstímarita veldur þungu skapi, skömm og sektarkennd hjá um 70% kvenna!!!
... að fyrirsætur fyrir 20 árum voru 8% léttari en konur almennt!!!
... að fyrirsætur í dag eru 23% léttari en konur almennt!!!

-Best þessi með barbí,,,, hehehe





mánudagur, júlí 12, 2004

 
Haldiði ekki bara að hann Maurice Greene hafi verið að vinna 100 metrana enn eina ferðina,, ég hélt nú bara að hann væri búinn að vera,,, en neinei,, vonandi bara getur hann e-ð á ólympíuleikunum,, hann er svo ansi skemmtilegur að fylgjast með!

en að öðrum hlutum,,, við fórum út á Fossi um helgina og hittum þar foreldra mína og systkini mín! það var rosalega gaman og ómetanlegt að vera öll saman. Í gær var svo frábært veður og við lágum bara í sólbaði og urðum rauð í kinnum!

fimmtudagur, júlí 08, 2004

 
Að sjálfsögðu á maður ekki að tjá sig um fótbolta lengi eftirá þannig að ég ætla bara að sleppa því að tala um hinn ömurlega úrslitaleik á EM,,, bara alveg að sleppa því
Hinsvegar kom hann Jónsi bróðir í heimsókn til okkar í gær,, hann bara nýkominn af EM og miklu brúnni en bæði ég og Hrund samanlagt og þá er nú mikið sagt,, hahaha,,, nei smá djók en hann er allavegna rosalega brúnn,, og rosalega sáttur við allt þarna úti. Það var mjög gaman að sjá hann og skoða allar myndirnar hans frá Portúgal,, liggur bara við að mann langi til að fara einhvert út *DÖ*

Svo ég víki nú að einhverju öðru þá er ég nýbúin að flytja lögheimili okkar Birnu Lunu,, við erum sem sagt orðnar Kópavogsbúar,,, og Daði líka,, hann var ekki búinn að flytja sitt lögheimili þó svo hann sé búinn að búa þarna í 3 ár,, gerði það bara á sama tíma og ég færði okkar um daginn,, hann Daði er sko ekkert að stressa sig á hlutunum!

föstudagur, júlí 02, 2004

 
Hahahaha Grikkir bara unnu Tékka,,, ég meina maður er bara orðlaus,, mínir menn spila semsagt aftur við Grikki núna á laugardaginn í úrslitaleiknum,, og að sjálfsögðu vinna þeir í þetta skiptið,, fyndið, í fyrsta og síðasta leik keppninnar keppa sömu lið,, nokkuð spes

Já ætlaði að benda ykkur öllum á að fara inn á vaxtalinan.is og lesa blogg þeirra Jónsa bror og Boga Portúgalfara,, ég er að fá alveg feikilega mikið út úr því að lesa þessa pistla þeirra,, þeir eru að upplifa algert "moment in time" vera að vinna á EM í Portúgal þegar heimamann komast í úrslit og vinna fokk,,, keppnina (því það er að fara að gerast)!!?!?

fimmtudagur, júlí 01, 2004

 
Leikurinn í gær var glæsilegur og endaði nákvæmlega eins og ég reiknaði með! Portúgal á sko alveg skilið að fara í úrslit og ég hlakka bara til að sjá úrslitaleikinn!

Um síðustu helgi fórum við Daði heim til Hafnar til þess að ná í Elías og knúsa Birnu Lunu smávegis! Sú ferð gekk bara ljómandi vel og núna er ég aftur kominn á minn eigin bíl! Það er hriiiikalegur léttir,, ekki það að Danni sé e-ð lélegur bíll Daði minn :-/ ,,,, bara næs að komast aftur í ræktina án þess að þurfa að láta skutla mér og ná í mig og blablablabla!

Núna er Hátíð á Höfn að byrja,,, og ég er ekki alveg á svæðinu,,, nenni bara ekki að vera heima núna,, æ vil einbeita mér að því að koma mér almennilega inn í vinnuna,, er líka bara ekkert í neinu djammstuði,, frekar en venjulega

fimmtudagur, júní 24, 2004

 
Kominn 24 júní,, vá,, ég verð nú bara að segja að ég er mjög sátt við það að vera ekki að fara í skólann núna í haust, sumarið verður búið áður en maður veit af.
Ég er á kafi í nýju vinnunni minni og EM þessa dagana,, við Daðispaði gerum lítið annað en að vinna og horfa á fótbolta. Daði þykist halda með Frökkum en eins og áður segir þá held ég með Portúgal eftir að Spanjólarnir duttu út :-(
Er farin að bíða all-rosalega spennt eftir því að fá hann Elías minn aftur,, búin að sakna hans svakalega eftir að hann bilaði ( Elías == "bíllinn minn" ). Varahlutirnir komu loksins í morgun og núna er elsku bestasti pabbi í öllum heiminum að gera við hann! Það er svo gott að eiga besta pabba í heimi :-)





þriðjudagur, júní 22, 2004

 
Já,, gleymdi að bæta við,, ég held núna með Portúgal,,, er hætt að halda með Spánverjum út af augljósri ástæðu (uhumm)!!
 
Til Jónsa!
Var að enda við að lesa nýjustu postin ykkar,,, er að reyna að ná mér hérna,,, ég held ég geti verið nokkuð örugg þegar ég segi að þið eruð mest öfunduðu gaurar landsins í augnablikinu!!!

Carpe diem


föstudagur, júní 18, 2004

 
Þá er ég bara orðin tölvunarfræðingur!?? Geðveikt kúl að setja það í símaskránna maður,,, annars líður mér nú ekkert öðruvísi þó svo einkennilegt geti virst *DÖ* nei annars án gríns þá er ég s,s búin að útskrifast. Það gerðist bara um síðustu helgi,,
Dagurinn var mun skemmtilegri en ég þorði að vona,, fór upp í skóla klukkan 11 á laugardagsmorguninn og það var byrjað á myndatöku. Við vorum búin svo fljótt í myndatökunni að við höfðum alveg tíma til að fara út í Kringlu á Kringlukránna áður en generalprufan byrjaði. Athöfnin byrjaði svo kl 13 og allt skotgekk þannig að dagskráin var meira að segja á undan áætlun. Daði sæti er auðvitað klárastur af öllum og var dúxinn með tilheyrandi verðlaunum. Hérna er einmitt mynd af honum að taka við þeim,,, svona fólk sko,,,
Eftir athöfnina fórum við heim og familíurnar komu í heimsókn,, kl 19:30 um kvöldið fórum við svo á Lækjarbrekku öll saman að borða og sátum þar til klukkan 23:30,,
s.s,, hinn fínasti útskriftardagur!

föstudagur, júní 11, 2004

 
hallóhallóhalló,, mikið að ég læt í mér heyra! Best að hafa smá öpdeit snöggvast:
NÚMER 1 - Vinnan mín er frábær!! ég held bara að ég hefði ekki getað fengið betri vinnu. Allt í sambandi við fyrirtækið og verkefnið sem við erum að vinna er hreint út sagt snilld. Hlakka bara til að dafna í starfi hérna.
NÚMER 2 - Ég er að fara að útskrifast á morgun. Þó einkennilegt sé þá hlakka ég ekkert til og væri mun frekar til í að liggja heima og horfa á EM dagskrána,, já eða bara Bend It Like Beckham(var að ná í hana) ,, þó svo ég sé búin að sjá hana skrilljón sinnum. Þurfum að mæta klukkan 11 upp í skóla :-( í myndatöku,, sem sagt, í helgarfríinu mínu þarf ég að vakna eldsnemma til þess að dressa mig upp!!! Athöfnin sjálf byrjar svo kl 13 og er búin kl 15. Æ kannski er ég bara alger fýluskjóða en ég hlakka bara ekkert til!

En að öðru skemmtilegra,, eru ekki örugglega allir að fylgjast með honum Jónsa úti í Portúgal??? Fariði endilega HÉRNA inn og fylgist með,,,

fimmtudagur, júní 03, 2004

 
æ ég gleymdi að segja : Takk innilega þið æðislegu konur sem eruð svona duglegar að skrifa í gestabókina mína,,, þarf að fara að venja mig á það að sinna vinum mínum betur,,,
já svo líka auðvitað kveðja til Jónsapónsa litlabróður sem er einhversstaðar í Portúgal að fara að vinna með öllum hinum fótboltasnillingunum á EM,,, neinei,, það er örugglega enginn sem öfundar hann núna,,
 
Tja,,, margt hefur sko gerst frá því síðast. Ég er s.s búin í skólanum, (útskriftin er 12 júní) byrjuð að vinna á frábærum stað,, búin að lenda í umferðaróhappi á Elíasi mínum og er því bíllaus hérna í borginni,, búin að fá mér VISA-kort, sem er auðvitað frásögu færandi og forsetinn skrifaði ekki undir!!!!!!!!!!!
Þetta er bara allt of mikið á svona stuttum tíma,,,

þriðjudagur, maí 18, 2004

 
Endapunkturinn verður settur yfir BS verkefnið mitt á morgun. Klukkan 12:40 verð ég skjálfandi úr stressi uppi í skóla (í háhæluðum skóm og "svakakjól") að fara að kynna verkefnið okkar fyrir þeim sem mæta á sýninguna,,,, vonandi bara mætir enginn,, erum núna að gera kynninguna,,, algert krapp

Ég fer svo heim til Hafnar á morgun,, bara strax og kynningin er búin og ég búin að fara út í bóksölu og kaupa mér enn eina tölvunördabókina,, það verður æðislegt að koma heim,, get varla beðið
 
Endapunkturinn verður settur yfir BS verkefnið mitt á morgun. Klukkan 12:40 verð ég skjálfandi úr stressi uppi í skóla (í háhæluðum skóm og "svakakjól") að fara að kynna verkefnið okkar fyrir þeim sem mæta á sýninguna,,,, vonandi bara mætir enginn,, erum núna að gera kynninguna,,, algert krapp

Ég fer svo heim til Hafnar á morgun,, bara strax og kynningin er búin og ég búin að fara út í bóksölu og kaupa mér enn eina tölvunördabókina,, það verður æðislegt að koma heim,, get varla beðið

miðvikudagur, maí 12, 2004

 
jæja,, vitiði bara hvað???? nei hélt ekki,,, ég er bara komin með vinnu!!!!
jessogjá hihihihih,,, alveg að farast úr spenningi,, fyrirtækið heitir Mentor og mér líst hrikalega vel á þetta allt saman,, get ekki beðið eftir því að byrja,,, *ÍKS*

mánudagur, maí 10, 2004

 
ok,, kominn maí númer e-ð skrilljón,,, og ég bara alveg að verða búin með skólann,,, bara 3 dagar í lokaskilin á BS verkefninu og þá er maður bara orðinn tölvunarfræðingur! *vúúúú*
Verkefnið hefur gengið alveg vonum framar og hefur bara verið ansi skemmtilegt,,, verð nú samt rooooosalega sátt þegar þetta klárast.
Er núna farin á stúfana að leita að vinnu. Búin að fara í eitt atvinnuviðtal og er að bíða eftir svari frá þeim. Fer svo í annað viðtal núna á föstudaginn,, þetta er allt saman að verða mjög spennandi

mánudagur, maí 03, 2004

 
hef bara ekkert að segja,,, frekar en venjulega en vil þó bara benda á færsluna hennar Kollu frá því í morgun,,,,,,, endilega skoðið hana *hehehe*

laugardagur, apríl 03, 2004

 
djö,, hoppar sæti diskógaurinn minn,,,, algert krútt, hel ég kalli hann bara Bárð
en já að öðru og óskemmtilegra,,, ég er að fara í próf í fyrramálið,, próf í stærðfræðilegum reikniritum,, klokken 9 á morgun,, nú væri skó gott að vera bara svona diskóblobb eins og Bárður,,,,hummm

mánudagur, mars 29, 2004

 
Adopt your own useless blob!
Hahaha sá þetta líka æðislega gagnslausa fyrirbæri inni á síðunni hennar Steinunnar,, varð bara að fá mér einn svona,,, að sjálfsögðu fékk ég mér diskógaurinn,,,, hann er að rokka svo

þriðjudagur, mars 23, 2004

 
æ hvað ég er ekki að nenna að skrifa þessa dagana. Er bara á fullu í skólanum og veit varla hvað ég heiti lengur. Núna í vikunni þarf ég að skila 2 stórum verkefnum sem ég er ekki byrjuð á og svo að sjálfsögðu þarf maður að hafa tíma til þess að vinna í lokaverkefninu líka!
Lokaprófin byrja svo bara eftir 1 viku rúma :-( og ég á óóóóóógeðslega mikið eftir að læra fyrir stærðfræðileg reiknirit. Kann bara ekki neitt í því fagi,,,,, gaman að segja frá því eða þannig *DÖ*!!

mánudagur, mars 15, 2004

 
Ég er svo reið út af þessu ljótaljóta máli á Spáni,, núna í morgun er 201 dáinn eftir þessar óskiljanlegu aðgerðir! Það er líka búið að handtaka 5 gaura á Spáni, Maroccobúa og Indverja,,, það er nú einmitt það sem norður-Afríkuættaðir á Spáni þurfa á að halda,, að vera aðeins meira hataðir þarna úti,, sennilega er það sama sagan með Indverja á Spáni,,, annars veit ég ekkert um það!
Æ ég nenni ekki að tala um þetta meira,, er hið versta mál.

fimmtudagur, mars 11, 2004

 
Hún Ragnheiður vinkona mín er búin að eignast strák!! Ég hlakka ekkert smá til að fara að heimsækja þau Rúnar og sjá litla krílið,, Keli hlýtur að vera ánægður að fá strák,, kannski hann verði bara skýrður Keli??? Aldrei að vita!

miðvikudagur, mars 03, 2004

 
ÉG Á AFMÆLI Í DAG,,,, vibbí,,, er bara orðin 27 ára! Það er sko góð tilfinning,, ég er s.s óðfluga að nálgast það að verða fullorðin,, kannski svona 10 ár í viðbót,, ja eða 15,, hehe sumir eru soldið meira slow en aðrir!!
Það er líka ekkert smá æðislegt að kíkja á síðuna mína í dag og sjá kveðjur inni í gestabókinni minni,, Jónsi bror en náttúrulega bara besti bróðir í heimi,,, ber þann titil ásamt þeim Aðalsteini og Hrafni,,, Jón er nú samt með forskot í augnablikinu þar sem hinir 2 eru ekki ennþá búnir að óska mér til hamingju með daginn!!
Hann Ingólfur er líka alger perla að muna þetta,, Ingólfur takk fyrir kveðjuna,, það er alltaf gaman að heyra frá þér,, haltu bara áfram að vera svona sætur og góður strákur!

þriðjudagur, febrúar 24, 2004

 
komin aftur í bæinn,, fór heim og hélt afmæli fyrir prinsessuna mína,, eða þ.e.a.s mamma hélt afmælið, ég bara hjálpaði henni við að taka til og svona,, mamma er svo mikil ofurkona *ólíkt mér :-( *
Núna er ég komin aftur í Shell-ið góða og hef það bara fínt,,, er að dánlóda lögum með Soundgarden því allt í einu mundi ég eftir því að þeir voru hrikalega góðir,, og svei mér ef þeir hafa bara ekki orðið betri með tímanum,,,


fimmtudagur, febrúar 19, 2004

 
Í dag fer ég heim til Hafnar,,, Birna Lunasnúna á afmæli á laugardaginn og að sjálfsögðu lætur maður sig ekki vanta. Fer bara að leggja af stað hvað úr hverju,,,
Shellið rokkar feitt núna sem fyrr og ég er að spá í að færa bara lögheimilið hingað,,, HÉRNA eru einmitt myndir sem hún Sigrúnsæta tók af aðstöðunni okkar,,,, Sigrúnsæta er sko í hinum hópnum sem er að vinna verkefni fyrir Skeljung,,,


þriðjudagur, febrúar 17, 2004

 
æ vá,,, ég er sko alveg glötuð í þessu bloggdrasli,,,, hef svo sem ekki frá neinu að segja,, verkefnið gengur bara vel og allt í djollí með það.
jú að vísu,,, við vinkonurnar fórum í vísindaferð síðastliðinn fimmtudag upp í Landsbanka,, sátum og hlustuðum á afskaplega spennandi fyrirlestur um greiðslukort og hreinlega duttum svo ofaní áfengisglösin sem okkur var boðið uppá þar á eftir!?!? eheee já,, einmitt,, við urðum allar ansi hressar bara,,,
Úr landsbankanum fórum við svo á einhvern stað þar sem var í gangi alveg einstaklega leiðinleg kosningavaka og af því hún var svo leiðinleg þá auðvitað urðum við að drekka aðeins meir,,, */#!”$%*
Allavegna ,,, þetta var bara ansi skemmtilegt kvöld,,, þó svo dagurinn á eftir hafi ekki verið neitt skemmtilegur,, hehe


þriðjudagur, febrúar 03, 2004

 
Þessi árstími finnst mér leiðinlegur,,,, ég þoli ekki svona mikinn kulda,, 10 stiga frost,,, ojbara.
ég kemst varla undan sængunum mínum tveimur og út úr rúminu,,,,
Annars er bara allt að ganga þennan venjulega vanagang,,, skólinn og ræktin og tv-ið, ræktin og skólinn og tv-ið,,,,, beisiklí,,, á mér ekkert líf.
ég er mikið farin að spá í hvað ég eigi að gera núna í vor eftir að ég útskrifast,,, það eru svo margir möguleikar að ég er alveg að spila út
-halda áfram í námi (t.d framhaldsnám í upplýsingatækni eða tölvuverkfræði)
-reyna að finna vinnu hérna í Reykjavík
-fara heim á Höfn, finna mér vinnu þar, búa hjá mom+dad og safna mér pening
-fara til útlanda og finna mér vinnu þar
s.s veit ekki meir

laugardagur, janúar 24, 2004

 
Núna er ég komin á fullt í lokaverkefninu mínu. Veit ekki hvort ég sé búin að segja frá því áður en við erum 4 stelpur saman í hóp, ég Kolla, Ester og Sigga, og við erum að vinna verkefni fyrir Shell!!!!! Fengum aðstöðu uppi á Suðurlandsbraut,,, einhverja nokkur hundruð fermetra, þar sem við erum búnar að koma okkur bara vel fyrir.

föstudagur, janúar 09, 2004

 
Ég fer til R-víkur á morgun,,, er reyndar ekki byrjuð að pakka ennþá,,, ég hef gert þetta svo oft að það tekur mig svona u.þ.b 30 mín að pakka öllu draslinu mína fyrir flutninginn,,,, ég er sko ekki farin að hlakka til en hún Birna mín, sem ætlar að koma með mér og vera í nokkra daga er alveg að tapa sér í spenningi!!!!!

Ég er búin að vera rooooosalega upptekin núna undanfarna daga við að redda mér bíómyndum fyrir nýja DVD spilarann minn. Er búin að dánlóda af netinu,, fá lánað hjá vinum og ættingjum og láta Hrafn bróðir fá lánað hjá sínum megatölvunördavinum!!! Vesenið er bara að fíni 5000kr spilarinn minn spilar ekki .AVI fæla þannig að ég er búin að setja upp allskonar forrit til þess að converta fælum úr .AVI yfir í .MPEG!!! Búin að prufa skrilljón forrit og fann loksins eitt sem virkar bara andsk,, vel!!

fimmtudagur, janúar 08, 2004

 
Skólinn minn byrjaði í gær,,, núna einmitt í augnablikinu er ég að missa af tíma í stærðfræðilegum reikniritum og er þess vegna strax á fyrstu dögunum farin að dragast afturúr,,,, ekki gott!?!?!
Í nótt kláraði ég að lesa síðustu jólabókina mína,,,, það var bókin "Gleymið að þið áttuð dóttur" um Söndru Gregory sem handtekin var í Tælandi fyrir eiturlyfjasmygl,,,, þó nokkuð góð bara,, samt ekki nærri því jafn góð og Eldraunin eftir Béatrice Saubin,,, mæli frekar með henni!! Tvær bækur um mjög svipað efni en Eldraunin var bara einhvernveginn trúverðugri saga í alla staði,, ég er ekki viss um nokkur atriði í hinni bókinni,,,



þriðjudagur, janúar 06, 2004

 
Gleðilegt nýtt ár og allt það!!! Eru ekki bara allir hressir á nýja árinu?? jújú auðvitað.
Núna er ég að fara að flytja aftur til Reykjavíkur,,, sennilega bara um helgina,, er að fara að klára skólann loksins *heheh* Er hætt að smúla flökunarvélar úti í Skinney og djö,, er nú gott að þurfa ekki að gera það oftar,,,
Annars er lítið að frétta af mér,, jólin voru æðisleg og ég hef algerlega notið þess að vera heima og liggja í leti,,,

laugardagur, desember 27, 2003

 
Gleðileg jól öll sömul


mánudagur, desember 15, 2003

 
Það er bara alltaf e-ð vesen með þennan blogger,,,, ég skrifa inn en það hverfur bara þegar ég reyni að posta því,,, 2 dögum seinna kemur svo postið eins og bjáni inn á síðuna mína,,,, bjánalegi blogger!!!
Jæja nenni ekki að tuða yfir því,,,,
Hef verið úti um allt að leita mér að kjól til að nota um jólin,,, mín ætlar sér sko að vera flott um jólin og langar í kjól!! Hef nú samt ekki rekist á neinn sem ég er hrifin af,,, fór í flestar líklegar búðir í Smáralindinni og Kringlunni um daginn,,, hef svo verið að skoða saumablöð því að sjálfsögðu þykist ég vera nógu hæfileikarík til að getað saumað mér flottan kjól!!!! Finn samt bara ekki neitt,,, ég skil líka ekki málið með svört föt á Íslandi,,, allir kjólarnir sem ég sá og voru fínir í sniðinu voru svartir,,!?? Ég bara kaupi mér ekki svartan kjól fyrir jólin,,,, langar helst í gulllitaðan eða e-ð glimmerdrasl,,, ég er svo mikið rednekk í mér :-)

sunnudagur, desember 14, 2003

 
Muse er offisíallí uppáhalds hljómsveitin mín!!! Þeir eru stórkostlegir!!! Tónleikarnir voru algerlega magnaðir,,,,, ég stóð bókstaflega á öndinni allan tímann og þegar þeir voru búnir fannst mér eins og þeir væru bara ný byrjaðir!!! Þeir tóku mest af lögunum á nýju plötunni en svo líka slatta af vinsælustu eldri lögunum. Ég var hreinlega í vímu þegar þeir spiluðu Plug In Baby,,,, ég elska það lag,,,, ég saknaði þó laga sem þeir spiluðu ekki eins og Cave, Showbiz og In You're World,,,, en allinall var þetta frábært,,, ég er bara ný manneskja,,,,, getið kallað mig Sigríði núna *DÖ*

mánudagur, desember 08, 2003

 
æ vá,,, ég er ekki að nenna að skrifa þessa dagana,,,, ekki það að ég hafi ekki frá neinu að segja,,, neineinei,,, líf mitt er stórkostlega viðburðarríkt um þessar mundir,,, gæti sagt ykkur stórskemmtilegar sögur af síldarvélum og færiböndum og slori dag hvern,,,, alltaf e-ð nýtt og skemmtilegt,,, :-(

þriðjudagur, nóvember 25, 2003

 
þá er ég bara búin í prófum,,, kláraði í gær og get því núna farið að baka og föndra fyrir jólin með henni Birnu Lunusnúnu,,, í fyrsta skipti frá því litla prinsessan mín fæddist get ég farið með henni á jólaballið í leikskólanum,, bakað með henni jólakökurnar og dundað mér með henni!! Hef alltaf verið í prófum eða verkefnavinnu í desember þannig að ég hef aldrei getað notið jólaundirbúningsins með henni,,, hún er alveg að snappa hún hlakkar svo til jólanna!!
Ok að öðrum málum,,, ég er að fara á Muse 10 desember,,, hann snillingur Hlynur reddaði þessu fyrir mig og keypti fyrir mig miðana í Smáralindinni,, alltaf reddar hann öllu þessi elska,,

þriðjudagur, nóvember 11, 2003

 
Í dag er ég rooooosalega þreytt,,, ég var að vinna í gær langt fram á nótt og er bara gersamlega búin á'ðí,,, eins gott að það fari að koma frídagur,,, annars fer að líða að því að ég segi einhverjum að moka einhverju,,,, alveg bún að fá nóg!!!
En að skemmtilegri hlutum,,,, "MUSE ERU AÐ KOMA TIL ÍSLANDS"!!!!!!! vúúúhhhhhúúúú,, það sem ég ætla sko að mæta,,, Muse eru einfaldlega besta hljómsveit í heimi og þessir tónleikar verða örugglega alveg frábærir!!!

föstudagur, nóvember 07, 2003

 
jæja,,, bara kominn nóvember númer ég veit ekki einusinni hvað,,, ég er búin að vera svo mikið að læra og vinna og vesenast að undanförnu að ég held ég sé að verða geðbiluð. Þessi vinna er líka gersamlega að fara með hendurnar á mér,,, ég er hreinlega með krónískan náladofa allan daginn 24-7,,,, hef líka ekki fengið neinn frídag frá því ég byrjaði,,, algerlega glatað :-(

Fer bara að líða að prófunum,,,, djö,, hlakka ég til 24. nóvember þegar þau verða búin,,,, þá verða sumir bara komnir í jólafrí *liggaliggalái*

fimmtudagur, október 23, 2003

 
ok,,, loksins hefur maður tíma til að setja þessar margumtöluðu myndir inn,, pikkaði út nokkrar góðar og peista þeim hingað inn!
Annars gengur allt bara ágætlega,, nóg að gera í vinnunni og maður á bara aldrei frí!!
Myndir frá Spáni
Húsið fína að framan ( við eigum 2 efstu hæðirnar)
Jónsi og Hrund *kjútípæs*
Ég og útsýnið af svölunum
Aðal skvísurnar á ströndinni
,,,,, og aftur
verið að spila einhverskonar strandbadminton
,,,,,og aftur
Tennisvöllurinn er líka alveg magnaður
Ég er að sjálfsögðu rosagóð í tennis
Jón slær í gegn í karókí
Ég og pabbi í Murcia
Allir úti að borða
Flottustu feðgarnir,,, Jónsi og pabbi
og við erum auðvitað flottastar líka
Í Valencía að bíða eftir að leikurinn byrji
Mestalla leikvöllur í Valencía
Real Madrid að hita upp
Leikurinn byrjaður,, Beckham tekur innkast
og Valencía skorar
Pablo Aimar áður en hann meiddist og þurfti að fara útaf
Beckham tekur horn
,,, nokkuð flottur bara *hehe*
,,,,, ;-)
en Valencía skorar aftur
Figo ekki sáttur

föstudagur, október 17, 2003

 
Já hvað í ósköpunum hefur eiginlega orðið um mig?????
Æ það er alltaf bara sama vesenið á manni,, ég er auðvitað bara búin að flytja einusinni enn,,!?!? Hún litla prinsessan mín var ekki alveg að höndla það að hafa mig alltaf í R-vík svo að ég ákvað að fara heim á Hornafjörð og vera í fjarnámi út þessa önn. Ég er hvort eð er bara í 2 fögum þar sem ég fékk svo mikið metið úr HÍ og vil endilega nota tækifærið og eyða eins miklum tíma og mögulegt er með prinsessunni minni.
Ég er búin að koma mér fyrir hérna heima í litlu íbúðinni minni og er farin að vinna á kvöldin við að spúla flökunarvélar og drasl úti í Skinney!!!! Akkúrat vinnan fyrir mig,, ég er svo mikill sjómaður í mér ennþá að ég er lang hrifnust af vinnu þar sem hægt er að hamast eins og vitlaus þar til allt er búið og fara svo heim í gott bað :-)

Já hei,, ég á eftir að setja inn myndir frá því á Spáni,,,, best að gera það einhverntíma við tækifæri

fimmtudagur, október 02, 2003

 
Jæja.,,, þá er maður kominn aftur upp á klakann,,,, kom í morgun :( neinei það er svosem fínt,,, nóg að gera fyrir tölvunarfræðinga úti á Spáni þannig að ég er strax farin að undirbúa flutning næsta vor eftir útskrift,,,,,, ég gerði svo mikið skemmtilegt þarna úti að það tekur mig alveg megatíma að telja það allt upp,,, núna nenni ég hinsvegar ekki að fara út í þetta all saman þannig að ég ætla bara að segja að::::
ÉG FÓR Á VALENCIA REAL MADRID UM SÍÐUSTU HELGI,,,,,,!!!
það var megakúl,,, bara Beckham, Pablo Aimar og roberto Carlos og Ronaldo og Figo og ég veit ekki hvað og hvað,,,, svo vorum við líka í sætum rétt við völlinn þannig að ég fékk bara svitannn yfir mig,, ekki búin að baða mig síðan *heheeh* smá djók,,,
Núna er ég líka orðin fótboltabulla,,,, held með Valencia af því Pablo Aimar er svo sætur :-) *DÖ*
þegar ég flyt út ætla ég sko að stunda leikina í Valencia,,, bara 2 kltíma akstur frá La Mata þar sem við eigum húsið góða,,,,,,
jæja ,, blaðra meira seinna
Hasta la vista, beibí

sunnudagur, september 21, 2003

 
saelt veri folkid,,, eg er bara herna a spani i 30+ hita og ekki buna ad gera annad en ad spila tennis og liggja i solbadi. Husid hans pabba er algerlega ad fara fram ur bjortustu vonum,,, tad er alveg frabaert,, 2 haedir med 3 svefnherbergjum, 2x wc allt fullbuid af husgognum og rafmagnstaekjum,, ollu sem tarf og meira til meira ad segja,, vindsaengur og solarbekkir og buggybretti***!*!*!
Sundlaugin er aedi og strondin er bara 5 min labb fra husinu,,, rosalega flott strond,,, eg komst lika ad tvi ad rolling stones eiga ad vera med tonleika a benidorm naesta fimmtudag og tad er vist longu uppselt en logfraedingurinn okkar herna uti *nakvaemlegä* getur reddad okkur midum *hehehe* eg er bara alveg i skyjunum og langar ekki vitund ad koma heim,,, :(
laet heyra i mer aftur fljotlega,,, Kv Disaskvisa

miðvikudagur, september 17, 2003

 
Jæja,, ég er víst á leiðinni til Spánar,,, bara í fyrramálið,??!?!?! Djö er maður lélegur e-ð,, ég er bara ekkert búin að spá í þetta,,, þarf að fara núna heim og byrja að pakka niður og gera einhver ljót heimadæmi sem ég á að skila á morgun,,, úff,, og einmitt í augnablikinu er að ekki að nenna neinu,,,, og einmitt law&order í tv-inu í kvöld,,, þá nenni ég sko ekki að vera að læra eða að pakka niður,,,

mánudagur, september 15, 2003

 
Núna er orðið svo voðalega mikið sekjúrití hérna uppi í skóla að ég get ekki einusinni geymt lengur bloggið mitt inni á skólavefsvæðinu og bloggað á blogger.com,,, þarf að geyma draslið inni á blogger og fæ þess vegna þessa skemmtilegu bláu auglýsingamynd efst á blogggluggann minn,,,, alls ekki kúl,, þyrfti kannski að fara að þykjast kunna e-ð í forritun og koma mér upp mínu eigin bloggi,,, jújú einhverntíma nenni ég því kannski *DÖ*
Okí en annars,, svei mér þá ef ég er ekki að fara til Spánar núna á fimmtudaginn????? Ég held það allavegana,,,, þyrfti kannski að fara að leita að vegabréfinu mínu,, og bíddubíddu,, gjaldeyrir,,, þarf maður það e-ð lengur?? æ vá,,, ég er nú meiri bjáninn,, alltaf allt á síðustu stundu

miðvikudagur, september 10, 2003

 
veiveivei,,,,, fékk 15 einingar metnar úr HÍ,,, þarf s,s ekki að viðskiptafræðinördast neitt frekar en ég vil þessa önnina!!!!
Er ekki alveg með það á hreinu samt hvað ég á að gera,,, fara að vinna og taka bara 2 fög eða þá taka viðskiptafræðina bara líka og verða þess vegna ómetanlegur starfskraftur þegar ég útskrifast!!!!!!??????
Þetta er allt saman voðalega flókið e-ð þegar maður nennir ekki að hugsa,,,,
Ég fékk svo sæta kveðju inn á gestabókina mína,,, takk Ingólfur ;-)
,,, og svo sjálfur Nelson Manndeli maður,,,, það er rosalegt,,, fá kveðju frá honum inn á gestabókina sína,,,,,, Ha Jerry !!!! ;-)

mánudagur, september 08, 2003

 
Núna er bara skólinn kominn á fullt og allt alveg að fara með mann. Ég fór heim á Höfn yfir helgina svona rétt til að sjá hana Birnu mína,,, að sjálfsögðu lærði ég ekki neitt og þarf þess vegna núna að vera extra dugleg *je ræt!!!*
Ég er alls ekki að rokka neitt rosalega feitt í viðskiptafræði kúrsunum sem ég skráði mig í og er þess vegna að vonast til þess að fá metið frá því ég var í hjúkkunni,,,,, sótti um að fá bara e-ð metið,, hvað sem er,,, einn kúrs eða tvo,, mér er alveg sama svo lengi sem ég slepp við e-ð af þessu drasli núna.
Best að fara að gera e-ð af viti,,,,, bæó

þriðjudagur, september 02, 2003

 
eheeee okí,,,, hef verið voðalega upptekin að undanförnu,, byrja í skólanum og svona,,, æ þið vitið hvernig það er,, maður er alltaf svo upptekinn e-ð,,
Ég er í fullt af skemmtilegum kúrsum þessa önnina *NOT*,, Er í tveimur fögum í viðskiptafræðideildinni, fjárhagsbókhaldi og markaðsfræði og ég er nú ekki að fýla það neitt rosalega,,,
Ég bý uppi í Árbæ í litlu herbergi niðri í kjallara og það er bara furðulega fínt,, er hæst ánægð með það.
Ég er líka farin að hlakka allsvakalega til Spánarferðarinnar,, bara rétt rúmar 2 vikur í það :-)


miðvikudagur, ágúst 20, 2003

 
sorry hvað ég er búin að vera löt að skrifa að undanförnu,,, er bara búin að vera að brasa við allt og ekki neitt þannig að ég hef varla kíkt á netið!!
Núna er ég að búa mig undir að flytja í bæinn aftur,, alltaf er maður að pakka niður og taka úr kössum,,, ég er orðin svo sjóuð í að flytja að ég geri eingöngu ráð fyrir 2 - 3 klst við að taka til draslið sem ég tek með mér,,,
Ég reikna með því að ég fari í bæinn á föstudaginn,, ætla að taka hana Birnu mína með og dunda mér smá með henni yfir helgina,, fara í húsdýragarðinn og sund og fleira sem henni finnst svo gaman

föstudagur, ágúst 15, 2003

 
Ég held að ég sé komin með herbergi í bænum,,,, einhverja hræódýra kjallaraholu uppi í Árbæ,,, æ mér er alveg sama þó svo það sé ekkert æðislega fínt,, ég hef nú áður búið við sorglega ömurlegar aðstæður,, t,d herbergið í veitingahúsinu sem við bjuggum í úti í Costa Rica,,, 4 gellur í pínulitlu herbergi,, veggirnir fullir af rottum og kakkalökkum sem voru alltaf að skríða yfir okkur þegar við vorum sofandi,,,, það var líka alltaf 50 stiga hiti inni í herberginu því það var einmitt við hliðina á eldhúsinu þar sem djúpsteikningar á öllum andskotanum fóru fram allan daginn!!! Djö,,, var það nú gaman,,

þriðjudagur, ágúst 12, 2003

 
Núna er ég hætt að vinna og nýt þess bara að gera ekki neitt!!!? Fór á bókasafnið í gær og tók 4 bækur sem ég ætla að dunda mér við að lesa á næstu dögum.
Ég er aðeins farin að leita eftir herbergi í bænum,,, mér sýnist vera af nægu að taka og er því ekkert að flýta mér of mikið :-)

sunnudagur, ágúst 10, 2003

 
Sunnudagur til sælu!!!
Bara kominn sunnudagur og ég að fara að vinna aftur á morgun,,,, það er nú samt allt í lagi því ég er hvort eð er að fara að slútta þessu rugli,,, held ég vinni morgundaginn og þriðjudaginn en svo ekki meir,,, vona allavegana að það verði ekki meira en það!!!
Fór til R-víkur á fimmtudaginn,, þurfti að fara til læknis,, og kom aftur heim á föstudaginn!! Frekar stuttur túr en nennti bara ekki að vera lengur. Skólinn líka að fara að byrja og þá fær maður nú fljótt leið á hinni miklu höfuðborg!
Er að spá í að drífa mig út í garðinn hans pabba að týna arfa,,, hef ekkert annað að gera,,, búin að taka til allt sem hægt er að taka til,, meira segja í bílnum mínum ogallt!!??!?

fimmtudagur, ágúst 07, 2003

 
Þá er það komið á hreint,, ég er að fara að hætta að vinna í næstu viku,, ég ætla ekki að reyna að segja ykkur hvað ég hlakka mikið til,,, þetta er svo hrikalega leiðinlegt að ég hef aldrei vitað annað eins! Pakka humri, gella, dæla bensíni og skúra,,, það eru leiðinlegustu störf sem ég hef verið í yfir æfina,,, þar til í sumar,,, starfið sem ég er í núna er verra en öll þau störf til samans,,, veit ekki hvað það er en ég verð "HRIKALEGA" fegin þegar ég hætti

miðvikudagur, ágúst 06, 2003

 
Jæja,,,, það er komin heil vika síðan ég hef skrifað,,, ég skal bara fara yfir það hvernig þessi vika hefur verið,,,
fimmtudagur og föstudagur == veik,, laugardaginn var ég að vinna á þessu blessaða Jöklasafni til klukkan 22 en þá stökk ég upp í bílinn minn og keyrði nonstop út á Foss þar sem mest öll fjölskyldan mín var saman komin!
Á sunnudaginn vaknaði ég við sólina inn um gluggann hjá mér og rauk út,,, veðrið var óaðfinnanlegt allan daginn og þessi sunnudagur var hreinlega einn besti dagur ársins,,, Ég og Eva systir fórum í fjallgöngu með þau Birnu Lunu og Ármann og skoðuðum hella sem liggja inni í sjáfarhömrunum rétt hjá Fossi. Þegar við komum niður aftur var komið hádegi og hitinn farinn upp í 27 stig. Ég hafði blessunarlega tekið með mér bikiníið mitt sem ég skellti mér í og fór ekki úr það sem eftir lifði dags. Um kvöldið fórum við svo með krakkana að veiða í fossinum og svei mér þá,, þau veiddu 2 fiska!!!!

Það var auðvitað mjög skrítið að vera á Fossi núna eftir að hann Siggi frændi dó,,, mér finnst mjög einkennilegt að allt dótið hans Sigga skuli ennþá vera þar sem það á að vera en hann hinsvegar hvergi sjáanlegur. Hann var svo alltof ungur til að deyja og það á örugglega eftir að taka sinn tíma að venjast þeirri staðreynd.

miðvikudagur, júlí 30, 2003

 
Klukkan orðin 15:45 og þessi vinnudagur alveg að verða búinn,,, núna ætti hún Stella mín að vera á leiðinni til Spánar ef hún er ekki bara komin út,,, ekki það að maður öfundist e-ð,,,, neinei ég væri sko ekki til í að vera úti á Spáni núna,, hver vill s,s liggja í sólbaði með ískalda pina colada,,,????
Best að fara að drífa sig heim,,,, ætla að fara í bað og liggja svo í leti,,, dettur bara ekkert skemmtilegra til hugar,,, svona áhugavert er nú lífið mitt gott fólk,,,,,, :-(

þriðjudagur, júlí 29, 2003

 
Í dag er alger bongóblíða hérna á Hornafirði,, sól og meira að segja logn líka, en slíkt gerist mjög sjaldan samtímis á þessu blessaða landsvæði!!! Þess vegna er alveg sérstaklega skemmtilegt *eða þannig* að vera að vinna hérna inni á skrifstofunni og mæla hús með reglustriku!!!
Ég reyni bara að leiða hugann að utanlandsferðinni sem ég er að skipuleggja í september,,, ætla að fara út 18. sept og vera í tvær vikur. Jónsi bróðir og Hrund ætla að fara líka og við ætlum að gista í nýju villunni hans pabba :-)
Jónsi er búinn að komast að því að Real Madrid og Valencia eru að fara að keppa í Valencia einmitt á þessu tímabili og hann ætlar að reyna að ná í miða fyrir okkur þrjú,,, hversu kúl væri það nú??? Jafnvel þó svo ég hafi nær engan áhuga á fótbolta þá væri ég til í að fara og sjá stjörnuliðið frá Madrid,,,,

mánudagur, júlí 28, 2003

 
Dagurinn í dag ætlar sennilega að verða ágætur,,, allt útllit fyrir það,,, engu að síður er ég ekkert í góðu skapi,,, er eiginlega bara í frekar vondu skapi,,, hef ekki hugmynd af hverju, er bara með einhvern hnút í maganum sem er að hrella mig!! Ég þoli ekki þegar svoleiðis er :-(

föstudagur, júlí 25, 2003

 
Ég er búin að vera á milljón í allan morgun,,, búin að þurfa að hendast hingað og þangað og hef varla verið neitt hérna uppi í vinnu.
Föstudagur í dag,,,,, og þess vegna mun skemmtilegra að vera til heldur en ef það væri t,d mánudagur! Í augnablikinu er líka hætt að rigna þannig að allt er bara að ganga upp,,,,,,????
Annars rakst ég á mjög áhugaverða síðu í gær >HÉRNA<. Þarna getur maður lesið auglýsingar bandarískra fanga sem vilja eignast pennavini á meðan þeir sitja inni. Maður getur meira að segja valið að fá bara auglýsingar þeirra fanga sem eru "On Death Row" eða sitja inni með "Life Sentence"!!! Ekki það að mig vanti einhvern snarruglaðan pannavin,,,, maður er bara að drepast úr forvitni um ókunnugt fólk eins og flestir Íslendingar *heheh*

miðvikudagur, júlí 23, 2003

 
Var að fatta það að ég hef eiginlega ekki sett neinar myndir hérna inn eftir að ég fékk nýju myndavélina,,,, ætla að bæta úr því snöggvast
Ég og Birnasæta að fara að sofa
Sveitin mín fallega
Fjölskyldan mín
Ég að gefa lambi
Kibba
Birna í Dverghömrum
Ég með sólgleraugu
Kind
Helga, Hanna og ég
 
Vitiði bara hvað,,,????? Hann pabbi minn er búinn að kaupa sér hús á Spáni,;;;!!!! Ég fann hús fyrir hann um daginn sem er svo bara búið að kaupa núna,,,, Þetta er tveggjahæða raðhús með 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, sundlaug, tennisvelli, 2 risastórum svölum og 5 mín frá ströndinni á La Mata *rétt hjá Torrevieja í Alicante*. Það fylgja meira að segja öll húsgögn og rafmagnstæki með,,,,
Ég er svo heppin að eiga vinkonu úti í Torrevieja sem er einmitt fasteignasali og hún fór að skoða húsið fyrir mig,,, *sem hún segir að sé í toppstandi* og reddaði okkur svo lögfræðingi þarna úti sem sér um allt draslið fyrir okkur!!! Þú ert sko alger reddari Helga,,,
Við tökum ekki við lyklunum fyrr en í september og ætli mín neyðist ekki til að fara þá til Spánar,,,*heheh*

Ég er svo ánægð fyrir hönd pabba míns,,, hann á þetta sannarlega skilið,, duglegasti maður í heimi sem vinnur frá 7:30 til 19:00 á hverjum degi,,,

þriðjudagur, júlí 22, 2003

 
Núna er víst að verða mjög stutt í Verslunarmannahelgina. Ég vona að ég verði í fríi því þá ætla ég að fara og róta í beðum í garðinum hennar ömmu í sveitinni :-) ÁN GRÍNS!!!!!! Æ það verður bara notarlegt,,,, þið eigið öll eftir að öfunda mig þegar ég verð stálslegin og óþunn í vikunni á eftir.
Ég tými bara ekki að vera að eyða peningunum í e-ð mikið ferðalag,,, ætla frekar að eyða þeim í flugmiða til útlanda í haust *ekki alveg komið á hreint ennþá en ég "skal" fara e-ð*,,,,

mánudagur, júlí 21, 2003

 
Mikið voðalega finnst mér stutt þar til skólinn byrjar aftur. Skólasetningin í HR er 21.ágúst en ég býst s,s ekki við því að ég fara á hana frekar en aðrar skólasetningar yfir æfina!!!!
Núna neyðist ég víst til þess að fara að leita mér að húsnæði í R-vík enn eina ferðina *#&%!*,,,, algert pein,,, ég ætla að reyna að grafa upp ódýrasta herbergið sem til er á höfuðborgarsvæðinu,,,
Annars er ég eiginlega farin að hlakka til að komast aftur í skólann,,,, langar bara að klára þetta drasl svo ég geti farið að gera e-ð nýtt og skemmtilegt,,,, flytja til útlanda eða bara hvað sem er annað en að vera "fátækur námsmaður"!!!
 
Núna er kominn mánudagur og ég aftur mætt í vinnuna! Á föstudaginn fór ég í kistulagningu frænda míns og á laugardaginn í jarðarförina. Kistulagningin var án efa eitt erfiðasta sem ég hef um ævina gert og ég vona svo sannarlega að það sé langt í að ég fari aftur í slíka athöfn.
Í dag líður mér bara ágætlega og nú verður lífið víst að fara að ganga sinn vanagang aftur.

mánudagur, júlí 14, 2003

 
Hann Siggi, fallegi og góði frændi minn dó í síðustu viku!
Hann bjó í sveitinni minni, Foss á Síðu, og var uppáhalds frændi minn

þriðjudagur, júlí 08, 2003

 
þið ættuð bara að vita hvað ég hef verið að gera núna síðustu dagana,,,,,, ég er að leita að húsi á Spáni fyrir pabba minn að kaupa :-) :-) :-) Ég veit,,, hrikalega kúl,,, ég er búin að fara í gegnum milljón heimasíður fasteignasala á Spáni og búin að skoða milljón rosalega flott hús. Að sjálfsögðu er ég meira en lítið spennt því ég elska sól, hita, spænsku og bara allan pakkann!

mánudagur, júlí 07, 2003

 
Jæja,,,, kominn mánudagur! Humarhátið á Höfn var auðvitað um helgina og fullt að gerast hérna á Hornafirði!
Þar sem ég er að drepast úr heilsuátaki og sjálfsræktun *lúser* þá datt ég ekki neitt í það alla helgina! Ég fór nú samt út á bryggju á föstudaginn og var þar til kl 4 um nóttina í feiknarstuði og grænum jakka!?!!?
Á laugardeginum var ég hinsvegar að vinna og nennti ekki að fara edrú á 4000mannaball! Ég var þess vegna bara heima hjá mér eftir vinnu að horfa á e-ð hundfúlt í tv-inu!
Það var nú samt víst svakastuð hérna á Höfn og ótrúlegt en satt þá fór þetta bara alltsaman vel fram,,,,, ekkert hrikalegt sem ég hef heyrt allavegana,,,

miðvikudagur, júlí 02, 2003

 
böhöhööö,,,,,,,,,,, litla sæta öndin mín er dáin!!! Hún dó í gær sennilega út af næringarskorti. Hvernig átti ég að vita að greyið litla þyrfti að borða marflær til þess að lifa??? Allavegana,, hún er dáin og meira að segja búið að jarða hana úti í garði með mikilli athöfn *Birna Luna og Ármann litli jarðsungu*

mánudagur, júní 30, 2003

 
Sjáiði bara hvað öndin mín er sæt HÉRNA *var alveg búin að gleyma að setja inn mynd af henni/honum (hef ekki hugmynd)*,,,,,,, þetta er líka sætt
 
ÉG ÆTLA Á TÓNLEIKA MEÐ FOO FIGHTERS,,,,, hann Dave Grohl er náttúrulega bara alger snillingur og ekkert annað um það að segja,,, að mínu mati einn sá besti í bransanum
 
Hvað er eiginlega málið með það að enginn skuli vera búinn að óska mér til hamingju með að vera hætt að reykja??????? Aðeins of lítil athygli sko,,, ekki alveg að fíl'etta :-(
 
VelloVell,, fór til R-víkur um helgina,, það var bara fínt,, fór til að versla mér föt og fara með Birnu Lunu í tivolí,, það gekk allt saman vel og svei mér þá ef ég er ekki farin að hlakka bara til að komast í skólann í vetur!
Öndin mín er alltaf jafn krúttuleg og eldspræk,, spurning hvað við gerum við hana þegar hún verður stórstór önd :-/ ,,, hljótum að geta dóneitað hana í Húsdýragarðinn,,,, eða er það ekki??

föstudagur, júní 27, 2003

 
ok stelpur,, eru þið ekki örugglega allar búnar að sjá myndbandið við lagið "Like A Stone" með Audioslave????
Djö,, hefði mér ekki getað dottið til hugar að Chris Cornell gæti verið svona massaflottur,,,, hann er rosalegur í þessu myndbandi *grrr*



fimmtudagur, júní 26, 2003

 
alltof mikið code-security í þessu nýja bloggerdrasli,,, virkar vonandi svona
 
Hvaðð er aððððð,,,, engir ísl, stafir

KIBBA HELP
 
Já einmitt,, gæludýrið
Það hefur bæst við fjölskyldumeðlimur á Hólabraut 7,,,, ekki það að við værum ekki nógu mörg fyrir *8 stk með hundinum*,, núna býr líka önd á Hólabraut 7 !??!?!? Í alvöru,,, pabbi fann pínupínupínulítinn andarunga allan útataðan í olíu inni á gólfi hjá sér í vélsmiðjunni og hann gat auðvitað ekki annað en bjargað honum!
Hann kom með hann heim þar sem við Hrund böðuðum af honum mest alla olíuna (hringdum í dýraspítala og allt til að fá leiðbeiningar) og svo bjuggum við til hús handa honum með sundlaug og öllu!!
Við vorum alveg viss um að hann myndi drepast á fyrsta sólarhringnum en neineinei,,,,, hann er svoleiðis sprelllifandi,, hresstist upp úr öllu valdi og hleypur nú um allt hús.
ALGERT KRÚTT


miðvikudagur, júní 25, 2003

 
Ég sit hérna í vinnunni minni og horfi út um gluggann á þessa líka hrikalega skemmtilegu sumarþoku sem er búin að umvefja Hornafjörð undanfarinn mánuðinn eða svo :-(
Þessi þoka kemur sér alls ekki vel fyrir mig þar sem ég er þannig forrituð að mér líður eins og veðrið er hverju sinni,,,,, þess vegna einmitt ætla ég að flytja til heitulandanna þegar ég verð stór *DÖ*,,,,,,,, verð bara alltaf í sólskinsskapi!

Annars er ég búin að fá nýtt gæludýr,,,,,??? Segi frá því á eftir,,, verð að fara að gera e-ð,,,,

mánudagur, júní 23, 2003

 
Æ vitiði það að ég er lasin? Ömó,,!! Búin að vera eins og alger auli yfir alla helgina og er svo bara lasin í dag! Er bara að horfa á Múmín með henni Birnu Lunu snúnu og vorkenna mér hrikalega,,, *böhö*

föstudagur, júní 20, 2003

 
Hvað er málið með allt þetta lið sem er að kveikja í sér úti í heimi???? E.t.v er ég bara svo óglögg á aðra menningaheima að ég skil þetta ekki en,,,,, heldur þetta fólk virkilega að það breyti einhverju með því að gera þetta,,, einhverju öðru en sinni eigin framtíð!! Ég er fyllilega hlynnt því að fólk berjist fyrir því sem það trúir á en persónulega myndi ég fara aðra leið til að vekja athygli á málstaðnum *kreisímoþerfokkers*

fimmtudagur, júní 19, 2003

 
hehe,,, var að bíða eftir þessu,,, en jájá Kolla mín,,, svona er'etta bara,,,,,,,, nú er ég orðin kúl eins og Þorgrímur Þráins *blíngblíng*
 
Það er ekkert smá þægilegt að geta sitið hérna fyrir framan tölvuna á Hornafirði og hlustað á X-ið í útvarpinu yfir netið,,,, næst nefnilega ekkert nema fm957 og Bylgjan hingað og það er nú ansi takmarkað hve mikið hægt er að hlusta á Justin Timberlake og Christine Aguilera *ojbara*!!! Ég allavegana nýti mér netið og hlusta á Sigurjón Kjartans og félaga bulla og rugla alveg ótæpilega!!
 
Nýja vinnan er bara að rokka feitt,, ég er aðeins farin að skilja það sem ég er að gera hér og það er bara vel skemmtilegt! Ég vinn sko hjá Hornafjarðarbæ við eignaskráningu!?!?!? Einmitt,,,, eignaskráningu, og er að skoða teikningar og kort af húsum bæjarins og skrá allskonar upplýsingar á tölvutækt form?!

miðvikudagur, júní 18, 2003

 
Jæja gott fólk,, núna er ég loksins hætt að reykja,,, !!!! Ekki búin að reykja neitt núna í nokkra daga og hef ekki einusinni langað í sígarettu,,, skil ekki hvað ég var að standa í þessu á annað borð!

föstudagur, júní 13, 2003

 
þá er ég byrjuð að vinna,,,, bara gaman af þvi,, veit reyndar ekki ennþá alveg hvað það er sem ég kem til með að gera hérna en það hlítur að koma,,,, byrjaði sko bara í gær og er dálítið lost hérna!! Annars fór ég í sveitina á þriðjudaginn og koma aftur á miðvikudagskvöldið þannig að ég er búin að vera á ferð og flugi undanfarna daga.

mánudagur, júní 09, 2003

 
Jæja ég er komin heim úr sveitinni,,, kom reyndar á föstudagskvöldið!!! Ein besta vinkona mín var nefnilega að gifta sig á laugardaginn og ég varð sko að taka þátt í því!! Nánar tiltekið þá giftu þau Ragnheiður og Rúnar sig á laugardaginn.
Þau giftu sig í kirkjunni í Stafafelli í Lóni og svo var veislan haldin á hótelinu á Djúpavogi.
Þetta var alveg frááááábært í alla staði, kirkjuathöfnin og veislan og bara allt viðkomandi.
Ég tók nokkrar myndir sem ég er ekki ennþá búin að setja inn í tölvuna mína en ætla mér seinna að setja nokkrar myndir hingað inn þannig að þið getið öll séð hve glæsileg brúðhjónin voru.


þriðjudagur, maí 27, 2003

 
Prófið búið og það er auðvitað bara gaman!!! Annað mál svo hvernig mér gekk en ég nenni ekki að tala um það núna,,,,
Fékk nýja myndavél í gær *don't ask* og hún er svo hrikalega flott að ég á ekki til orð,,, tók meira að segja mynd af mér í gær í lærdómnum sjáiði bara HÉRNA Djö,, er maður ógeðslegur á svona tímum :-( *flottur trefill Dísa*
en allavegana,,,,, ég er súperdúper hamingjusöm með nýju vélina mína og er núna að fara að gera alla vitlausa og taka myndir úti um allt *heheh*!!!

Nei,, já einmitt,, ég er að fara aftur í sveitina til hennar ömmu minnar,,,, kemur í ljós hvenær ég get bloggað næst,,, allavegana,, heyrumst

mánudagur, maí 26, 2003

 
nú er ég alveg að flippa ÚÚÚÚÚTTT *aaarghh*
þessi helv,,, tölvusamskipti,,, ég held ég geti sagt bless við það að reyna að halda meðaleinkunninni sem ég er með úr hinum fögunum og fá niðurfelld skólagjöld á næstu önn,,, ég kann ekki fokk í'essu og er meira en til í að senda Gústa *#$%&"#* mail með nokkrum vel völdum orðafléttum *Gústi = kennarinn minn* !!!!
BÖHÖHÖH,,, !!?!? :-(

laugardagur, maí 24, 2003

 
ok komin úr sveitinni og er núna heima á Höfn að læra undir sjúkrapróf í Tölvusamskiptum sem ég fer í á þriðjudaginn,,,*jibbíogjei*
djö,, var ég vitlaus að vera veik þegar þetta helv,, próf var haldið í byrjun apríl,,, það er fáránlegt að sitja núna og læra undir próf,, sérstaklega þetta ömurlega leiðinlega fag!!
jæja best að fara að halda áfram,,,,,

þriðjudagur, maí 20, 2003

 
Þá er ég bara komin í sveitina og er ekki nettengd nema ég keyri út að Klaustri og borgi 200 kr fyrir hálftímaafnot af tölvu sem gæti alls ekki kallast góð!!
Við Birna erum búnar að vera á fullu frá því við komum í gærkvöldi. Búnar að taka á móti fullt af lömbum og vesenast alveg heilan helling. Núna erum við í pásu á Klaustri og erum að láta gera við fj,, dekkið sem sprakk!!

sunnudagur, maí 18, 2003

 
jæja,, þá er maður kominn heim og búin að knúsa hana Birnu mína stanslaust í sólarhring,,, Hún er orðin alveg hrikalega stór finnst mér og verður auðvitað alltaf fallegri og fallegri,, sjáiði bara HÉRNA
Hornafjörður er alveg nákvæmlega eins og hann var þegar ég fór um daginn og satt best að segja myndi ég allllls ekki nenna að vera hérna í sumar ef það væri ekki fyrir hana Birnu mína!!!! Ég er ekki ennþá komin með vinnu og er hundfúl útaf þessu öllu saman!!!
Þess vegna er ég ekkert nema fegin að vera að fara aftur héðan á morgun,, ég ætla að taka hana Birnu með mér og fara út í sveit og gerast bóndi um tíma!!! Amma mín þarf á hjálp að halda og ég er auðvitað öllu vön þegar kemur að sveitastörfunum *heheh*

laugardagur, maí 17, 2003

 
Án óvissunnar og hins óþekkta er lífið aðeins stöðnuð endurtekning á minningum,,,
Rakst á þetta máltæki,,, mér finnst það eiga vel við,,,, annars held ég að ég fari að koma mér héðan *úr skólanum* áður en nokkur maður sér mig og fer að vorkenna aumingja mér sem er svona peþettikk,,,,
Buenas noches todos
 
Æ núna er ég endanlega orðinn lúser,,, ekki gaman að segja frá því en satt engu að síður!!!!
Klukkan er 3 á föstudagsnóttu og ég sit hérna allllllllein uppi í skóla,,,, ég get ekki sofið og nenni ekki að hanga ein heima og horfa á friendsþættina sem ég er hvort eð er búin að sjá milljón sinnum!
Ég kláraði skólann í gær,, fór í próf í þessum blessaða vefþjónustukúrsi og setti þar með endapunktinn á þessar 3 vikur sem ég er búin að sitja hérna uppi í skóla og gleyma því hvað lífið gengur í rauninni út á!!!
Núna er s,s mögulegt fyrir mig að verða aftur eins og "venjulega fólkið" þarna úti,,,, eiga líf og sinna litlu prinsessunni minni! Ég fer loksinsloksins heim á morgun,, búin að ganga frá öllu sem ég þarf að gagna frá og get farið til hennar Birnu minnar.

Æ í kvöld finnst mér ekkert gaman að vera til,,, veit s,s ekki af hverju og ég átta mig fullkomlega á því að ég hef sjálf valið mér það líf sem ég lifi!!! Ég er bara að verða pirruð á því að horfa til framtíðar og vita aldrei hvar ég verði stödd eða hvað ég verði að gera!! Alltaf sama vesenið á mér,,,,,

miðvikudagur, maí 14, 2003

 
jæææææja,,, klukkan bara að verða hálf 3 og við bara að verða búnar með verkefnið!!! Þurfum að skila fyrir klukkan 10 í fyrramálið og þurfum s,s líklega ekki að vera alveg þangað til!
Er orðin nett rugluð núna og langar heeeeeeeeeeim,,,,,,,,,

laugardagur, maí 10, 2003

 
æ það er svo gaman þegar fólk skrifar í gestabókina mína Takk fyrir Ólöf :-)

Annars er bara kosningadagurinn mikli í dag,,,,,, ég búin að kjósa,, gerði það reynar í gær því ég kaus utankjörfundar,,, og er bara sátt!!!
Ég fór líka í Betrunarhúsið núna í morgun og fékk einnar viku prufupassa í stöðina,,, frítt !!!! Það er náttúrulega ekkert nema frábært þar sem ég hef ekki getað lyft neitt frá því kortið mitt rann út í Baðhúsinu og það er orðið allt of langt síðan það gerðist!!

Núna er ég bara uppi í skóla að reyna að gera e-ð í þessu verkefni sem er bara að rokka feitt og er alls ekki jafn leiðinlegt og ég hélt í fyrstu,,,,, sem er GOTT

miðvikudagur, maí 07, 2003

 
Ég er farin að hlakka svo til að fara út að djamma þegar þetta fxxx,,, verkefni er búið að ég get ekki beðið! Við Kolla og Ester ætlum að mála bæinn eldrauðan og allt sem því fylgir *heheh*!!
Ég hef nú líka ekkert farið út að skemmta mér frá því um áramótin,,, tel sko ekki með klúðrið um páskana þegar ég fór út með Gústu gellu og kom heim puttabrotin og bjánaleg *DÖ*

Annars er ég búin að fá allar einkunnir og stóð mig bara "þokkaleeeeega",,,,, náði öllu og meira að segja ríflega það,,, *góð Dísa*

laugardagur, maí 03, 2003

 
hahahahah,,,,,
mér finnst þetta alveg hrikalega skemmtilegt,,,,
í alvöru prufiði'etta,,, ég og Kolla ætluðum alveg að deyja þegar við vorum að leika okkur með þetta áðan,,,

fimmtudagur, maí 01, 2003

 
æ dagarnir mínir eru allir eins núna,,, vakna, fer í skólann og fer svo heim og fer að sofa!!! Æðislegt að eiga ekkert líf!! Fer ekki einusinni í ræktina af því kortið mitt er útrunnið og ég á ekki krónu til þess að kaupa mér nýtt.
Verkefnið gengur alls ekki vel af því ég kann ekkert á .NET eða C# og það er einmitt það sem við eigum að vinna þetta verkefni með!!


laugardagur, apríl 26, 2003

 
Var að skoða gestabókina mína :
Elsku Stjáni minn,, það er alltaf svo gaman að heyra frá þér,, Fannst ömurlegt að komast ekki á Konsertinn ykkar um daginn. Veit að ég missti af miklu eins og "ALLIR" sögðu mér því það voru þarna "ALLIR" nema aulinn ég!!!!?!?!? Varðandi gömlu Kaffihornsmyndirnar mínar þá kíkti ég á þetta picturetraildrasl sem ég var með myndirnar inná og þeir virðast vera búnir að kötta á myndasvæðið mitt,,,, ég redda því nú á No-Time,, á myndirnar hérna í tölvunni minni!!!
Láttu þér bara líða vel sæti frændi,, bið að heilsa öllum heima!!

Til Kibbu!! Vonandi voru páskarnir þínir skemmtilegir! Ég saknaði þess að hafa þig heima,,, frekar asnalegt án þín! Ég hringi í þig á næstunni,,, þú gætir líka komið í heimsókn hingað upp í skóla eins og í fyrra,,, það var nú alltaf gaman hjá okkur og fleirum í lokaverkefninu fyrir jól ;-)
Miss'ya honey
 
ok laaaangt síðan bróðir minn fermdist,,, er bara búin að vera puttabrotin og varla getað pikkað neitt þannig að ég hef ómögulega nennt að blogga neitt undanfarna milljón daga.

Er núna komin aftur til R-víkur og byrjuð að vinna e-ð risaverkefni eins og við erum alltaf að gera hérna í HR *helv, andsk, djö, skóla drusla*

sunnudagur, apríl 13, 2003

 
Var að koma úr kirjunni,, verið að ferma litlabróðir minn! Mikið að gerast á heimilinu núna,,, veisla og læti!!!
Fór líka að skemmta mér á föstudaginn,,, að sjálfsögðu voru það eintóm læti og rugl,,, æ tala um það seinna,,, best að drífa sig í veisluna

þriðjudagur, apríl 08, 2003

 
,,,,,,,,,búúúúúin í prófum,,, jibbíojei,, kláraði stærðfræðina í morgun og er bara komin í páskafrí núna!!! Veit svo sem ekkert um það hvernig þessi próf munu koma út en er ekki það mikið nörd að vera að velta mér upp úr því núna þegar ég er komin í frí,,,,, Núna er bara að fara að gera það sem ég er búin að fresta í allan vetur,,, fara í klippingu, taka til í bílnum mínum, fara í ljós, og kannski fara að búa til nýja heimasíðu!!!!!! Væri það ekki löngu tímabært???? Best samt að byrja á því að horfa svolítið á á Friends,,, búin að dánlóda svo mikið af Friendsþáttum núna upp á síðkastið að ég get sennilega glápt núna næsta sólarhringinn,,,,

laugardagur, apríl 05, 2003

 
ég er svo mikill letihaugur,,, nenni ekki að læra meira,, er bara að vafra á netinu og vesenast e-ð!! Prófið í morgun gekk svona lala,, ekkert of vel en ekkert of illa heldur,,, er þó nokkuð viss um að hafa náð samt sem áður
Gerði eitt af þessum skemmtilegu og lærdómsríku sjálfsprófum núna áðan,,, verð bara að peista þessu hérna inn ;-)
Goddess
You are a goddess!


Which Ultimate Beautiful Woman are You?
brought to you by Quizilla


föstudagur, apríl 04, 2003

 
Próf á morgun,,, bara gaman að því,,, hef annars frá litlu að segja fyrir utan það!!!
Hef varla talað við neinn eða farið neitt eða gert neitt,,, jú að vísu fór ég út í búð í dag með henni Birnu minni,,,, páskaegg úti um allt,,, "þvílíktogannaðeins" og Birna auðvitað vildi fá þau öll. Hún tuðaði og suðaði "er ekki dóttir mín fyrir ekki neitt" og heimtaði páskaegg númer 7 frá NóaSíríus,, það allra dýrasta og flottasta auðvitað!! Hún er svo mikil dekurrófa,, að ég auðvitað keypti handa henni páskaeggið,,, það er nærri því jafn stórt og hún,,,, og það allra versta er að henni finnst súkkulaði ekki einusinni það gott! Hvað gerir maður svo sem ekki fyrir prinsessuna sína,,????

fimmtudagur, apríl 03, 2003

 
Ég er sko ekki í neinu stuði þessa dagana,,, allt alveg huuundleiðinlegt!!! Ég á tvö próf eftir og annað þeirra er strjál stærðfræði sem er alveg hreint öfgaleiðinleg!!! Eins og mér fannst nú alltaf gaman í stærðfræði í framhaldsskóla,,, þessi strjála stærðfræði er nú líka ekkert lík hefðbundinni stærðfræði,, það sem við erum að fást við eru t.d eftirfarandi .:: Gossjálfsalar,, Tré og Málfræði,,, "DÖ",, já án gríns,, stærðfræðitengda málfræði!!! Ég meina ekki nokkurri venjulegri manneskju finnst þetta skemmtilegt,,, ég væri frekar til í týna allt rusl í Reykjavík heldur en að læra einn dag í viðbót fyrir þetta fja,,,, próf

miðvikudagur, apríl 02, 2003

 
arghhh,,, ég hata próf,, og próflestur,,, og bara allt þetta drasl sem viðkemur prófunum!! Ég var að spá í því í gær og fann það út að þetta er 6. árið í röð sem ég er í skóla,,,, framhaldsskólinn, árin mín 2 í Háskóla Íslands og svo núna síðustu 2 árin í Háskólanum í Reykjavík. Ég meina það,, það er eins gott að ég hafði vit á því að taka mér ársfrí fyrir þetta allt og fara til CostaRica,,,, maður er hreint peþettik,, og ég er ekki einusinni búin!!!! neineinei á alveg helling eftir "jibbí"!!! Jæja róleg Dísa,,, ekki alveg missa'ða!!

mánudagur, mars 31, 2003

 
okí,,, svo mikið fyrir það að skrifa reglulega,,,, jæja hú kers???? Ég var í mínu fyrsta prófi í morgun,, í fagi sem heitir því skemmtilega nafni "Rekstur upplýsingakerfa",,, gekk bara svona lala og er ótrúlega sátt við að vera búin með'etta. Tók prófið í húsakynnum Framhaldsskóla austur - Skaftafellssýslu, alveg splunkunýrri og flottri skólastofu með svaka glerveggjum og læti,, var þarna eins og bjáni í búri "heheh".
Núna er bara að fara að læra undir næsta próf,,,,,,,,, djö,,, á ég skemmtilega tilveru eða þannig,,, milli þess sem ég er að læra er ég að fylgjast með stríðinu í Írak "DÖ"!!!! Hvað er maður eiginlega orðinn gamall ???

fimmtudagur, mars 27, 2003

 
Núna er ég komin heim á Hornafjörð þannig að ég get farið að skrifa reglulega inn á þetta blessaða blogg mitt,, allavegana get ég núna reynt að skrifa reglulega , annað mál hvort það takist!! Ég er að byrja í prófum núna á mánudaginn næsta og hef þannig nóg að gera!!!! Fæ að taka prófin hérna heima á Höfn og slepp þannig við hundraðmannayfirfulluskólastofurnar uppi í HR *hehehe*.
Er að skila verkefnum hægri - vinstri og hlakka ekkert smá til þegar þetta verður búið.
Heyrðu já,, og svo er bara komið stríð,,,, hasar og læti,, æ ég nenni ekki að fara að tjá mig um það núna,, bara ekki í skapi til þess,,,

miðvikudagur, mars 12, 2003

 
,,,,, sá um daginn á Popp-tíví myndband með einhverri grúppu sem heitir víst TATÚ,,, það eru s.s 2 rússnenskar stelpur sem samkvæmt áreiðanlegum *?????* upplýsingum eru lessur og gera í því að koma því á framfæri í myndbandinu sem ég sá!!!
Var að spá,,,,,, djö,, er þetta lið snjallt að markaðsetja,,, ha,,, þetta annars ekkert sérstaka band er bara orðið heimsfrægt út á þetta sölutrikk þeirra!!! Þvílíkir snillingar,,, hefði bara ekki verið mögulegt annað en að þær vektu athygli,,, ég meina 2 litlar lessur og í þokkabót frá Rússlandi *!!!!!!!!!* af öllum stöðum ,,,, heheh ,, er bara Win-Win situation,,,,,, það er gaman að'essu

mánudagur, mars 10, 2003

 
ok ég er lööööööngu búin að eiga afmæli,,,, bara búin að vera aðeins löt að skrifa inn á bloggið mitt,,, svolítið til í þessu hjá þér Ásgeir :-)
já og bæþevei takk fyrir allar kveðjurnar sem ég fékk inn á gestabókina,,,,, þið eruð öll æðisleg

Kannski ég bara noti tækifærið og óski þeim Stjána bestafrænda og Tryggva töffara til hamingju með sína afmælisdaga,,,, þið eruð algerir kúlistar að vera í sama stjörnumerki og ég,,, sem er auðvitað besta merkið,,,,,????? Eða er maður kannski orðinn of gamall fyrir svona djók,,,,,,,

föstudagur, febrúar 28, 2003

 
Hallóhallóhalló,,,, áttiði ykkur á því gott fólk að ég á afmæli núna á næsta mánudag?????? haaaa,,, það er nú ekkert smá skemmtilegt,,, pottþétt að ég geri e-ð til að halda upp á það,,,, gæti t.d keypt mér pizzu já eða jafnvel hamborgaratilboð á AktuTaktu,,,,, HA,,, brjálaður dagur,,, alveg að sleppa sér í gríninu *daddarra*

fimmtudagur, febrúar 20, 2003

 
Fann flugfargjald til Costa Rica frá London fyrir 35.000... *ahhhaaaaa* líka til Istanbul fyrir 20.000,,, ekki það að mig langi til að fara neitt úr veðurblíðunni hérna á Íslandi,,, neineineinei,, ekki að ræðaða,,, er bara svona rétt að kynna mér upplýsingatækni á netinu!!!!!!
 
Elsku Kibba mín!!!
Vildi bara láta þig vita að ég er á Hornafirði með geðveikan móral af því ég gleymdi að láta þig vita áður en ég fór,, kem sennilega aftur um eða eftir helgina,,
Farðu bara vel með þig ástin mín,, Love'ya lots

þriðjudagur, febrúar 18, 2003

 
Bara svona rétt að spyrja,,,,, voru það virkilega svona margir sem vildu frekar sjá Birgittu Haukdal en Botnleðju fara í Júróvisjón??????? Ég meina KOMMON ?????? Er fólk aldrei til í að gera neitt nema það sé algerlega eftir formúlunni???? Málið er alls ekki það,,, ég kann sko alveg að meta hana Birgittu,, reyndar alveg heilmikið en,,,,,, þetta er Júrovisjón for kræjing át lád,,,, þetta er aldrei skemmtilegt hvort eð er,, VIÐ VINNUM ALDREI,,, er ekki bara hægt að koma einusinni ( til tilbreytingar) í þessa keppni og vera "KÚL",,,, grátlegt Íslendingar, gátlegt,,,, ég meina það,, Núna bíð ég bara eftir að fara að heyra í dægurmálaútvarpinu um allar spárnar úti í heim sem spá sko henni Birgittu "okkar" í eitt af fyrstu sætunum ,,,,,, ohhhhh, ég gæti gubbað

þriðjudagur, febrúar 11, 2003

 
Ég skil ekki alveg hvað ég er löt þessa dagana,,,, á svo erfitt með að vakna á morgnanna að það er ekki einusinni fyndið!!! Er þó að meika ræktina alveg hrikalega vel,,, mæti alveg helling bara og er líka orðinn alger massi *grrrrr*!!!! Fór um daginn að lyfta í Sporthúsinu svona rétt til að fá smá tilbreytingu frá Baðhúsinu,,, við Hlynsi gölluðum okkur upp alveg hrikalega og skelltum okkur alveg eitilhörð,,, maður hefur heyrt svo mikið af auglýsingum þar sem verið er að segja að Sporthúsið sé með fullkomnasta tækjasal á landinu þannig að við bara urðum að prófa!!!! Þvílíktogannaðeins,,,,,,, þetta var allt svo yfirgengilega tölvuvætt að það hálfa hefði verið nóg til að algerlega drepa stemminguna..... öll þessi einföldu tæki sem maður hefur notað svo oft áður voru alveg eins og einhverjar ægilegar geimskutlur sem maður þurfti að formata áður en maður byrjaði æfinguna *NÁKVÆMLEGA* Við vorum ekkert smá fljót að gefast upp,,, fórum bara í Hagkaup í Smáralind og keyptum okkur nammi á 50% afslætti í staðinn,,,, tekur örugglega bara mánuðinn að koma sér inn í þetta sístem og læra að nota það

föstudagur, febrúar 07, 2003

 
ok klukkan er allllt of margt til þess að ég sé hérna uppi í skóla að vafra á netinu,,, er búin að vera gera e-ð stjúpid verkefni í allan dag og get bara ekki sofnað,,, skaust bara aðeins út til að kaupa mér nammi í uppáhalds búðinni minni (24 - 7 búðin ógurlega ) og kíkja aðeins á netið í leiðinni,,,,,

miðvikudagur, febrúar 05, 2003

 
Æ hvað þetta er ömurlegur árstími,,,,, nenni varla að vera til,, allavegna nenni ég ekki að vera í skóla!!!! Geri ekkert þessa dagana nema að liggja í leti,,, veðrið algert pein og allt bara e-ð svo DÖÖÖÖÖ,,, best að fara að gera e-ð,,, "LEITER"

sunnudagur, janúar 26, 2003

 
Vá hvað tíminn líður hratt,, núna er bara kominn sunnudagur og ég er hérna heima á Hornafirði,,, kom á föstudagskvöldið eftir að keyra í ömurlegustu hálku sem ég hef á ævinni vitað,,, var örugglega 10 tima á leiðinni og orðin nett pirruð á síðustu kílómetrunum!!!!
Er svo sem ekki að gera neitt hérna heima,, bara að heimsækja hana Birnu mína og fá mér e-ð að borða,,, varla búin að borða neitt frá því ég fór héðan í byrjun janúar,,, *hehehe* ekkert almennilegt allavegana,,, hey já,,, svo hitti ég hana Ragnheiði mína,, hún bara að flækjast líka hérna heima,,, það var náttúrulega ekkert nema æðislegt að hitta hana,,,

,,,,,Og svo er ég bara á leiðinni aftur til R-víkur núna á eftir,,, vonandi er bara ekki sama ógeðslega hálkan,, ég nenni ekki að vera aftur 10 tíma að keyra þetta,,, æ það kemur í ljós

mánudagur, janúar 20, 2003

 
er núna í tíma í stærðfræði,,,, ekki gaman,,, er alveg hrikalega löt e-ð þessa dagana,, nenni ekkert að læra og er bara að dóla mér allan daginn,,,
hef hreinlega ekki frá neinu að segja þannig að ég ætla ekki einusinni að reyna að bulla e-ð

þriðjudagur, janúar 14, 2003

 
OK,,, vá,,, djö,, hef ég verið löt að skrifa :-/ hef verið alveg á hundrað frá því ég mætti í bæinn fyrir rúmri viku síðan,, Litla prinsessan mín var hérna með mér og við gerðum allt það sem henni finnst skemmtilegt,,, fórum í húsdýragarðinn, fórum í Smáralindina, gáfum öndunum, keyptum ís og svo auðvitað dekraði ég hana alveg eins og ég gat!!! Núna er hún hinsvegar farin og eg er hérna í Reykjavíkinni að deyja úr móðursýki og þunglyndi,,,,,

Kannski að tala um e-ð skemmtilegra *ehee*,,,,, alveg æðislegt að fá skemmtileg skilaboð í gestabókina,,,,
- - Stjáni uppáhaldsfrændi auðvitað langflottastur og stendur sig alltaf með glæsibrag, hvort sem verið er að tala um gestabókaskrif eða þá að vera hljómsveitatöffari. Haltu bara áfram að standa þig vel Stjáni,,, og þið allir bara í hljómsveitinni,,,, já bæ þe vei,,, góður diskurinn strákar
- - Aurélien - mi amigo de Costa Rica,,, espero que todo esta bien con usted,,, un dia voy a Francia para buscarte ;-)
- - og svo þessi hérna kveðja,,,,,,,,, "hvað er númerið þitt sæta sendu í jamesi@visir.is" *DÖ* já jújú,,, ég sendi sko pottþétt símanúmerið mitt inn á e-mailið þitt,, ég meina,, auðvitað,, ég get sko ekki látið þetta gríðarlega tækifæri frá mér sleppa,,,,,, legg meira að segja til að bara allir sendi númerið sitt inn á þessa addressu ,,,,

ok ætla að hætta núna,,,, lofa að skrifa aftur bráðlega,,, Hasta la vista, beibí

laugardagur, janúar 04, 2003

 
Djö,, þarf ég nú samt að fara að gera mér nýja heimasíðu,,,, búin að fá huuuundleið á þessari!!!
 
Jólafríið bara búið og skólinn að byrja núna ekkiámorgunheldurhinn!!!!!! Ég held meira að segja að ég fari til R-víkur núna á eftir því það væri ágætt að hafa einn dag í bænum áður en skólinn byrjar. Æ ég vildi samt óska þess að jólin væru bara að byrja núna,,, fyrsta vikan af fríinu fór eiginlega öll í spennufall eftir að skólinn kláraðist og ein vika er bara allt of lítið til að liggja í leti.

þriðjudagur, desember 31, 2002

 
Bara svona að blogga einusinni til viðbótar á þessu ári,,,,, er núna að fara að kveikja í einhverjum rakettum,, voða gaman,,, klukkan er 23:27 og s,s 33 mín eftir af þessu annars ágætis ári,,, margt skemmtilegt gerst *hehehehe* ætla bara að halda áfram að láta mér líða vel á nýja árinu,,, það er eiginlega eina áramótaheitið mitt!!!!

Gleðilegt nýtt ár öll sömul, látiði ykkur bara líða sem allra best líka!!

Feliz ano nuevo todos,,,, ;-)


laugardagur, desember 28, 2002

 
kominn fjórði í jólum eða e-ð????? Ballið bara þrusufínnt og ég hegðaði mér bara nokkuð skítsæmilega *hehehe ;-)* Hitti fuuuuullt af skemmtilegu og sætu fólki og er bara vel sátt!! Að vísu endaði kvöldið alltof snemma, klukkan hálf sex, þegar ég fékk e-ð sjálflýsandi sull upp í augað (án gríns) og þurfti að fara heim og verja 2 klukkutímum fyrir framan vaskinn til þess eins að fá sjónina aftur!!! Í dag líður mér hinsvegar ágætlega, sé bara þó nokkuð vel og alveg að verða búin að ná mér upp úr"annaníjólum"þynnkunni sem er auðvitað, eins og allir vita, engin venjuleg þynnka!!!!!

fimmtudagur, desember 26, 2002

 
Gleðileg jól öll,!!!! Núna er kominn "annaríjólum" og ég er samviskusamlega búin að liggja í leti alveg frá því jólin byrjuðu,,,, búin að lesa einhverja hundleiðinlega bók bara til þess að hafa afsökun fyrir því að liggja útaf og gera ekkert :-/ *blehh* Í kvöld er svo e-ð jóladjamm hérna á Hornafirði,,,, allir búnir að bíða frá því "annaníjólum" í fyrra eftir þessu sama djammi,,, vonandi verður ekki e-ð helv,,, vesen bara,,, er nú ekki óalgengt meðal liðsins hérna að vera með e-r læti þegar það fer að skemmta sér,, og þá geri ég mér fullkomlega grein fyrir því að ég er sjálf gildur meðlimur þessa "liðs" sem ég er að tala um *ehheeee* neinei,, þetta verður örugglega voða gaman og ég á örugglega eftir að hegða mér eins og sómasamleg 25 ára gömul einstæð móðir,,,, * ömurleg skilgreining bæþevei*

sunnudagur, desember 22, 2002

 
ok verkefnið er löngu búið,,,, eða fyrir 3 dögum síðan,,,,, ég er bara komin aftur heim á Hornafjörðinn minn og er núna á fullu að gera allt það sem ég gerði ekki á meðan á verkefninu stóð!!!! verð að skjótast aðeins núna,,,,, skrifa meira á eftir :-)

mánudagur, desember 16, 2002

 
Hallóhalló fallega fólk!!
Er ennþá á kafi í þessu foc,, verkefni,,, alveg að missa'ða hérna,,,, varla búin að sofa neitt í 6 daga og ennþá alveg helling eftir,,,, Eigum að skil'essu á morgun klukkan 5 þannig að við erum búin að byrgja okkur upp af koffeintöflum og fleiru líkamlega skemmandi drasli!!!!!
Þetta sándar kannski ekkert voðalega vel en sannleikurinn er nú samt sá að öll þessi vinna er nú bara búin að vera ansi skemmtileg,,,,, erum að læra alveg helling á'essu,,, ég allavegana!!!!
jæja best að halda áfram,,, að er víst nóg að gera!!!!

fimmtudagur, desember 12, 2002

 
Jæja jæja ... Dísa alveg á kafi í verkefni... e-ð of flókið fyrir okkur "venjulega" fólkið að skilja :)
En vitiði hvað... hún náði öllum prófunum... hún er í forundran (þýð. hissa) yfir þessu öllu saman og vitaskuld rosalega ánægð.
Bað mig sérstaklega að skrifa hérna inn til að segja öllum frá því. Hún hefur bara ekki tíma til þess sjálf :) Til hamingju Dísa mín :)
Verkefnaskil 17. des... þannig að það fer að styttast í að komast heim um jólin og slaka svolítið á... búið að vera geðveiki :)
jæja allir að óska Dísu til hamingju á gestabókinni hennar :) Hún verður alveg svakalega ánægð að sjá það :)
kveðja Kibba.

sunnudagur, desember 08, 2002

 
Rakst inn á síðu þar sem boðið var upp á helling af svona testum eins og mér finnast svo skemmtileg,,,,,
Þetta hérna skilaði mér alveg hrikalega góðum niðurstöðum,,,,

~Find Your Inner Supermodel~

Mitt innra súpermódel *DÖ,, hvað sem það nú er* er s,s Caudia flotta :-)

 
Var að formata tölvuna mína,,,,,, komin með hið hrikalega flotta XP stýrikerfi *VÁÁÁÁ* skil svo ekki upp né niður í öllum þessum ofur grafísku fídusum!!!! Tölvan mín virkar samt mun betur núna en hún gerði,,,, var gersamlega í hassi,,, þannig að þetta er bara hið besta mál!!
Er búin að vera svakalega dugleg að download-a drasli núna undanfarið,,,, komin með alveg hrikalegt tónlistasafn og búin að skrifa helling af friends þáttum,,, mitt missjón er sko að eiga ALLA friendsþætti sem til eru,,,ha,, ekki væri nú lélegt!!!!!! Það er alveg ótrúlegt hvað friends eru vinsælir þættir hérna uppi í HR,,,, það er bara vikulegur viðburður að horfa á friends,,,, allir að tala um það þegar nýju þættirnir týnast inn,,, kannski bara e-ð tölvunördadæmi,,, veit það hreinlega ekki!!!

fimmtudagur, desember 05, 2002

 
Enn eitt testið,,, hvaða persóna í Sex and the City ert þú,,,,*úhhhúúúú* bara svona í tilefni Marteins lykilmanns sem skrifaði í gestabókina mína um daginn




Which Sex and the City Vixen Best Matches Your Sex Style?

,,,,einmitt manneskjan sem ég vildi vera,,,, lang flottust




miðvikudagur, desember 04, 2002

 
ohhhhhh,,, klukkan er er að verða 6 á morgni miðvikudags,,,, er búin að vera hérna uppi í skóla frá því klukan hálf 9 í gærmorgun og á pottþétt eftir að vera í einhverja klukkutíma í viðbót,,, Erum sko að fara að skila einhverri helv,,,, skýrslu á morgun,,,, *blehh* alveg að verða búin á því!!!!!!!! Ekki einusinni vika búin af verkefninu og ein andvökunótt komin :-( Alveg fáránlegt,,,,,,,,,

mánudagur, desember 02, 2002

 
Fór upp í Kringlu á laugardaginn rétt svona til að taka mér smá pásu frá lærdómnum,,, rölti niður í Hagkaup og keypti mér einhverja ofursamloku!!! Ég get svo svarið það að ef ég hefði ekki vitað betur hefði ég haldið að jólin væru á morgun,,, allt að verða gersamlega vitlaust!!! Milljón manns og allskonar jóla þetta og jóla hitt blablabla,,,, þvílíkt og annað eins,, þetta fór nú bara í taugarnar á mér!!! Íslensk jólamenning er bara að verða eins og sú bandaríska,,,,,,, sem er ekki gott!!!
 
Mánudagur til mæææðu :-(
Klukkan er núna að verða 10 og ég er ný mætt hingað upp í skóla,,,,, búin að fara í ræktina en er ekkert hressari en ég var klukkan 7 í morgun þegar ég vaknaði *blehh* Nenni sko enganveginn að hanga hérna uppi í skóla í allan dag,, kom heim um miðnætti í gær og verð sennilega að vera e-ð svipað í dag,,!?!?!?!?


föstudagur, nóvember 29, 2002

 
ókí,,, dagur númer 3 í verkefnavinnunni að verða búinn og allir að drepast úr skemmtilegheitum *NOT*
Ég er í hópi með 3 strákum , Hlynsa, Magga og Gunna, sem eru allir alveg yndislegir *algerar dúllur bara* Við erum að gera einhvern leikjamiðlara og mér til mikillar gleði erum við að búa til fótboltatölvuleik sem á að rönna á þessum miðlara *jibbí eða þannig* nei það er ekki það,,, ég er bara svo hrikalega lítil fótboltamanneskja í mér að ég veit ekki einusinni hvað margir bjánar eiga að vera inná vellinum í einu,,, :-(
Við erum öll fjögur í hópnum búin að koma okkur vel fyrir inni í einni stofunni hérna í skólanum og sjáum fram á að vera bara hérna næstu 3 vikurnar,,,, hann Maggi kom meira að segja með svo mikið dót með sér að það mun hreinlega taka hann öll jólin að flytja aftur heim til sín eftir að verkefnið klárast!!!!!!
Hrein snilld bara,,,,

fimmtudagur, nóvember 28, 2002

 
jæjajæjajæja,,,,, þá er ennaftur byrjuð verkefnavinna hjá manni hérna uppi í skóla,,, :-( djísös hvað ég er ekki að nenna þessu,,,, erum að hanna núna e-ð flehfleh sem á að bjóða uppá e-ð blabla og gera kröfur um e-ð kjaftæði,,,,,, sem sagt æðislega spennandi!!!!!!

þriðjudagur, nóvember 26, 2002

 
ok já,,,,,, vonandi eru allir búinir að taka eftur linknum mínum þarna í horninu,,,, algerlega nauðsynlegt að hlusta áetta,,,,, ;-) ;-) hihihi
 
Hvað er eiginlega málið með allt þetta fólk sem er að skrifa í gestabókina hennar Kibbu???? Gott að vera töffarar þegar enginn sér hver maður er!!! jájájá aumingja Eysteinn litli blablabla,,, stelpur mínar veriði ekki svona grátlegar,,, þið ættuð kannski bara að tala við hann Eystein,,, það er ekki svo langt síðan hann þóttist alveg vita upp á sig sökina, eða var það ekki annars Eysteinn!!!! Hvað eruð þið þá að píbba?????
Varðandi þetta allt um hann Óskar,,,, ég get ekki annað en borið fulla virðingu fyrir öllum þeim sem eru að standa uppi fyrir vini sínum (rétt eins og hún Kibba vinkona mín var bara að gera fyrir mig),,, það er bara stórgott mál hjá ykkur og gott að hann Óskar eigi góða vini,, en eruð þið svo viss um að hann hafi aldrei sagt neitt við neinn annan en ykkur?? Annað hefur mér nú heyrst,,,,!!! en þetta á allt saman eftir að koma í ljós,,,, það er aldrei að vita hver á eftir að biðja hvern afsökunar,,,,,

mánudagur, nóvember 25, 2002

 
hver er þessi leiðinlegi gaur eiginlega sem var að skrifa í .::Gestabókina mína::.?????? Ha Sævar ekki dettur þér einhver til hugar sem gæti verið svona hrikalega ruglaður??? Ég bara er ekki að fattaða,,, ;-/

laugardagur, nóvember 23, 2002

 
Vil benda öllum á nýja linkinn minn hérna fyrir neðan,,, ég hélt ég myndi drepast þegar ég fann allan nýja diskinn hennar Leoncie inni á einni tölvunni hérna uppi í skóla,,,, þetta er algert æði,,, kemur manni bara í gott skap og fær mann til að líða mun betur með sjálfan sig :-) *blíblíblí*

fimmtudagur, nóvember 21, 2002

 
VÁ spáiði í'ðí,,,, Stjáni frændi bara að meikaða,,, það er nú s,s ekki eins og það komi manni neitt á óvart,,,, hann er nú einusinni hann Stjáni,,, svo er hann nú líka með algert stórstjörnulúkk,, sem er mjög gott þegar maður vill ná athygli fólks,,,,
ég hlakka ekkert smá til að fara á ball með ykkur snillingunum,,,, kannski bara um jólin???? Eða hvað???? Bið bara að heilsa hinum gaurunum

þriðjudagur, nóvember 19, 2002

 
þó svo það séu próf þá bara get ég ekki annað en skrifað,,, rakst á eina allra hlægilegustu gestabókafærslu sem ég hef nokkurntíma séð,,,
Hún er inni í gestabókinni hennar .::Höffu töffara::. og er svohljóðandi:::::
Hvað er nafnið þitt ? Marteinn Lykileigandi
Ertu hálfviti ? nei ég er áttaviti
Hvar ertu? rvk
Hefuru eitthvað að segja?
Ég var að pæla hvenær þú Kibba Dísa og Una ætlið að kæra Sex in the city fyrir að byggja heilan þátt um líf ykkar og ekki borga neinn einasta eyri.
Ég mæli eindregið með að svarið þeim með samkeppni og búið til ykkar eigin þátt. Það er allavega eitthvað sem ég mundi borga fúlgur fjár til að sjá. Hver ykkar ætli sé Samantha ?

,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,
Þetta finnst mér hrikalega fyndið,,,,
stóra spurningin er hinsvegar,,,,,,,,,,,,,,, HVER ER MARTEINN
plís plís plís skrifaðu líka e-ð í gestabókina mína MARTEINN

mánudagur, nóvember 18, 2002

 
PRÓFPRÓFPRÓFPRÓFPRÓFPRÓFPRÓFPRÓFPRÓFPRÓFPRÓFPRÓFPRÓFPRÓFPRÓF ------------------------hef bara ekkert að segja annað,, nema jú auðvitað eru þið öll að óska mér góðs gengis í prófunum *er það ekki annars!!!!* þannig að TAKK ;-) ;-)

föstudagur, nóvember 15, 2002

 
æ það er svo æðislegt þegar fólk skrifar í gestabókina mína,,, Stjáni þú ert alveg yndislegur,,,, það er alltaf svo gaman að heyra í þér elsku sæti frændi :-) svo eru það bara aðrir töffarar í runum sem hafa verið að senda mér kveðjur *vúhúúú*
Ásgeir minn æjá ég veit ég er hrikaleg í að svara sms-um og reyndar bara er ég hrikaleg í því að vera í sambandi við fólk,,,,, þú veist þó allavegana alltaf hver mig er að finna þannig að ef e-ð er þá er auðvelt fyrir þig að vera í bandi
- hinum þremur töffurunum sendi ég bara mínar bestu kveðjur ;-) ;-)

ókí,,,,, margt hefur gerst núna undanfarna daga,,,, bloggstríð bara komið af stað,,,,, ég nenni bara ekki að reyna að útskýra þetta út fyrir þeim sem ekki vita hvað ég er að tala um,,, þeir verða bara að komast að því sjálfir,,,,, það verður bara athyglisvert að fylgjast með þessu núna á næstu dögum,,,,, hummmm :-/


þriðjudagur, nóvember 12, 2002

 
Klukkan að verða 5 og ég er í aðeins betra skapi núna en áðan,,,,,, er bara á leiðinni í ræktina til að koma adrenalíninu aðeins af stað *ég er svo kúl!?!?!?*
jæjaaaa,,, hvað er annars málið????? já það er alltaf athyglisvert þegar maður kemst að því hvað fólk getur verið heimskt,,,,, það hef ég orðið ansi vör við núna undanfarna daga,,, alveg ótrúlega óheppið fólk að vera svona illa gefið og takmarkað,,, þú tekur þetta bara til þín sem átt þetta,,, ert nú samt sennilega of heimskur til að vita að verið sé að tala um þig?????

ok bara svona af því ég er ekki heimsk *DÖ* þá ætla ég að miðla alveg hrikalegum fróðleik hérna on-line,,, var nebblega að taka svona selftest sem er náttúrulega ekkert nema hrein snilld,,,,,

juicy kisser



You Are A Juicy Kisser!


Your lips are totally kissable baby, and you know how to use them.

You are the perfect kisser - with the right combo of lips and tongue.

It's important to flaunt it, so kiss early and often on dates!




How Do *You* Kiss?

More Great Quizzes from Quiz Diva

,,,,,,,,,,,geðeikt!!!!!!!
 
veiveivei,,,, ok ég er s.s ekki dauð þó svo það sé nú ekki kannski langt í það!!! Er nýkomin í bæinn aftur eftir 30 klukkutíma dvöl á Hornafirði,,, var farin að sakna hennar Birnu minnar svooooo mikið að ég dró hana Kibbu með mér keyrandi klukkan 11 á laugardagskvöldið,,, 10 mínútum eftir að okkur datt til hugar að skella okkur!!! Bara gaman af því :-)
Núna er hinsvegar síðasta kennsluvikan hérna í skólanum,,,,, næsta vika er s.s prófvika *#&%")!* 4 próf á 8 dögum,,,,,,!!?!?!?! Æðislegt!!
Nenni bara ekki að reyna að tjá mig e-ð meira,,,,, er hreinlega að drepast úr þunglyndi

mánudagur, nóvember 04, 2002

 
kominn mánudagur og blablablabla,,,,!!!! gerði ekkert skemmtilegt um helgina og það sem verra er þá lærði ég ekki neitt heldur,,,*alger auli* Lá í sjálfsvorkunnarkasti heima og horfði á milljón videóspólur,,, var nebblega lasin!!! Núna er hinsvegar komin ný vika með öllu tilheyrandi og ég ætla sko að taka þessa viku í nefið!! *ójeeeee* svosem ekki eins og ég hafi um neitt að velja ef ég ætla mér að ná önninni því jólaprófin byrja jú eftir tvær vikur og þá verður Dísa ekki í neitt voðalega góðum málum ef hún fer ekki að gera e-ð,,,,;!!!!!!!!!

föstudagur, nóvember 01, 2002

 
í morgun vaknaði ég alveg hrikalega stálslegin og dreif mig í ræktina klukkan 6:30,,,,, ég elska Baðhúsið,,,, það er alveg frábært að koma þangað svona snemma um morguninn, nývaknaður og ömurlegur!!! Ég er að segja ykkur, það er alltaf búið að kveikja á fullt af kertum út um alla afgreiðsluna og varla kveikt á öðrum ljósum,, stemmingin er svo æðisleg að ég hlakka hreinlega til að vakna um morguninn til að geta mætt á svæðið,,,,, nú er ég hinsvegar uppi í mínum elskulega skóla að gera þetta leiðinlega kennslumat sem alltaf er að þvælast fyrir manni á hverri önn,,,, alltaf jafn leiðinlegt,,,, djísös,,,,,,,
spurning hvað verður svo gert um helgina?????? Já er það nú ekki bara spurning,,,, *DÖ* ég er svo mikið nörd að það er pottþétt að ég verð að læra eins og bjáni,,,,

fimmtudagur, október 31, 2002

 
arghhh,, kominn fimmtudagur,,,, og ég er orðin svo handónýt og kolrugluð að ég veit bara varla hvað ég heiti lengur,,,,, Er með einhvað helv,,, kvef og mér er bara núna í tvo daga búið að líða eins og ég sé alvarlega þunn *aumingja ég :-( *
svo er auðvitað málið líka þessi ljótaljóta hálka sem er búin að vera hérna núna í 3 daga,,,, ég veit að ég hef sagt það áður en,,,, ÉG HATA SNJÓ OG ÞETTA HÁLKUDRASL!!!!!!!!!!!!!!!!!!! ég auðvitað var svo gáfuleg að gleyma vetrardekkjunum mínum heima á Höfn þannig að ég er bara á mínum skemmtilegu dumardekkjum og er búin að lenda í mesta veseni,,,, búin að festa mig tvisvar á bílastæðinu heima hjá mér *peþettikk* og þurfa að spóla mig út með stórkostlegum tilþrifum,,,,, alger snillingur eða þannig,,,,, ég hringdi svo auðvitað í mömmu og pabba til að láta þau redda mér *nema hvað* og senda mér dekkin,,, og auðvitað gerðu þau það,,, best að fara að brasa í því núna,,,,, síja

þriðjudagur, október 29, 2002

 
já ég veit,,, ég er ekkert búin að skrifa núna í ógeðslega langan tíma,,, gersamlega að floppa hrikalega í bloggeríinu *Afsakið en er þetta orð Disa???*
annars er ekkert búið að vera að gerast hjá mér að undanförnu,,, er alltaf bara að nördast í skólanum og á ekkert líf,,,,, bara þetta venjulega *heheh* Eva systir og litli prinsinn hennar voru jú hérna hjá mér um helgina,,,, ég auðvitað veltist með þeim um allan bæ og gersamlega sleppti mér í fatainnkaupum *eheee*! jájá fátæki námsmaðurinn ég keypti mér fullt af fötum á laugardaginn og er núna að velta því fyrir mér hvernig ég eigi að fara að því að eiga e-ð að éta næsta mánuðinn,,,,,,!!!!!!!!!!!!!!!! En það er nú allt í lagi,,, ég bara lifi á núðlum,,,, þær kosta bara 19 krónur í Bónus,,,,,??? :-/

miðvikudagur, október 23, 2002

 
jææææææjaaa,,, eheeee,, ekki búin að skrifa neitt núna i bara helling af dögum,,,
besta að byrja bara,,,, ég fór s,s á djammið á föstudaginn,, svaka djamm,, kom ekki heim fyrr en um 8 daginn eftir,,, hitti hellig af skemmtilegu fólki en líka alveg helling af glötuðu liði,,,,, Það stendur hreinlega ein spurning eftir þessa nótt; HVAÐ ER AÐ KARLMÖNNUM 'I REYKJAVÍK?????????? Hvað er eiginlega málið með alla þessa lúsera sem halda að þeir séu svo ómótstæðilegir að "ALLAR" konur hreinlega standist þá ekki????? Ég meina,,,,, þrír gaurar klipu mig í rassinn *%&#(&*, einn random gaur gekk upp af mér og bað um símanúmerið mitt alveg eins og ég ætti að vera súperdúper hamingjusöm með það að hann skildi vilja það og einn gaur var að reyna að hössla mig með því að urra *grrrrrrrr* framan í mig eins og tígristýr,,,,!!!!!!!!!!!!! og þá er ég sem sagt ekki einusinni að nefna glataða gaurinn í jakkafötunum og nikestrigaskónum og kynferðislega brenglaða stjórnmálafræðinginn,,,,,, fer sko ekki nánar út í það :-/
Enn og aftur segi ég,,, ég gifti mig sko pottþétt aldrei,,,, allir góðu gaurarnir *ef þeir eru þá til* eru teknir eða hreinlega skyldir mér,,,,

föstudagur, október 18, 2002

 
hvernig væri nú að skella sér á djammið í kvöld??????? Væri það ekki bara sterkur leikur,,,,HA,,,, ég er nú ekki búin að fara neitt á djammið í 2 mánuði *ekki að djóka* þannig að það er kannski bara alveg orðið tímabært,,,,, Anna sæta og The princess eru að reyna að draga mig með sér e-ð og þó svo ég hafi nóg annað að gera þá er ég nú bara nokkuð heit fyrir essu!!!!!
Annars er ég bara alltaf uppi í skóla að reyna að vera gáfuleg,,, gengur nú ekkert of vel,,,,, er bara alger sauður,,,, svei mér þá

miðvikudagur, október 16, 2002

 
þá er maður bara kominn í menninguna aftur,,,, svaka gaman að vera aftur komin upp í skóla *je ræt Dísa* og sit núna eins og dæmd fyrir framan tölvuna og er að byrja á einhverju bjánalegu verkefni í einhverju bjánalegu fagi,,,??!?!?!?
Ég kom í bæinn seint í gær og frétti þá af prófi morguninn eftir,,,, gersamlega ekki að nenna að læra svo að mín fór bara á rúntinn með henni Kibbu sætu og sló bara draslinu upp í kæruleysi,,,, Prófið var svo í morgun klukkan 8 og svei mér þá en mér gekk bara alveg ágætlega!!!!!!! Ég er sko svo mikið nörd að hugbúnaðarfræði kunnátta er hreinlega meðfæddur hæfileiki *hehehe*
Annars stefni á að eyða restinni af deginum hérna uppi í skóla e-ð að dóla mér og fara svo heim að horfa á nýjasta Friendsþáttinn sem ég er í augnablikinu að hlaða inn á vélina mína *vúhúúúú* kannski maður skelli sér í ræktina í millitíðinni,,,,,,,???? það er spurning,,,,,,,

mánudagur, október 14, 2002

 
Ok veit ekki alveg hvað mér á að finnast,,, var að gera e-ð test sem ég fann á síðunni hennar Önnu sætu og fékk s,s þetta út::::::
size queen



You Are a Blowjob Queen!



You are a Blowjob Queen. That's right - you are a total blowjob master. You give the best blowjobs in town. In fact, you
could be considered a modern Linda Lovelace. Your reputation preceeds you, but that's okay. Men shower you with gifts to get close
to those lips.




,,,,,,,,,,,,,,,,,,*eheeeeee* kannski maður bara hætti í tölvunni og fari að snúa sér að því sem maður er virkilega góður í ghrrrrrrrr. En djö,,, er þetta nú ljót kona á þessari mynd,,, algerlega ekki að gera neitt fyrir mig,,

 
jájájájá ég veit ég er ömurlegur bloggari,,,, ég hef bara verið svo hrikalega löt núna undanfarna daga,,,,, það er allt rigningunni að kenna,,,, búin að vera rigning hérna á Hornafirði í eina viku *án gríns* og ég er bara þannig að það fer algerlega eftir veðri í hvernig skapi ég er,,,,,, rigning & rok og snjór & rok = ég í vondu skapi !!?!?!? Þetta er einmitt aðal ástæðan fyrir því að ég ætla mér að flytja út til heitulandanna þegar ég klára skólann,,,,
blablabla nóg um veðrið,,, frekar ömurlegt umræðuefni Dísa,,,
ok,, ég var að vafra um netið núna áðan og rakst á e-ð drasl um söngvarann stórmerka Shaggy?!?!?! *vúhúúú* nei í alvörunni þá hef ég aldrei fílað hann en ég gat nú bara ekki annað en hlegið þegar ég sá nýjustu myndirnar af honum,,, ég held að Shaggy litla langi soldið að vera svona kúlisti eins og Lenny Kravitz,,,,!!!!!! Kíkiði bara HÉRNA hahahaha lúði maður,,,, alger lúði,,,,


þriðjudagur, október 08, 2002

 
ohhhhhhhhh,,,, ekki alveg til í að fara að byrja aftur að læra,,,,, miðannarprófin og allt vesenið í kringum þau voru alveg nóg fyrir næstu vikurnar,,, en,,, núna er víst komin ný skólavika *jíbbí :-( * byrjaði reyndar í gær og ég er ekki að nenna neinu!!!!!
Hornafjörðurinn er að bjóða upp á gríðarleg skemmtilegheit,,, hellihellihelliirigningu og rok og beisiklí stórkostlega róleg tilvera!!?!? Guði sé lof fyrir SkáEinn því annars veit ég hreinlega ekki hvað ég myndi gera á kvöldin eftir að hún Birna Luna sofnar!!!!
- Svona talandi um SkáEinn,,,,, hefur einhver þarna úti verið svo afskyrnu óheppinn að hafa misst af því að horfa á þátt sem er verið að sýna þar og heitir The Bachelor ????????? Ég meina ok,,, þegar Temptetion Island kom þá hugsaði maður "Kræst hvað fólk er ruglað,,, að láta hafa sig út í svona viteysu" og hélt að þá væri maður sko búinn að sjá í botninn á slísí, bandarísku sjónvarpsefni!!! Enn neineineinei þessi þáttur toppar gersamlega allt,,,, við erum að tala um forljótan gaur sem fær í heimsendingu, pakka af 30 gellum sem hann testar fram og til baka þar til hann ákveður hverri þeirra hann langar til að giftast!!?!?!? Allar gellurnar eru náttúrulega yfirsig skotnar í þessum ömurlega gaur *alveg mega óaðlaðandi* sem þær eru að sjá í fyrsta skipti, og keppast við að hlæja að grautfúlum bröndurum hans og sýna meira af brjóstunum á sér en næsta gella til að verða nú sú heppna sem hann vill giftast!!??!?! Og svo er þetta allt með svona bjánalegu bandarísku yfirbragði,,, allir grenjandi alltaf og dramatíkin alveg að gera mann brjálaðan,,,,,,, ég meina það,,,, á þetta er maður svo að horfa,,,

Archives

This page is powered by Blogger. Isn't yours?